Aron loksins tilbúinn í slaginn

Aron Bjarnason í leik með Val gegn KR á síðasta …
Aron Bjarnason í leik með Val gegn KR á síðasta ári. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Aron Bjarnason gæti í kvöld spilað sinn fyrsta leik á árinu með Sirius í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu en hann hefur verið frá keppni vegna meiðsla allt þetta keppnistímabil.

Aron kom til Sirius frá Újpest í Ungverjalandi áður en keppni hófst í Svíþjóð en hefur verið afar óheppinn með meiðsli.

Sirius tekur á móti Häcken í næstsíðustu umferð deildarinnar klukkan 18 og Aron er á meðal varamanna liðsins.

Uppfært kl. 20.03:
Aron kom inn á sem varamaður á 85. mínútu í kvöld. Sirius vann leikinn 3:0 og gulltryggði sér áframhaldandi sæti í deidlinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert