Verðið lækkaði um rúman þriðjung til að laða að Íslendinga

Ferðaþjónufyrirtæki lækkuðu verð á þjónustu sinni um 35 prósent í sumar til að laða að Íslendinga síðasta sumar, en aðeins helmingur þeirra tók á móti Ferðagjöf stjórnvalda.

Einungis helmingur ferðaþjónustufyrirtækja nýtti sér Ferðagjöfina
Einungis helmingur ferðaþjónustufyrirtækja nýtti sér Ferðagjöfina
Auglýsing

Átta af hverjum tíu fyr­ir­tækjum í ferða­þjón­ust­unni gripu til aðgerða til að laða að sér Íslend­inga síð­asta sum­ar. Þó tók aðeins helm­ingur þeirra á móti Ferða­gjöf stjórn­valda, en verð á þjón­ustu fyr­ir­tækj­anna lækk­aði um 35 pró­sent. Þetta kemur fram í nið­ur­stöðum könn­unar Gallup fyrir Ferða­mála­stofu um rekstur ferða­þjón­ust­unnar á liðnu sumri og hag­nýt­ingu fyr­ir­tækja á stuðn­ings­að­gerðum stjórn­valda. 

65 pró­senta sam­dráttur

Sam­kvæmt nið­ur­stöð­unum voru Íslend­ingar 57 pró­sent af heild­ar­við­skipta­vinum fyr­ir­tækj­anna og er það hlut­fall rúm­lega tvö­falt hærra en í fyrra. Þrátt fyrir það dróst heild­ar­fjöldi við­skipta­vina saman hjá miklum meiri­hluta fyr­ir­tækj­anna og velta dróst saman að jafn­aði um 65 pró­sent milli ára. 

Til að bregð­ast við sam­drætt­inum tóku flest ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki til sér­tækra aðgerða til að laða að Íslend­inga í sum­ar. Vin­sælasta úrræði þeirra var að taka á móti Ferða­gjöf stjórn­valda, sem var fimm þús­und króna inn­eign sem Íslend­ingar gátu nýtt sér, en 52 pró­sent fyr­ir­tækj­anna tóku við slíkri inn­eign. Hlut­fall fyr­ir­tækja sem tóku á móti ferða­gjöf­inni var hæst í gisti­þjón­ustu, þar sem 61 pró­sent gisti­staða nýttu sér úrræð­ið. Hlut­fallið var lægst á meðal sam­göngu­fyr­ir­tækja í ferða­þjón­ust­unni, en þar tóku aðeins 23 pró­sent fyr­ir­tækja við gjöf­inn­i. 

Auglýsing

Gisti­staðir lækk­uðu meira

 Til við­bótar við að taka við ferða­gjöf­inni lækk­aði tæpur helm­ingur allra ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækja verð á þjón­ustu sinni, en verð­lækk­unin nam að með­al­tali 35 pró­sent. Skýran mun má þar sjá á milli gisti­staða og ann­arra ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækja, þar sem verð­lækk­an­irnar voru mun algeng­ari hjá fyrr­nefnda hópnum en þeim seinni. Rúm­lega þrír af hverjum fjórum gisti­stöðum lækk­uðu verðið á þjón­ustu sinni, á meðan aðeins einn af hverjum fjórum veit­inga­stöðum gerðu það. Að með­al­tali lækk­aði verð á gisti­stöðum um rúm 41 pró­sent.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent