Íslenski boltinn

Mið­vörður Víkinga mögu­lega með slitið kross­band

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Kyle Mc Lagan í Evrópuleik síðasta sumar.
Kyle Mc Lagan í Evrópuleik síðasta sumar. Vísir/Hulda Margrét

Kyle Douglas Mc Lagan, miðvörður bikarmeistara Víkings, fór meiddur af velli þegar Víkingur tapaði 1-0 fyrir Val í undanúrslitum Lengjubikars karla í knattspyrnu. Óttast er að hann sé með slitið krossband í hné.

Mc Lagan hóf leikinn í hjarta varnarinnar ásamt Oliver Ekroth. Á 65. mínútu þurfti Mc Lagan að fara meiddur af velli. Fékk hann aðstoð við að komast inn í hús. Eftir leik mætti Arnar Gunnlaugsson, þjálfari, í viðtal á Fótbolti.net. Þar sagðist hann óttast það versta.

„Mestu áhyggjurnar núna eru varðandi Kyle, erum að bíða og vona að hann sé ekki með slitið krossband. Þetta leit ekki vel út, það návígi sem hann fór í,“ sagði Arnar en Víkingar misstu einnig Erling Agnarsson meiddan af velli.

„Þetta lítur bara hræðilega út. Við krossleggjum fingur og vonumst að niðurstaðan úr myndatökunni verði okkur jákvæð,“ bætti Arnar við.

Ljóst er að Víkingur mun sakna Mc Lagan sé hann með slitið krossband og frá út leiktíðina. Honum óx ásmegin á síðustu leiktíð, sinni fyrstu í efstu deild hér á landi, eftir að hafa gengið í raðir Víkinga frá Fram þar sem hann rúllaði upp Lengjudeildinni sumarið 2021.

Ásamt Mc Lagan geta þeir Ekroth, Halldór Smári Sigurðsson og Sveinn Gísli Þorkelsson allir spilað í miðverði. Þá hefur Matthías Vilhjálmsson einnig leyst þar af en hann var fenginn til liðsins frá FH til að spila framar á vellinum. Hvort það breytist nú kemur í ljós.

Víkingur heimsækir Stjörnuna í 1. umferð Bestu deildar karla þann 10. apríl næstkomandi.


Besta deildin er á Stöð 2 Sport. Smelltu hér til að horfa á leiki og þætti. Besta deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 4.990 kr. á mánuði og má kaupa hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×