Núverandi mönnun sé farin að ógna öryggi sjúklinga Eiður Þór Árnason skrifar 12. maí 2022 22:18 Guðbjörg Pálsdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. AÐSEND Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur gífurlegar áhyggjur af vöntun á hjúkrunarfræðingum til starfa og skorar á yfirvöld að bæta kjör og starfsumhverfi til að fjölga hjúkrunarfræðingum í heilbrigðiskerfinu.
Þetta kemur fram í ályktun félagsins sem samþykkt var einróma á aðalfundi þess á Hilton Reykjavík Nordica í kvöld. Í henni segir að tryggja þurfi nægan fjölda útskrifaðra hjúkrunarfræðinga og draga úr brottfalli þeirra úr starfi skömmu eftir útskrift. Mikilvægt sé að mönnun hjúkrunarfræðinga sé tryggð til lengri og skemmri tíma. „Sporna þarf við því að hjúkrunarfræðingar sæki í önnur störf og fá þá sem hafa horfið til annarra starfa aftur til baka.“ Þá segir félagið að tillögur að bráðnauðsynlegum úrbótum liggi fyrir í skýrslum heilbrigðisráðuneytisins frá árinu 2020 og sömuleiðis í eldri skýrslum sem innihaldi sömu tillögur. Fram kemur í tilkynningu frá FÍH að það skori á Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra að beita sér fyrir lagasetningu um mönnunarviðmið í heilbrigðiskerfinu, sambærileg þeim sem séu í gildi í helstu samanburðarlöndum. Núverandi mönnun sé farin að ógna öryggi skjólstæðinga og starfsfólks. Vilja lagabreytingar varðandi rannsókn alvarlegra atvika og aukin kaup á sjálfstæðri þjónustu „Félagið skorar á bæði heilbrigðisráðherra og Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra að leggja fram lagabreytingar í tengslum við tilkynningar, rannsókn og málsmeðferð alvarlegra atvika í heilbrigðisþjónustu þar sem hjúkrunarfræðingar og annað heilbrigðisstarfsfólk kemur við sögu. Framganga yfirvalda í garð hjúkrunarfræðinga á síðustu árum kallar á breyttan lagaramma,” segir í tilkynningunni. Sömuleiðis beinir FÍH því til heilbrigðisráðherra að tryggja greiðsluþátttöku sjúkratrygginga í heilbrigðisþjónustu sem veitt sé af hjúkrunarfræðingum á sama hátt og aðrar heilbrigðisstéttir. „Nauðsynlegt er að auka kaup hins opinbera á sjálfstæðri þjónustu hjúkrunarfræðinga til að tryggja bætt aðgengi notenda heilbrigðisþjónustunnar og auka skilvirkni í heilbrigðiskerfinu. Slíkt stuðlar að aukinni nýsköpun og hagkvæmni í heilbrigðiskerfinu ásamt nýjum þjónustuleiðum í samræmi við þarfir notenda hennar,“ segir í greinargerð ályktunarinnar. Aðalfundurinn fór fram á Hilton Reykjavík Nordica.Aðsend Útrýma þurfi kynbundnum launamun Í annarri ályktun sem samþykkt var á aðalfundinum er skorað á heilbrigðisráðherra að beita sér fyrir leiðréttingu á kynbundnum launamun á hjúkrunarfræðingum og öðrum stéttum með sambærilega menntun og ábyrgð. „Útrýma þarf kynbundnum launamun sem fram kom meðal annars í niðurstöðu Gerðardóms árið 2020. Þar segir að vísbendingar eru um að hjúkrunarfræðingar séu vanmetin kvennastétt með tilliti til launa og ábyrgðar í starfi,“ segir í greinargerð ályktunarinnar. „Í stjórnarsáttmála núverandi ríkisstjórnar segir að farið verði í aðgerðir til að draga úr kynbundnum launamun og jafnréttismál verði alltaf í forgrunni við ákvarðanatöku. Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga fer fram á að unnið verði markvisst að því að útrýma launamun sem stafar af kynskiptum vinnumarkaði og kerfisbundnu vanmati á störfum þar sem konur eru í meirihluta.“
Heilbrigðismál Stéttarfélög Tengdar fréttir Hjúkrunarfræðingar lýsa hættuástandi á Bráðamóttökunni Daglega kemur fyrir að sjúkrabílar bíði með sjúklinga á börum sem komast ekki að vegna plássleysis á Bráðamóttökunni og sjúklingum er komið fyrir í öllum skúmaskotum af sömu ástæðu. 11. október 2021 22:45 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Innlent Trump líklegur til að græða á úrskurði Hæstaréttar Erlent Ögurstund og opnunarhóf hjá frambjóðendum Innlent Útlagar spreyjaðir gylltir Innlent „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Innlent Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Innlent Framboðslistar opinberaðir eftir helgi Innlent Glæsileg þjóðbúningamessa á Hvolsvelli Innlent Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Innlent Helga Þórisdóttir komin með lágmarksfjölda meðmæla Innlent Fleiri fréttir Framboðslistar opinberaðir eftir helgi Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Glæsileg þjóðbúningamessa á Hvolsvelli Ögurstund og opnunarhóf hjá frambjóðendum Forsetaslagurinn, leit að eiganda fjármuna og rjómablíða Fjölbreytt verkefni hjá björgunarsveitum í dag Útlagar spreyjaðir gylltir Helga Þórisdóttir komin með lágmarksfjölda meðmæla Sinueldur í Reykjanesbæ Pétur Einarsson leikari látinn Kólnar á öllu landinu eftir óvenjugóðan fyrsta sumardag „Ákveðnar efasemdir um ákveðna þætti“ Fimm teravött af orku og 20 milljarðar í samgöngur Seltjarnarnesbær gengur frá sölu á Safnatröð Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Umdeilt frumvarp, íslenskan og sumarveðrið Eiríkur og Bjarni takast á um nefnd um íslenska tungu Ræða mest málefni íslenskunnar á fundum enskumælandi ráðs Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Segir borgarstjóra óttalegan vettling Vilja taka upp auðlindagjald að hætti Norðmanna „Dapurlegt“ að andstæðingar bólusetninga hafi svo mikil áhrif Stefnir í sólríkan og hlýjan sumardag fyrsta víða um land Eigendur sjókvíaeldis þurfa ekki að greiða auðlindagjald Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Veturinn sá kaldasti síðan 1999 Vill rjúfa framkvæmdastopp í orkumálum Kári Stefánsson, ákall um vaxtalækkun og hinsegin list Skemmtiferðaskip um tíu metrum frá strandi við Viðey Sjá meira
Hjúkrunarfræðingar lýsa hættuástandi á Bráðamóttökunni Daglega kemur fyrir að sjúkrabílar bíði með sjúklinga á börum sem komast ekki að vegna plássleysis á Bráðamóttökunni og sjúklingum er komið fyrir í öllum skúmaskotum af sömu ástæðu. 11. október 2021 22:45