Fótbolti

Grátklökkur Iniesta missti samninginn en ætlar ekki að hætta

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Andres Iniesta hættir að spila með Vissel Kobe á miðju tímabili.
Andres Iniesta hættir að spila með Vissel Kobe á miðju tímabili. AP/Kyodo News

Andrés Iniesta hélt áfram að spila fótbolta þegar Barcelona tíminn var á enda og hann ætlar einnig að halda áfram að spila þótt að hann hafi misst samning sinn hjá japanska félaginu Vissel Kobe.

Iniesta hélt blaðamannafund þar sem tilkynnt var að hann hafi komist að samkomulagi við félagið um að segja upp samningnum.

Tímasetningin er sérstök enda er tímabilið í fullum gangi.

Iniesta er orðinn 39 ára gamall og hefur spilað með japanska félaginu frá 2018.

Spænski miðjumaðurinn, sem var lengi í hópi þeirra bestu í heimi og tryggði spænska landsliðinu heimsmeistaratitilinn 2010, var grátklökkur á blaðamannafundinum.

„Ég held að við höfum alltaf séð fyrir okkur að ég myndi enda feril minn hér. Það var ósk okkar allra,“ sagði Andrés Iniesta og vísar þá í fjölskyldu sína.

Hiroshi Mikitani, eigandi Vissel Kobe, var líka á blaðamannafundinum. Það hefur stefnt í þetta þar sem Iniesta hefur lítið spilað með liðinu á þessu ári.

Iniesta spilaði 133 leiki fyrir Vissel Kobe og var með 26 mörk og 25 stoðsendingar í þeim. Hann hefur aftur á móti aðeins spilað í samtals 90 mínútur á árinu 2023. Spánverjinn ætlar samt ekki að hætta.

Sá spænski hefur verið mikið á bekknum eða utan hóps á tímabilinu og ekki komist í byrjunarliðið í einum leik. Einu leikir hans í deildinni eru þrír leikir þar sem hann kom inn á sem varamaður undir lok leiks.

„Ég mun halda áfram að spila. Ég er spenntur og er tilbúinn að halda áfram. Þegar við lokum þessum hluta ferilsins þá verðum við að bíða og sjá hvaða tækifæri bjóðast,“ sagði Iniesta.

Hann telur ekki líkur á því að hann endurnýi kynnin við Barcelona þar sem hans félagi á miðjunni í mörg ár, Xavi, ræður nú ríkjum.

„Eins og ég hef sagt mörgum sinnum þá myndi ég elska að snúa aftur til Barcelona á einhverjum tímapunkti í mínu lífi en ég held að það sé enn langt í það. Fyrst og fremst þá vonast ég til þess að Xavi verði þjálfarinn í mörg ár því það væru góðar fréttir fyrir fótboltann,“ sagði Iniesta.

Iniesta þurfti að þurrka tárin margoft á blaðamannafundinum alveg eins og þegar hann kvaddi Barcelona á sínum tíma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×