Solskjær segir Ronaldo vera að gera allt sem hann geti Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. október 2021 16:01 Cristiano Ronaldo spilaði illa í síðasta leik en það er von á einhverju frá honum í kvöld. EPA-EFE/Peter Powell Ef það eru einhverjir sem hafa fengið á sig meiri gagnrýni en aðrir eftir slæmt gengi Manchester United að undanförnu þá eru það knattspyrnustjórinn Ole Gunnar Solskjær og súperstjarnan Cristiano Ronaldo.
Ronaldo hefur ekki skorað í þremur deildarleikjum í röð og Manchester United hefur aðeins náði í eitt stig samanlagt út úr þeim. Ronaldo fann sig engan veginn í síðasta leik á móti Leicester City sem tapaðist 4-2 um síðustu helgi. Eftir hann voru sumir að gagnrýna Ronaldo fyrir að vera ekki nógu duglegan í pressunni. Ole Gunnar Solskjær ræddi þetta á blaðamannafund fyrir Meistaradeildarleikinn á móti Atlanta í kvöld. Hann kom sínum manni til varnar. „Við erum með ellefu leikmenn inn á vellinum og hver þeirra hefur mismunandi hlutverk og ábyrgð á ólíkum hlutum. Við setjum lið út á völlinn sem við trúum að muni færa okkur sigur í þeim leik,“ sagði Ole Gunnar Solskjær. „Við unnum ekki á móti Leicester og þá kemur alltaf gagnrýni. Cristiano er algjör toppleikmaður og við vitum hvað hann getur gert fyrir okkur. Hann er að gera allt sem hann getur til að hjálpa liðinu,“ sagði Solskjær. Sky Sports tók líka saman tölfræði um hlaup og spretti Ronaldo og þar kemur í ljós að hann er með svipaðar tölur og bestu leikmenn ensku úrvalsdeildarinnar í hans stöðu. Ronaldo hleypur 9,3 kílómetra á hverjar níutíu mínútur og tekur 15,1 spretti á sama tíma. Ronaldo er að hlaupa næstum því jafnmikið og Mo Salah hjá Liverpool og meira en Romelu Lukaku hjá Chelsea. Hann er líka að taka fleiri spretti en Harry Kane hjá Tottenham og Lukaku. Það má sjá ummæli Solskjær og þessa tölfræði hér fyrir neðan. "He's doing everything he can do to help the team." Ole Gunnar Solskjaer defends Cristiano Ronaldo after the striker received criticism for "not running" pic.twitter.com/9LxCpHvN88— Sky Sports Premier League (@SkySportsPL) October 20, 2021 Leikur Manchester United og Atalanta verður sýndur beint á Stöð 2 Sport 2 í kvöld og hefst útsendingin klukkan 18.50. Á undan verður upphitun fyrir Meistaradeildarkvöldið frá klukkan 18.15 og eftir leikinn verða Meistaradeildarmörkin á dagskrá á Stöð 2 Sport 2.
Enski boltinn Meistaradeild Evrópu Mest lesið Harma auglýsingar á gólfi og vilja banna þær eftir meiðsli Martins Körfubolti Segir aðeins þau hlutlausu hafa skemmt sér yfir fótbolta Ten Hag Enski boltinn Rangnick hafnar Bayern München Fótbolti Drakk átta bjóra fyrir beina útsendingu Fótbolti Fengið nóg af því að vera ruslakista fyrir viðbjóð frá fólki Körfubolti Veikur og meiddur Doncic fór á kostum og Boston flaug áfram Körfubolti Ómar Ingi skaut Evrópumeisturunum áfram eftir vítakeppni Handbolti FH fékk tvær sektir frá KSÍ Íslenski boltinn Skúrkurinn endaði sem hetjan Íslenski boltinn Bucks í sögubækurnar eftir sigurinn á Pacers Körfubolti Fleiri fréttir Tekur fyrir að starfsfólk Manchester United vinni að heiman Segir aðeins þau hlutlausu hafa skemmt sér yfir fótbolta Ten Hag Sextán ára og skoraði hjá Arsenal eins og Rooney forðum „Mo Salah sá sem að gekk of langt“ Manchester-liðin og Aston Villa á móti því að eyðsluþak verði sett á Nær allir leikmenn Man Utd til sölu fyrir rétt verð Thiago Silva hættir hjá Chelsea en vonast til að synirnir spili þar áfram Hundraðasti sigur Arteta kom gegn erkifjendunum: „Stoltur af leikmönnunum“ „Ekki boðlegt á þessu getustigi“ Fowler hjálpaði Man City að styrkja stöðu sína á toppnum Meistarar Man City halda í við topplið Arsenal Bournemouth fór illa með Brighton Arsenal vann kaflaskiptan Norður-Lundúnaslag Segir að VAR skaði ímynd enska boltans Stendur með Salah og skilur pirring hans Ten Hag segir sitt lið þróttmikið og eitt af þeim skemmtilegri í deildinni Chelsea hjálpaði Tottenham með því að ná í stig gegn Villa Klopp: Verð hamingjusamur ef rétt ákvörðun er tekin Newcastle setti met þegar það skaut Sheffield niður um deild Enn ein vonbrigðin fyrir United Salah eftir rifrildið við Klopp: „Ef ég tala mun allt loga“ Klopp og Salah rifust á hliðarlínunni Antonio eyðilagði endurkomu Rauða hersins Biðst afsökunar á að hafa rætt við West Ham Arteta hefur beðið Wenger um ráð hvernig eigi að verða meistari Ten Hag bannaði þremur fjölmiðlum að spyrja spurninga Leicester í úrvalsdeildina eftir rassskellingu Leeds Stólpagrín gert að Terry vegna stjörnustæla hans Liverpool nær samkomulagi um Slot Leikmaður Newcastle tók meirapróf Sjá meira