fbpx
Sunnudagur 19.maí 2024
Fréttir

Arkitektar í hár saman – Þurfa að greiða miskabætur vegna myndbirtinga á heimasíðu og Facebook

Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 15. mars 2023 14:47

Héraðsdómur Reykjavíkur. Mynd: Sigtryggur Ari

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Arkitektastofan UNDRA hefur verið dæmd til að taka niður af heimasíðu sinni og Facebook ýmsar ljósmyndir af byggingum í Reykjavík að viðlögðum dagsektum upp á 10.000 krónur fyrir hverja myndbirtingu. Auk þess þarf stofan að greiða miskabætur og málskostnað vegna þeirra myndbirtinga sem þegar hafa átt sér stað.

Dómur þessa efnis var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. UNDRA þarf að borga arkitektinum Pálmari Kristmundssyni  og stofunni PK arkitektum 400 þúsund krónur í miskabætur og tvær milljónir króna í málskostnað. Málið er því orðið arkitektastofunni mjög dýrt og verður enn dýrara ef þeir láta ekki af umræddum myndbirtingum.

Forsaga málsins er sú að stofnendur UNDRA, sem eru þrír talsins, eru allir fyrrverandi starfsmenn PK arkitekta sem Pálmar Kristmundsson stofnaði. Hönnun umræddra bygginga var samstarfsverkefni á stofunni PK arkitektar og öðlaðist stofan höfundarrétt yfir þeim sem helst þar eftir að arkitektarnir þrír létu af störfum. Dómari féllst að öllu leyti á málatilbúnað PK arkitekta og Pálmars og var talið hafið yfir vafa að þeir ættu höfundarréttinn að verkunum óskoraðan. Gildi þá einu þó að arkitektarnir þrír hafi komið að hönnun verkanna og eigi hlutdeild í henni.

Byggingarnar sem um ræðir eru eftirfarandi: Bygging T4 á Hafnartorgi í Reykjavík, Norðurbakki 7–9 í Hafnarfirði, Laugavegur 4–6 í Reykjavík, Lyngháls 4 í Reykjavík, Bygging Alvotech að Sæmundargötu 15–19 í Reykjavík, og bygging H2 á Höfðatorgi, Katrínartúni 4 í Reykjavík.

Sjá dóm Héraðsdóms Reykjavíkur

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Umdeild hinsta ósk hennar verður uppfyllt – Fær að deyja innan fárra vikna

Umdeild hinsta ósk hennar verður uppfyllt – Fær að deyja innan fárra vikna
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þorvaldur var í bátnum sem hvolfdi: „Þetta gerðist allt í einu“

Þorvaldur var í bátnum sem hvolfdi: „Þetta gerðist allt í einu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Líkamsræktarstöð hirti ekki um að skipta út 10 ára gömlum ströppum sem endaði með ósköpum

Líkamsræktarstöð hirti ekki um að skipta út 10 ára gömlum ströppum sem endaði með ósköpum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segir gjaldskyldu vegna nagladekkja ekki í skoðun

Segir gjaldskyldu vegna nagladekkja ekki í skoðun