Íhugaði að gera aðra skotárás í öðrum bæ Samúel Karl Ólason skrifar 6. júlí 2022 22:44 Robert E. Crimo mætti í dómsal í gegnum fjarfundarbúnað í dag og var beiðni hans um lausn gegn tryggingu hafnað. Ap Robert E. Crimo, sem hefur játað við yfirheyrslur að skjóta sjö manns til bana á skrúðgöngu í Highland Park á mánudaginn, íhugaði alvarlega að gera aðra skotárás í öðru ríki. Hann var vopnaður og með tuga skota en hætti við.
Higland Park er úthverfi Chicago í Illinois en eftir árásina dulbjó Crimo sig sem konu og flúði meðal almennings. Hann skildi hálfsjálfvirkan riffil af gerðinni Smith & Wesson M&P15 eftir á þakinu sem hann hóf skothríðina en var með annan sambærilegan riffil í bíl sínum og um sextíu skot. Frá þakinu skaut Crimo 83 skotum en auk þeirra sjö sem dóu eru rúmlega þrjátíu sagðir hafa særst og þar af eru einhverjir enn í alvarlegu ástandi, samkvæmt AP fréttaveitunni. Sjá einnig: Játar og á yfir höfði sér lífstíðardóm Lögreglan segir mögulegt að fjöldi látinna muni hækka og þykir sömuleiðis líklegt að Crimo standi frammi fyrir fleiri ákærum. Meðal annars hafa saksóknarar sagt að hann verði ákærður fyrir morðtilraunir og árásir vegna allra þeirra sem særðust eða slösuðust. „Það eru mun, mun fleiri ákærur á leiðinni,“ hefur AP eftir Eric Rinehart, saksóknara í Lake-sýslu. Kom að öðrum viðburði og íhugaði árás Lögreglan segir Crimo hafa keyrt til Wisconsin eftir árásina í Highland Park og þar hafi hann íhugað að gera aðra skotárás á viðburð sem verið var að halda í bænum Middleton vegna þjóðhátíðardags Bandaríkjanna. Talsmaður lögreglunnar segir Crimo hafa viðurkennt að hann hefði „íhugað það alvarlega“ en hætt við þar sem hann hefði ekkert getað undirbúið sig. Hann sneri því aftur til Illinois þar sem lögregluþjónn sá hann og var Crimo handtekinn eftir stutta eftirför. Í gær sagðist lögmaður ætla að verja Crimo og að hann myndi lýsa yfir sakleysi sínu. Sá lögmaður hætti þó við í dag og var Crimo útvegaður verjandi. Eins og áður segir hefur lögreglan gefið út að Crimo hafi játað brot sín við yfirheyrslu. Hótaði að „drepa alla“ Crimo átti fimm skotvopn og hafði hann keypt þau með löglegum hætti á undanförnu ári. Spurningar eru uppi um hvernig það megi vera, miðað við það að árið 2019 voru lögregluþjónar kallaðir að heimil Crimo og foreldra hans eftir að fjölskyldumeðlimur hringdi á lögregluna. Sá sagði Crimo hafa hótað því að „drepa alla“. Lögregluþjónar gerðu sextán hnífa upptæka, auk eins rýtings og sverðs. Hann er ekki talinn hafa átt skotvopn á þeim tíma en þetta var í september 2019. Fyrr sama ár voru lögregluþjónar kallaðir til vegna sjálfsvígstilraunar Crimo. Það var svo í desember 2019 sem Crimo sótti um skotvopnaleyfi, með stuðningi föður síns. Lögreglan segir að á þeim tíma hafi ekki þótt tilefni til að hafna umsókninni. Þetta er eitt af nokkrum tilfellum þar sem ungir menn sem sýndu skýr ummerki vandræða með geðheilsu, gátu keypt sér riffla og framið fjöldamorð í Bandaríkjunum. Rinehart segir að vel komi til greina að ákæra foreldra Crimo en það muni velta á framgangi rannsóknar lögreglunnar. Enn liggur ekki fyrir hvert tilefni árásarinnar var. Hér má sjá sjónvarpsfrétt héraðsmiðilsins ABC7 Chicago um þá sem dóu í árásinni.
Bandaríkin Skotárásir í Bandaríkjunum Tengdar fréttir Búið að handtaka árásarmanninn Lögregluþjónar í Highland Park, úthverfi Chicago í Bandaríkjunum, hafa handtekið manninn sem hóf skothríð á skrúðgöngu í bænum í dag. Maðurinn skaut minnst sex til bana og særði 24. 4. júlí 2022 23:50 Mannskæð skotárás á skrúðgöngu í Bandaríkjunum Minnst sex liggja í valnum og minnst 24 eru særðir eftir að maður hóf skothríð á skrúðgöngu í úthverfi Chicago í Bandaríkjunum. Árásarmaðurinn gengur enn laus og er lögreglan með mikinn viðbúnað á svæðinu. 4. júlí 2022 17:56 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Innlent Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Innlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu Innlent Myndband sýnir árás Diddy Erlent „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Innlent „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Innlent Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Innlent Fleiri fréttir Myndband sýnir árás Diddy Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Þorir að veðja bjór á að hún verði áfram forsætisráðherra Lokað á grein um barnadráp í Bretlandi Drápu fangaverði og hjálpuðu fanga að strjúka Sjá meira
Búið að handtaka árásarmanninn Lögregluþjónar í Highland Park, úthverfi Chicago í Bandaríkjunum, hafa handtekið manninn sem hóf skothríð á skrúðgöngu í bænum í dag. Maðurinn skaut minnst sex til bana og særði 24. 4. júlí 2022 23:50
Mannskæð skotárás á skrúðgöngu í Bandaríkjunum Minnst sex liggja í valnum og minnst 24 eru særðir eftir að maður hóf skothríð á skrúðgöngu í úthverfi Chicago í Bandaríkjunum. Árásarmaðurinn gengur enn laus og er lögreglan með mikinn viðbúnað á svæðinu. 4. júlí 2022 17:56