Fella níu aspir á Austurvegi á Selfossi: „Það er eðlilegt að fólki bregði“ Atli Ísleifsson skrifar 14. september 2021 14:18 Um er að ræða níu aspir í beit á Austurveginum, næst gangbrautunum við Krónuna og svo Kaffi Krús. Vísir/Magnús Hlynur Níu tignarlegar aspir verða felldar á Austurvegi á Selfossi í kvöld. Markmiðið með þessu er að auka umferðaröryggi í götunni. Bæjarstjóri segir einhverja óánægða með ákvörðunina og að eðlilegt sé að einhverjum bregði við fréttir af framkvæmdinni.
Gísli Halldór Halldórsson, bæjarstjóri Árborgar, segir í samtali við Vísi að sveitarstjórn hafi fengið bréf frá lögreglu í sumar sem tekið var fyrir á fundi umhverfisnefndar í júní. Þar var lýst yfir áhyggjum af veru aspanna í kringum gangbrautir á Austurveginum og segir meðal annars að aspirnar skerði vegsýn fyrir ökumenn stórra ökutækja. Mjög alvarleg hætta Bæjarstjórinn segir að umhverfisnefnd bæjarins hafi tekið undir þær áhyggjur. „Síðan fórum ég og sviðsstjóri mannvirkja- og umhverfissviðs á stöðufund með Vegagerðinni á Suðurlandi fyrir um þremur vikum og þar gerðu þeir þessa sömu athugasemd. Þeir töldu þetta vera mjög alvarleg hætta sem stafaði af þessu fyrir gangandi vegfarendur þar sem þetta byrgir svo sýn á gangbrautirnar. Við ákváðum á þeim fundi – ég og sviðsstjóri – að þær yrðu að fara. Það er ekkert annað í stöðunni en að fella þær úr því að það þarf. Þá viljum við ekki draga það neitt frekar.“ Skiptar skoðanir og fólki bregður Gísli Halldór segir að ekki eigi að fella allar aspirnar á Austurveginum. „Þetta eru níu aspir í beit, næst gangbrautunum við Krónuna og svo Kaffi Krús.“ Hann segist hafa orðið var við einhverja óánægju með ákvörðunina en að um sé að ræða nauðsynlega framkvæmd til að tryggja umferðaröryggi. „Fólki bregður aðallega. Það áttu ekki allir von á þessu og það er eðlilegt að fólki bregði þegar verður svona breyting. Það er auðvitað tignarlegt að sjá þessar aspir þarna. En við bendum við fólki náttúrulega á það að á næstu árum munum við taka við Austurveginum af Vegagerðinni, þegar ný Ölfusárbrú kemur. Hann mun þá taka miklum breytingum og verður fegurðin höfð í fyrirrúmi og vafalaust mun trjágróður leika þar hlutverk. Þetta verður klárlega fallegasta verslunar- og þjónustustræti landsins.“ Austurveginum verður lokað um klukkan 20:30 í kvöld vegna niðurfellinganna og umferð beint um hjáleið.
Árborg Umferðaröryggi Samgöngur Skógrækt og landgræðsla Aspir felldar á Austurvegi Ný Ölfusárbrú Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið María Sigrún látin fara úr Kveik Innlent Ætlar í aðra undirskriftasöfnun Innlent Svona var stemmningin á lokaspretti forsetaefnanna í Hörpu Innlent Halla Hrund mælist með mest fylgi allra frambjóðenda Innlent Svona var Pallborðið með Arnari Þór, Ásdísi Rán og Ástþóri Innlent „Ef ég get flogið þremur gerðum af þyrlum þá get ég tekið ákvörðun fyrir þjóðina“ Innlent Dregur framboðið til baka Innlent „Ísdrottningin myndi bráðna ef hér kæmi kjarnorkusprengja“ Innlent Mikil tíðindi í glænýrri könnun Innlent „Þessi ákvörðun var ekki tekin í Valhöll“ Innlent Fleiri fréttir Mannasættir sem óttist ekki að standa í fæturnar Mótmælendur fengu óvæntan liðstyrk frá Hollywood Ráðherra reiðubúin að vinna með atvinnuveganefnd að breytingum Vill skipa í ríkissjórn eftir eigin höfði Halla Hrund mælist með mest fylgi allra frambjóðenda Mikil tíðindi í glænýrri könnun Ástþór sannfærður um að verða sjöundi forsetinn Refsing fyrir að nauðga stjúpdóttur æskuvinar þyngd Ætlar í aðra undirskriftasöfnun Hjúkrunarfræðingurinn ekki laus allra mála enn Trúnaðarsamtöl við forsætisráðherra lykilatriði Sprakk úr hlátri „Ísdrottningin myndi bráðna ef hér kæmi kjarnorkusprengja“ Með hundruð sjálfboðaliða í liði sínu Samskiptaleysi meðal lögreglumanna olli því að fólk var sektað Verði ekki meðvirk frekar en Ólafur Ragnar Rifjaði upp þegar forsetinn bjargaði landinu Skemmdarvargar á eftir útilistaverkum eftir Einar Jónsson Krafturinn í gosinu gæti aukist verulega haldi kvikusöfnun áfram Þrettánda nafnið bætist við Fimm af tólf skiluðu einungis rafrænum meðmælum Gylfi leiðir samhæfingu vegna Grindavíkur María Sigrún látin fara úr Kveik Viktor stal senunni: Hefði ekki haft tíma til að safna ef hann væri í vinnu Forsetaefni streymdu í Hörpu Svona var Pallborðið með Arnari Þór, Ásdísi Rán og Ástþóri „Ef ég get flogið þremur gerðum af þyrlum þá get ég tekið ákvörðun fyrir þjóðina“ Rekin vinalega á brott en vonast til að fá að vera áfram „Þessi ákvörðun var ekki tekin í Valhöll“ „Óskiljanlegt að menn skuli leggjast svona lágt“ Sjá meira