„Aldrei draumastaða að missa lykilmenn“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 9. apríl 2021 14:01 Þorsteinn Halldórsson tók við landsliðinu í lok janúar á þessu ári. Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu mætir Ítalíu í tveim vináttulandsleikjum á næstu dögum. Báðir leikirnir eru spilaðir á Ítalíu, sá fyrri á morgun klukkan 14:00, en sá seinni á þriðjudaginn. Þorsteinn Halldórsson, nýráðinn þjálfari íslenska liðsins sat fyrir svörum á blaðamannafundi í dag. „
Undirbúningurinn hefur gengið heilt yfir vel,“ sagði Halldór á fundinum. „Við höfum verið að rúlla í gegnum hlut og þetta hefur gengið fínt og ekki yfir neinu að kvarta og allar heilar.“ Sara Björk Gunnarsdóttir, fyrirliði liðsins, verður ekki með vegna meiðsla en Þorsteinn vildi ekki gefa upp hver myndi bera fyrirliðabandið í leiknum á morgun. „Það er ekki búið að tilkynna það ennþá. Þið fáið ekki að vita það fyrstir,“ sagði Þorsteinn léttur. Þorsteinn sagðist ekki geta sagt mikið um mótherjana en ítalska liðið valdi 33 manna hóp. „Í sjálfu sér vitum við lítið um liðið eða hvaða leikmenn eru að fara að spila á morgun. Þau völdu 33 manna hóp þannig að við gerum okkur ekki alveg grein fyrir því hvaða hóp þær nota á morgun.“ „Eins og lagt er upp með þá er þeirra sterkasti hópur að fara að spila á þriðjudaginn, þannig að maður gerir ráð fyrir að leikmenn sem eru seinna í goggunarröðinni séu að fara að spila á morgun. Það hefur svo sem ekkert verið rætt eða tilkynnt neitt í kringum það,“ sagði Þorsteinn. Aðspurður segist Þorsteinn sjálfur ætla að rúlla sínu liði vel. „Við munum rúlla liðinu vel. Allir útileikmennirnir munu koma til með að spila og við munum rúlla þessu töluvert mikið. Við munum gera margar breytingar milli leikja og erum bara að skoða leikmenn og hvernir þeir passa inn í það sem við erum að gera.“ Þorsteinn segir að uppleggið í leikjunum verði að reyna að halda boltanum eins mikið og hægt er. „Við munum reyna að halda boltanum eins mikið og við getum og reyna að vera skapandi í leik okkar. Eins og ég segi þá gerir maður sér ekki alveg grein fyrir því hvaða liði þær stilla upp og hversu sterkt lið þetta er. Þetta verður pottþétt lið sem er á sama getustigi og við þannig að þetta verður hörkuleikur.“ „Við þurfum að vera taktísk og öguð í okkar leik og förum inn í leikinn með ákveðna hugmyndafræði og við munum reyna að koma þeim hugmyndum í framkvæmd í leiknum.“ Eins og áður segir verður Sara Björk ekki með í leiknum. Dagný Brynjarsdóttir verður einnig utan hóps eftir að hún greindist með veiruna. Það reynir því á aðra leikmenn á miðsvæðinu. „Þetta gefur öðrum leikmönnum tækifæri til að sýna hvað í þeim býr og kannski taka á sig leiðtogahlutverk. Það verður spennandi að sjá hvernig þær tækla það. Það er auðvitað alltaf missir af góðum leikmönnum, en við teljum okkur vera með leikmenn til að stýra leik okkar á miðsvæðinu og óttumst það ekki neitt.“ „Það er aldrei draumastaða að missa lykilleikmenn en þetta er raunveruleikinn sem við búim við í dag,“ sagði Þorsteinn að lokum.
EM 2021 í Englandi Tengdar fréttir Stöð 2 Sport sýnir leik Íslands og Ítalíu á þriðjudaginn Vináttulandsleikur Íslands og Ítalíu á þriðjudaginn verður sýndur beint á Stöð 2 Sport. Þetta er seinni vináttulandsleikur liðanna af tveimur. 9. apríl 2021 13:30 „Þakka guði að vera úti í Svíþjóð þar sem allt er frekar afslappað“ Landsliðskonan Hallbera Gísladóttir segist vera sátt að vera úti í Svíþjóð á þessum tíma frekar en á Íslandi þar sem æfingar og keppni í íþróttum eru bannaðar. 8. apríl 2021 13:02 Blikaáherslur í landsliðinu Alexandra Jóhannsdóttir er ekki ókunn þeim áherslum sem Þorsteinn Halldórsson hefur komið með inn í íslenska landsliðið. 8. apríl 2021 16:00 Mest lesið Hefur fest rætur á Íslandi eftir örlagaríkt símtal Íslenski boltinn Jón Arnar grét það ekki að sjá Daníel slá þrjátíu ára Íslandsmet sitt Sport Gamli Íslandsvinurinn kraftaverkamaður í Mainz Fótbolti Uppgjörið: Vestri-Víkingur 1-4 | Öruggur meistarasigur gegn nýliðunum Íslenski boltinn Klopp: Ulla konan mín mun segja mér hvað við erum að fara að gera Enski boltinn Meistararnir úr leik eftir stærstu endurkomu sögunnar Körfubolti Guardiola um framtíðina: Nær því að hætta en vera áfram Enski boltinn Endurkoma í lagi hjá BKG og elleftu heimsleikarnir í röð Sport Kvaddi stuðningsmennina og kenndi þeim lag um nýja stjórann Fótbolti Mark Quansah fyrir Liverpool bætti markametið Enski boltinn Fleiri fréttir Jafnmörg mörk og rauð spjöld í Vestmannaeyjum Í beinni: KA-Fylkir | Akureyringar í leit að fyrsta deildarsigrinum Dagný framlengir samning sinn við West Ham Hildur, María og Lára urðu að sætta sig við silfur í bikarúrslitaleiknum Fékk rautt spjald fyrir brot á Sveindísi sem fór meidd af velli Draumainnkoma Sævars Atla breytti leiknum Leik lokið: Vestri-Víkingur 1-4 | Öruggur meistarasigur gegn nýliðunum Mikel Arteta missti af möguleikanum Klopp: Ulla konan mín mun segja mér hvað við erum að fara að gera 23 ára og búinn að vinna deildina oftar en Rooney, Agüero og Terry Besiktas segist vera að ræða við Mourinho „Rúnar skilur fótbolta og skilur fólk“ Guardiola um framtíðina: Nær því að hætta en vera áfram Mark Quansah fyrir Liverpool bætti markametið Gamli Íslandsvinurinn kraftaverkamaður í Mainz Hefur fest rætur á Íslandi eftir örlagaríkt símtal „Við erum búnir að skrifa okkur í sögubækurnar“ Kristján Guðmundsson: Aldrei brot og mjög slök frammistaða hjá dómurum leiksins Hákon skoraði en Lille er á leið í umspil Kvaddi stuðningsmennina og kenndi þeim lag um nýja stjórann Lærisveinar Freys einum leik frá því að takast hið ómögulega Meistararnir köstuðu frá sér þriggja marka forystu Uppgjörið og viðtöl: Stjarnan - Breiðablik 3-4 | Rangur dómur réði úrslitum í framlengingu Albert kom inn af bekknum er Genoa tapaði gegn tíu Rómverjum Valur og Þróttur flugu inn í átta liða úrslit Þetta gerðist í lokaumferðinni í enska | City meistari og Jóhann Berg kvaddi Manchester City Englandsmeistari fjórða árið í röð United skemmdi kveðjupartý De Zerbi Skytturnar gerðu sitt en horfa samt á eftir titlinum Klopp kvaddi með sigri Sjá meira
Stöð 2 Sport sýnir leik Íslands og Ítalíu á þriðjudaginn Vináttulandsleikur Íslands og Ítalíu á þriðjudaginn verður sýndur beint á Stöð 2 Sport. Þetta er seinni vináttulandsleikur liðanna af tveimur. 9. apríl 2021 13:30
„Þakka guði að vera úti í Svíþjóð þar sem allt er frekar afslappað“ Landsliðskonan Hallbera Gísladóttir segist vera sátt að vera úti í Svíþjóð á þessum tíma frekar en á Íslandi þar sem æfingar og keppni í íþróttum eru bannaðar. 8. apríl 2021 13:02
Blikaáherslur í landsliðinu Alexandra Jóhannsdóttir er ekki ókunn þeim áherslum sem Þorsteinn Halldórsson hefur komið með inn í íslenska landsliðið. 8. apríl 2021 16:00