Simmi Vill býður fyrrverandi eiginkonu sinni í mat á jólunum Stefán Árni Pálsson skrifar 4. desember 2020 10:31 Sigmar lítur á fyrrverandi eiginkonu sína sem fjölskyldumeðlim. Vala Matt leit við hjá athafnarmanninum Sigmari Vilhjálmssyni á dögunum en hann segir að mikilvægt sé við skilnað að foreldrar reyni að halda góðum samskiptum sín á milli, barnanna vegna.
Hann mun bjóða fyrrverandi eiginkonu sinni og barnsmóður í mat á aðfangadag og synirnir verða með. Sigmar segir að þó fólk sé skilið þurfi sambandið ekki að vera neikvætt og barnanna vegna skipti miklu máli að öllum komi vel saman. „Það er eitthvað sem fólk ætti að íhuga sem tekur upp á því að skilja. Að sammælast um að börnin séu í forgangi af því að nota börnin í einhverskonar deilum er ekki fallegur leikur. Þeir sem gera það átta sig ekki á því að þegar börnin verða eldri og þau átta sig á því að þá kemur að skuldadögum,“ segir Sigmar og heldur áfram. „Þó að við séum ekkert endilega það sammála að við getum endilega verið áfram saman þá erum við samt sammála um velferð barnanna okkar. Það finnst mér mikilvægt og við fullorðna fólkið séum í raun og veru fullorðna fólkið í þessum samskiptum. Ég er bara mjög lánsamur með það að það gengur upp.“ Hann segir að drengirnir búi í viku í senn hjá báðum foreldrum. „Við höfum haft það þannig að við skiptum jólunum og áramótunum á milli en núna er náttúrulega Covid og þetta eru jólin mín þannig að ég bauð barnsmóður minni að vera bara hérna með okkur. Við verðum bara saman á jólunum. Ég hef stundum sagt það í umræðunni um skilnað að það er alveg sama hver kæmi inn í líf mitt eða hvors annars, við erum alltaf hluti af hvort öðru. Þetta er bara fjölskyldumeðlimur, hún er barnsmóðir mín og það er ekkert hægt að fara í þá skó.“ Sigmar var gestur Einkalífsins í síðustu viku þar sem hann fór um víðan völl og ræddi um feril hans í fjölmiðlum, veitingarekstur, fráfall föður síns, skilnaðinn við barnsmóður sína og erfið málaferli við fyrrum viðskiptafélaga og margt fleira.
Ísland í dag Jól Mest lesið „Kveiktum næstum í öllu sumarbústaðalandinu“ Lífið Mikið fjör á opnun kosningaskrifstofu Gnarr Lífið Engir palestínskir fánar í Eurovision-höllinni Lífið Sjarmerandi og seiðandi á sjötugsaldri Lífið Sagan á bak við djarft listaverk Ásdísar Ránar Lífið Óstundvísi Steina sögð kosta tugi milljóna dollara Lífið Seiðandi glæsikvendi á lausu Lífið „Nútíminn er trunta“ Lífið Halda samstöðutónleika á sama tíma og Ísland keppir í Eurovision Lífið Langþráður draumur Völu Eiríks rættist Lífið Fleiri fréttir Hljómborðsleikari ELO fallinn frá Engir palestínskir fánar í Eurovision-höllinni Mikið fjör á opnun kosningaskrifstofu Gnarr Sjarmerandi og seiðandi á sjötugsaldri „Kveiktum næstum í öllu sumarbústaðalandinu“ „Nútíminn er trunta“ Sagan á bak við djarft listaverk Ásdísar Ránar Rithöfundurinn Paul Auster er látinn „Eurovision mamman“ með gleði og kærleika að vopni Múgur og margmenni fylgdust með ótrúlegu ostakúluáti „Hin raunverulegu stólaskipti fóru fram í dag“ Óstundvísi Steina sögð kosta tugi milljóna dollara Gerða og glæsilegar gellur á Edition Swing og hópkynlíf fyrir byrjendur! Snorri og Harpa selja á Njálsgötu Halda samstöðutónleika á sama tíma og Ísland keppir í Eurovision Una Torfa negldi slagara með Fleetwood Mac Maikai-hjónin eignuðust stúlku Bitcoin fjárfestar gerðu sér glaðan dag í Grósku Hvernig á að kenna hundi að rekja spor og slaka á Disneydraumurinn varð loks að veruleika Langþráður draumur Völu Eiríks rættist Álfa- og jólahúsið í Laugardalnum heyrir sögunni til Draumur Katrínar Eddu og Markúsar verður að veruleika Trítaði sig og fékk sér Teslu: „Hvað ertu með í laun eiginlega?“ Hönnunarhæð Karinar í Nola til sölu Baldurs og Felix-fáni falur Menningarunnendur nutu veðurblíðunnar í miðborginni Andstaða frá Íslandi og vera Ísraelsmanna litar keppnina í ár Allt það besta úr þáttaröðinni Öll þessi ár Sjá meira