Íslendingur í Kongsberg sleginn eftir árás bogamannsins Viktor Örn Ásgeirsson skrifar 13. október 2021 22:54 Elsa Giljan ásamt Jónari, syni sínum. Aðsend Guðrún Elsa Giljan Kristjánsdóttir, íbúi í Kongsberg í Noregi, segir samfélagið í sjokki eftir að minnst fimm létust og nokkrir særðust í árás bogamanns í bænum í kvöld. Árásarmaðurinn hefur verið handtekinn og virðist hafa verið einn að verki.
Elsa fékk fréttirnar frá syni sínum, Jónari, en hann tilkynnti henni að maður væri að skjóta á fólk með boga og örvum. Símtalið fékk hún rúmum hálftíma eftir að lögregla var mætt á staðinn en sonur hennar flýtti sér heim. Hann var aðeins um hundrað og fimmtíu metra frá svæði þar sem árásarmaðurinn hafði verið. „Hann hringir í mig hérna neðst í götunni og segir við mig: Mamma varstu búinn að heyra það, það er einhver að skjóta á fólk með örvum og boga,“ segir Elsa í samtali við fréttastofu. „Ég held að fólk sé að ná suðupunktinum núna. Nú er þetta að „synca“ inn og það sem er að gerast núna að það er óvissa með skólahald á morgun. Þetta er ekki stór bær,“ segir Elsa. Stóru svæði hefur verið lokað í bænum og er sérstök rannsóknardeild hryðjuverka að störfum. Að sögn Elsu vinnur lögregla að því að rekja ferðir árásarmannsins. Fólk hefur verið beðið um að vera heima og einhverjir hafa þurft að leita sér gistingar á hótelum í bænum. Áfallið mikið í svo litlu samfélagi Rúmlega tuttugu og sex þúsund manns búa í Kongsberg og telur Elsa að yfir hundrað Íslendingar séu búsettir á svæðinu; bæði í bænum og þar í kring. Elsa segir til samlíkingar að ákveðin lægð hafi legið yfir bænum eftir dauðsfall tveggja aðila á eldri árum í síðasta mánuði. Áfallið sé mikið í svo litlu samfélagi. Enn er með öllu óljóst hvað árásarmanninum gekk til en óhjákvæmilega minnir þetta Norðmenn á voðaverkin í Útey fyrir rúmum áratug. „Maður er bara svo ofboðslega hræddur um að þetta sé eitthvað annað svona Breiviksdæmi,“ segir Elsa.
Noregur Fjöldamorð í Kongsberg Íslendingar erlendis Tengdar fréttir Lögreglan útilokar ekki hryðjuverk Minnst fimm létust og nokkrir eru særðir eftir árás bogamanns í norska bænum Kongsberg í kvöld. Árásarmaðurinn var handtekinn í umfangsmiklum aðgerðum lögreglu. Lögreglan útilokar ekki að um hryðjuverk hafi verið að ræða. 13. október 2021 20:52 Umfangsmiklar lögregluaðgerðir vegna bogamanns Aðgerðir lögreglu í Kongsberg í Noregi standa nú yfir vegna bogamanns sem sást til í miðbæ Kongsberg. Maðurinn á að hafa skotið á eftir fólki með boga. 13. október 2021 18:24 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Innlent Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Innlent Útlagar spreyjaðir gylltir Innlent Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja Innlent „Ákveðnar efasemdir um ákveðna þætti“ Innlent Dómi Harvey Weinstein snúið við Erlent Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Innlent Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Erlent Helga Þórisdóttir komin með lágmarksfjölda meðmæla Innlent Segir borgarstjóra óttalegan vettling Innlent Fleiri fréttir Dómi Harvey Weinstein snúið við Tekur fyrir að hafa verið „hermaður Hitlers“ Maður á sextugsaldri sagður hafa stungið grunnskóladreng Sánchez íhugar að segja af sér vegna meintrar spillingar Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Fyrstu hergögnin eiga að berast til Úkraínu á næstu klukkustundum Segir ekki af sér þrátt fyrir njósnir aðstoðarmannsins Aðstoðarvarnarmálaráðherra ákærður fyrir mútuþægni Upptök eldsins í gömlu kauphöllinni enn ókunn Settur út af sakramentinu fyrir að stýra minningarstund um Navalní Handtóku barnunga öfgamenn eftir stunguárás í Sydney Ekki ólöglegt fyrir konur að brjóta gegn körlum Grunuð um að hafa banað tveimur börnum Vitni greinir frá ráðabruggi og lögmaður Trump fær viðvörun Öldungadeildin samþykkti 95 milljarða dala aðstoð við Úkraínu, Ísrael og Taívan Reyna að sigla um geiminn á geislum sólarinnar Lýsa yfir áhyggjum af fregnum af fjöldagröfum á Gasa Fá aftur gögn frá tæplega hálfrar aldar gömlu geimfari Umdeildur flutningur á hælisleitendum til Rúanda samþykktur Starfsmaður hægrijaðarflokks handtekinn fyrir njósnir fyrir Kína Gera alvarlegar athugasemdir við verðlaunakerfi Tik Tok Tugir handteknir á mótmælum háskólanema gegn aðgerðum Ísraels Undirbúa stærðarinnar sendingar til Úkraínu Engin sönnunargögn bendla UNRWA við árásina Hættu við umfangsmiklar árásir á Íran Sakaði Trump um að reyna að spilla kosningunum 2016 Dæmdu samskiptastjóra Meta fyrir að „verja hryðjuverk“ Modi sakaður um múslimaandúð í miðjum kosningum Dregur úr vinnu og verkefnum Sjá meira
Lögreglan útilokar ekki hryðjuverk Minnst fimm létust og nokkrir eru særðir eftir árás bogamanns í norska bænum Kongsberg í kvöld. Árásarmaðurinn var handtekinn í umfangsmiklum aðgerðum lögreglu. Lögreglan útilokar ekki að um hryðjuverk hafi verið að ræða. 13. október 2021 20:52
Umfangsmiklar lögregluaðgerðir vegna bogamanns Aðgerðir lögreglu í Kongsberg í Noregi standa nú yfir vegna bogamanns sem sást til í miðbæ Kongsberg. Maðurinn á að hafa skotið á eftir fólki með boga. 13. október 2021 18:24