Ekki vísbendingar um gos á næstu klukkustundum Kjartan Kjartansson skrifar 4. mars 2021 18:29 Keilir og svæðið í kring úr lofti Vísir/RAX Nýjustu gögn gefa ekki vísbendingar um að eldgos á Reykjanesskaga sé yfirvofandi á næstu klukkustundum. Ennþá eru þó merki um að kvikugangur sé að myndast á svæðinu á milli Fagradalsfjalls og Keilis.
Farið var yfir nýjustu mælingar og gögn sem hafa borist síðasta sólarhringinn á fundi vísindaráðs almannavarna þar sem jarðskjálftahrinan á Reykjanesskaga var rædd í dag. Í tilkynningu frá almannavörnum segir að mælar sýni að virknin sé enn mikil á svæðinu þó að dregið hafi úr henni eftir að svonefndur óróapúls mældist um miðjan dag í gær. Virknin hefur færst örlítið í suðvestur en meginvirknin er þó enn á sömu slóðum og að undanförnu. Nýjar InSAR-gervihnattarmyndir sem bárust í dag og spanna tímabilið frá 25. febrúar til 3. mars sýna ennþá merki um að kvikugangur sé að myndast á milli Fagradalsfjalls og Keilis. GPS-mælingar eru sagðar styðja það en þær sýna stöðuga hreyfingu sem virðist þó hafa hægt á sér miðað við síðustu daga. Saman sýna gögnin að ekki hafi orðið veruleg aukning í kvikuhreyfingum samfara jarðskjálftavirkninni í gær. Sérfræðingar ætla að túlka frekar gögn um aflögun jarðskorpunnar til að átta sig á hversu miklar breytingar hafa átt sér stað og hvað þær þýða um framvindu mála. „Niðurstaða vísindaráðs er sú að nýjustu mælingar og gögn sýni að þau merki sem komu fram í gær um að veruleg hætta væri á [að] gos gæti hafist á næstu klukkustundum hafi dofnað mjög,“ segir í tilkynningu almannavarna. Atburðarásin nú hafi ekki áhrif á þær sviðsmyndir sem unnið hefur verið eftir. Gera þurfi ráð fyrir möguleikanum á gosi ásamt líklegustu staðsetningu þess og mögulegu umfangi eldgoss. Kaflaskipt næstu daga Framvindan á Reykjanesskaga er sögð verða kaflaskipt næstu daga og aftur gætu mælst skyndilegir púlsar með þéttum smáskjálftum líkt og þeim sem mældist í gær. Kaflaskipt virkni af þessu tagi hafi sést í Kröfueldum frá 1975 til 1984 þar sem kvika komst á hreyfingu og framkallaði púlsa með tíðum smáskjálftum. Þar einkenndist virknin af talsverðri skjálftavirkni og kvikuhreyfingum samfara púlsum með smáskjálftavirkni. Í sumum tilfellum hafi orðið gos en í öðrum ekki. „Það er mat vísindaráðs að nauðsynlegt sé að taka óróapúlsa, sambærilegum þeim sem varð í gær, alvarlega og reikna með þeim möguleika að gos kunni að vera yfirvofandi þegar þeir mælast,“ segir í tilkynningu almannavarna. Vísindaráðið ætlar að funda aftur á morgun til að ræða nýjustu gögn og mælingar. Í því sitja fulltrúar Veðurstofu Íslands, Háskóla Íslands, Umhverfisstofnunar, Isavia-ANS, HS-Orku og ÍSOR. Fréttin hefur verið uppfærð.
Eldgos og jarðhræringar Jarðhræringar á Reykjanesi Tengdar fréttir Gervitunglamyndir sýna ekki miklar breytingar Ný gervitunglamynd barst fulltrúum Vísindaráðs almannavarna rétt fyrir fund þeirra nú síðdegis. Elísabet Pálmadóttir, náttúruvársérfræðingur, segir myndina leiða í ljós að ekki séu miklar breytingar frá fyrri myndum. 4. mars 2021 17:30 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Innlent Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Innlent Svipar til gamalla óupplýstra rána Innlent Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert Innlent Hamfaragámur Bónus tryggir kældan mat í neyðarástandi Innlent Íbúar Hlíða velta fyrir sér dularfullum hvelli Innlent Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Innlent „Trúði því ekki að þetta væri ég“ Innlent „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Innlent Hátt í hundrað dauðsföll á þremur árum Innlent Fleiri fréttir „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Aðstoða göngumann á Móskarðshnjúkum Íbúar Hlíða velta fyrir sér dularfullum hvelli Ný og glæsileg skólaþyrping byggð á Hellu Hamfaragámur Bónus tryggir kældan mat í neyðarástandi Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Hádegisfréttir Bylgjunnar Svipar til gamalla óupplýstra rána Sýknaður af ákæru um að hafa tekið í háls barns Bjartur skírdagur fram undan í höfuðborginni Líkamsárás til rannsóknar eftir nóttina Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Vilja koma böndum á bókhald trúfélaga Ferðaóðir Íslendingar þyrpast í ferðalög innanlands sem utan Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Hátt í hundrað dauðsföll á þremur árum Týndi vinningshafinn gaf sig fram og græddi níu milljónir Felldu úr gildi friðlýsingu en mátu Mumma ekki vanhæfan Kvöldfréttir Stöðvar 2 Býr á Íslandi en dæmd í sex ára fangelsi í Rússlandi Eldur í Hafnarfirði Haraldur mátti ekki hækka launin en Sigríður ekki heldur lækka þau Læknafélagið mótfallið lögleiðingu dánaraðastoðar „Trúði því ekki að þetta væri ég“ Ekki viss hvort nokkru þurfi að breyta eftir tug milljóna króna þjófnað 546 Grindvíkingar vilja selja Þórkötlu húsið sitt Steinunn Ólína hálfu skrefi frá því að bjóða sig fram Baldur mælist með langmest fylgi Stálu áli í Grindavík en gómaðir af lögreglu Sjá meira
Gervitunglamyndir sýna ekki miklar breytingar Ný gervitunglamynd barst fulltrúum Vísindaráðs almannavarna rétt fyrir fund þeirra nú síðdegis. Elísabet Pálmadóttir, náttúruvársérfræðingur, segir myndina leiða í ljós að ekki séu miklar breytingar frá fyrri myndum. 4. mars 2021 17:30