Hundruð fórnarlamba kaþólskra presta á Spáni Kjartan Kjartansson skrifar 2. júní 2023 15:44 Ljóstrað hefur verið upp um kynferðisbrot kaþólskra presta í fjölda landa á undanförnum árum. Spánn gengur nú í gegnum sitt eigið uppgjör á syndum kirkjunnar manna. Vísir/Getty Rannsókn kaþólsku kirkjunnar á Spáni á misnotkun presta og annarra þjóna kirkjunnar á börnum hefur afhjúpað 728 meinta gerendur og 927 fórnarlömb frá fimmta áratug síðustu aldar. Meira en helmingur meintra gerenda voru prestar en flest brotin áttu sér stað á sjöunda, áttunda og níunda áratugnum.
Kynferðisbrot innan kaþólsku kirkjunnar á Spáni hafa verið í sviðsljósinu eftir að dagblaðið El País greindi frá fleir en tólf hundruð tilfellum árið 2021. Sambærileg uppgjör hafa átt sér stað víða annars staðar á undanförnum árum, þar á meðal í Bandaríkjunum, Frakklandi og Írlandi. „Við viðurkennum þann skaða sem var valdið. Við viljum hjálpa öllum fórnarlömbunum, fylgja þeim á meðan sár þeirra gróa,“ sagði José Gabriel Vera, talsmaður spænsku biskupastefnunnar, þegar skýrsla um innri rannsókn kirkjunnar var kynnt í dag. Reuters-fréttastofan segir að skýrslan byggi á framburði fórnarlamba og hún sanni hvorki sekt né sakleysi kirkjunnar manna. Nærri því allir meintu gerendurnir voru karlar, flestir þeirra prestar. Meira en 63 prósent þeirra eru látin. Flest fórnarlömbin voru einnig karlar. Þrjú af hverjum fjórum brotum áttu sér stað fyrir árið 1990. Flest þeirra áttu sér stað í skólum, prestaskólum og safnaðarheimilum. Vera sagði að kirkjuna fýsti að vita hvað fór úrskeiðis við val á prestum og þjálfun þeirra. Ætlun hennar er að uppfæra skýrsluna reglulega. Telja ekki mark takandi á rannsókn kirkjunnar El País segir að raunverulegur fjöldi fórnarlamba kirkjunnar sé mun hærri. Skýrslan nái aðeins til brota sem hafa verið skráð frá 2019, ekki þeirra sem kirkjan hafði vitneskju um fyrir það. Rannsóknir á kynferðisofbeldi kaþólskra presta og annarra starfsmanna kirkjunnar í öðrum löndum hafa leitt í ljós að það hafi verið mun útbreiddara en skýrsla spænsku kirkjunnar gefur tilefni til að ætla. Í Frakklandi ályktaði opinber nefnd að um 330.000 börn hefðu orðið fyrir kynferðisofbeldi innan kirkjunnar á árunum 1950 til 2020. Í Portúgal taldi sérfræðinganefnd að hátt í fimm þúsund manns hefðu verið misnotaðir sem börn. Embætti umboðsmanns rannsakar einnig kynferðisbrotin að ósk spænska þingsins. Fyrr á þessu ári sagðist umboðsmaður hafa safnað framburði 445 fórnarlamba og að rannsóknin héldi áfram. Ríkissaksóknari Spánar tjáði embættinu í fyrra að innri rannsókn kirkjunnar væri hlutdræg og að lítið væri hægt að byggja á henni. Biskupar kirkjunnar reyndu að halda eftir sönnunargögnum. Biskuparnir mótmæltu því, að sögn AP-fréttastofunnar.
Spánn Trúmál Kynferðisbrot innan kaþólsku kirkjunnar Kynferðisofbeldi Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Það er enginn sem verndar son okkar“ Innlent Sveddi sagður með tengsl við ítölsku mafíuna Innlent Krefjast skýringa á brotthvarfi Maríu Sigrúnar Innlent Fylgi Höllu Hrundar ekki fast í hendi Innlent Tíu kílómetrar eftir af hundrað: Gangan miklu erfiðari en hann óraði fyrir Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Hraun mjakast yfir varnargarð Innlent Halla Hrund mælist með mest fylgi allra frambjóðenda Innlent Ný gossprunga geti opnast fyrirvaralaust á næstunni Innlent Landsréttur komi fram við ákæruvaldið eins og lítið barn Innlent Fleiri fréttir Þingmaður hleypti af skoti fyrir utan skemmtistað Rýma dómshús vegna sprengjuhótunar Dómstóll fyrirskipar handtöku landbúnaðarráðherra Selenskís Ákvörðun áfrýjunardómstólsins áfall og stórt skref aftur á bak Trump líklegur til að græða á úrskurði Hæstaréttar Dómi Harvey Weinstein snúið við Tekur fyrir að hafa verið „hermaður Hitlers“ Maður á sextugsaldri sagður hafa stungið grunnskóladreng Sánchez íhugar að segja af sér vegna meintrar spillingar Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Fyrstu hergögnin eiga að berast til Úkraínu á næstu klukkustundum Segir ekki af sér þrátt fyrir njósnir aðstoðarmannsins Aðstoðarvarnarmálaráðherra ákærður fyrir mútuþægni Upptök eldsins í gömlu kauphöllinni enn ókunn Settur út af sakramentinu fyrir að stýra minningarstund um Navalní Handtóku barnunga öfgamenn eftir stunguárás í Sydney Ekki ólöglegt fyrir konur að brjóta gegn körlum Grunuð um að hafa banað tveimur börnum Vitni greinir frá ráðabruggi og lögmaður Trump fær viðvörun Öldungadeildin samþykkti 95 milljarða dala aðstoð við Úkraínu, Ísrael og Taívan Reyna að sigla um geiminn á geislum sólarinnar Lýsa yfir áhyggjum af fregnum af fjöldagröfum á Gasa Fá aftur gögn frá tæplega hálfrar aldar gömlu geimfari Umdeildur flutningur á hælisleitendum til Rúanda samþykktur Starfsmaður hægrijaðarflokks handtekinn fyrir njósnir fyrir Kína Gera alvarlegar athugasemdir við verðlaunakerfi Tik Tok Tugir handteknir á mótmælum háskólanema gegn aðgerðum Ísraels Undirbúa stærðarinnar sendingar til Úkraínu Engin sönnunargögn bendla UNRWA við árásina Sjá meira