„Mjög mikilvægt að við bregðumst við“ Elísabet Inga Sigurðardóttir og Viktor Örn Ásgeirsson skrifa 26. janúar 2023 19:48 Flóðið sem féll í morgun er mun minna að umfangi en það fyrir fjörutíu árum síðan. Lítill snjór er í fjallinu fyrir ofan bæinn. Elfar Steinn Bæjarstjóri Vesturbyggðar segir að illa hefði getað farið ef krapaflóð sem féll á Patreksfirði hefði fallið tveimur tímum fyrr. Íbúar væru skelkaðir enda ýfi flóðið upp gömul sár. Atvikið minni á mikilvægi ofanflóðavarna sem sárvanti á svæðinu.
Flóðið féll á tíunda tímanum í morgun og er mun minna að umfangi en það sem féll fyrir fjörutíu árum síðan. Hvorki fólk né byggingar urðu fyrir flóðinu sem fór í sama farveg og flóðið sem féll á svæðinu árið 1983. „Við sitjum hérna í kaffi í ráðhúsinu og heyrum drunur. Og höldum fyrst að það sé verið að skafa klaka af götunum en svo áttum við okkur á því að það er flóð sem er hérna rétt við hliðina á húsinu,“ segir Þórdís Sif Sigurðardóttir bæjarstjóri Vesturbyggðar. Þórdís Sif Sigurðardóttir segir að íbúar séu skelkaðir enda hafi flóðið ýft upp gömul sár.Aðsend Viðbragðsaðilum var gert viðvart, hættustigi Almannavarna lýst yfir en síðar aflétt og ítrekaði yfirlögregluþjónn að engin hætta væri á ferðum. „Ef þetta hefði verið klukkan átta í morgun þá hefði þetta verið á mjög slæmum tíma, þar sem að krakkar eru að fara í skólann og líka fólk á bíl á leið í vinnuna. Sem betur fer þá varð enginn fyrir flóðinu en þetta hefði getað verið verra.“ Flóðið lenti á bílum sem að sögn Þórdísar hægði á ferð flóðsins sem annars hefði getað endað á byggingum. „Við erum svolítið skelkuð yfir þessu, þar sem að þetta rifjar upp þá atburði sem voru fyrir rétt rúmum fjörutíu árum,“ segir Þórdís. Rauði krossinn bauð upp á samverustund í safnaðarheimilinu í dag en á sunnudaginn síðasta minntust íbúar þess að fjörutíu ár væru liðin frá því að fjórir létust í krapaflóðum á svæðinu. Í dag, fjórum áratugum síðar, eru enn engar ofanflóðavarnir á svæðinu. Þórdís segir að frumathugun varnarkosta sé í ferli hjá ofanflóðasjóði og áætlað að farið verði í framkvæmdir á næstu fjórum árum. „Það er náttúrulega líka háð því að fjármagn fáist í varnirnar; að það verði fjármagn sett til ofanflóðasjóðs í þessi verkefni.“ Biðin eftir framkvæmdum sé óþægileg enda stöðug hætta til staðar. Þá segir Þórdís að nokkuð stórt flóð hafi fallið á Raknadalsheiði og tvö á Bíldudal. „Það er bæði hérna á Patreksfirði og á Bíldudal. Og svo náttúrulega hlíðin sem við þurfum að keyra undir þegar við förum suður og sækjum okkar þjónustu. Allar okkar leiðir liggja um þennan veg. Þannig að það er mikið verk fyrir höndum og mjög mikilvægt að við bregðumst við,“ segir
Vesturbyggð Náttúruhamfarir Almannavarnir Tengdar fréttir Hættustigi á Patreksfirði aflýst Búið er að aflýsa hættustigi Almannavarna á Patreksfirði vegna krapaflóðs sem féll þar í morgun. Svæðið verður áfram vaktið en búið er að aflétta lokun á svæðinu. 26. janúar 2023 13:27 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Erlent Heyrði mikla skruðninga í Hítárdal fyrir miðnætti á föstudag Innlent Veiðiþjófar stálu frá barni við Hítarvatn Innlent Dregur saman með efstu frambjóðendum Innlent Helga aðeins 15 mínútur að landa fyrsta laxinum Innlent Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Innlent Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Innlent Heimamanna bíður það verkefni að finna nafn á nýja lónið sem er komið til að vera Innlent Hítará hefur fundið sér nýjan farveg Innlent Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Innlent Fleiri fréttir Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Diskóstemming í Bíóhöllinni á Akranesi Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Framkvæmdir hafnar við brú yfir Fjarðarhornsá Segist kallaður „stríðsæsingarmaður“ vegna fyrirhyggju Sjúklingum Landspítala fjölgaði um 4.500 milli ára Skólastjóradrama í Kóraskóla fær óvæntan endi Bein útsending: Ársfundur Landspítala Mótfallinn sjálfsafgreiðslu á Bessastöðum Boða til blaðamannafundar vegna Grindavíkur Fordæma brottvísun mansalsþolenda og vilja nýja stefnu Slökktu eld á Seltjarnarnesi Mögulegt umboðsleysi stjórnar Aðventista gæti skipt Ölfyssinga máli Fara fram á farbann Sjómenn í haldi og ÁTVR í bobba Bréf First Water veldur ringulreið í bæjarstjórn Ölfuss Konráð nýr efnahagsráðgjafi ríkisstjórnarinnar Umhverfis- og loftslagsmálin „Icesave okkar tíma“ Boða sérstakan bæjarstjórnarfund vegna bréfs Eggerts Skipstjórinn og stýrimaðurinn fluttir til Reykjanesbæjar Sjá meira
Hættustigi á Patreksfirði aflýst Búið er að aflýsa hættustigi Almannavarna á Patreksfirði vegna krapaflóðs sem féll þar í morgun. Svæðið verður áfram vaktið en búið er að aflétta lokun á svæðinu. 26. janúar 2023 13:27