Brasilíski miðjumaðurinn Allan skrifaði í dag undir tveggja ára samning við Al Wahda í Sameinuðu arabísku furstaríkjunum en félagið kaupir hann frá Everton.
Allan, sem er 31 árs gamall, kom til Everton frá Napoli fyrir tveimur árum og var lykilmaður í liðinu undir stjórn Carlo Ancelotti og Rafael Benítez.
Hann missti sæti sitt í liði Everton undir lok síðasta tímabils og hefur þá ekki fengið mínútu á þessari leiktíð.
Brasilíumaðurinn vildi komast frá félaginu sem fyrst og komst Al Wahda að samkomulagi við Everton um að fá hann strax í stað þess að bíða fram í janúar.
Everton samþykkti það og skrifaði hann í dag undir tveggja ára samning við Al Wahda.
Al Wahda er í 10. sæti efstu deildar eftir þrjá leiki með aðeins eitt stig.
Athugasemdir