Ósáttur við aukið myndavélaeftirlit: „Hvert og eitt skref í þessa átt finnst mér hættulegt“ Margrét Björk Jónsdóttir skrifar 15. mars 2023 10:31 Trausti segir meginástæðu þess að þeir samþykktu ekki samkomulagið vera að Sósíalistum hugnist ekki að það sé verið að fylgjast sérstaklega með mótmælum. Sósíalistar eru ósáttir við fyrirhuguð áform um stóraukið öryggismyndavélaeftirlit í miðborg Reykjavíkur. Borgarfulltrúi segir óttann ekki mega taka yfir.
Borgarráð samþykkti í síðustu viku samkomulag um verklag og forgangsröðun við kaup, uppsetningu og rekstur á öryggismyndavélakerfi í miðborg Reykjavíkur. Á fundi borgarráðs var lagður fram rökstuðningur Ásgeirs Þórs Ásgeirssonar, aðstoðarlögreglustjóra en hann telur mikilvægt að myndavélarnar verði komnar upp áður en leiðtogafundur Evrópuráðs fer fram. „Er þetta er ritað hafa staðfest komu sína 53 þjóðarleiðtogar auk fylgdarliðs og margir þeirra með hátt öryggisstig. Þá fylgir slíkum viðburði stór hópur af erlendu fjölmiðlafólki og mikill fjöldi gesta mun sækja miðborgina þessa daga í maí. Það er því mjög mikilvægt að auka öryggisvitund fólks þessa daga í maí með sýnilegum myndavélum. Reynsla erlendis frá er að mjög oft hefur komið til harðra mótmæla með tilheyrandi hópamyndum í nágrenni við fundarstað með tilheyrandi hættu fyrir aðra borgara,“ segir í rökstuðningi Ásgeirs. Leiðtogafundurinn fer fram í Hörpu en þar er ekkert öryggismyndavélaeftirlit. Þá er nýja svæðið á Hafnartorgi ekki vaktað né sjálf Lækjargatan. „Það þarf að passa að það komist ekki í gegn.“ En ekki eru allir jafn sáttir við fyrirhuguð áform. Trausti Breiðfjörð Magnússon, borgarfulltrúi Sósíalistaflokksins sat fundinn en Sósíalistar voru þeir einu sem greiddu atkvæði gegn samkomulaginu. „Það kom mér svolítið á óvart, sérstaklega því við erum með flokka þarna eins og Pírata sem tala mikið fyrir friðhelgi einkalífsins, borgararéttindum og þvíumlíkt,“ segir Trausti. Trausti segir meginástæðu þess að þeir samþykktu ekki samkomulagið vera að Sósíalistum hugnist ekki að það sé verið að fylgjast sérstaklega með mótmælum. „Þetta er stjórnarskrárvarinn réttur, og það er verið að marka ákveðnar hindranir. Það er verið að senda skilaboð til fólks: „það er fylgst með ykkur.“ Við horfum á önnur lönd í kringum okkur, til dæmis Bretland þar er verið að reyna koma frumvarpi í gegn sem myndi hamla mjög rétti fólks til að mótmæla. Og við erum bara hugsi yfir öllum mögulegum aðferðum sem gæti varið á þennan stjórnarskrár varinn rétt fólks til þess að mótmæla. Og það þarf að passa að þetta komist ekki í gegn.“ „Hvert og eitt skref í þessa átt finnst mér hættulegt" Trausti gefur ekki mikið fyrir áhyggjur aðstoðarlögreglustjóra varðandi möguleg mótmæli í kjölfar leiðtogafundarins. Það var bara talað um að það gæti verið, eins og sagt var, hörð mótmæli sem gætu komið. Við búum á Íslandi. Þetta eru örugglega saklausustu mótmæli sem um geta í Evrópu. Svo ykkar gagnrýni snýr aðalega að vöktun í kjölfarið á þessum fundi en ekki almennt? „Já af því að það var rökstuðningurinn með þessu. Við erum heldur ekkert hlynnt því að fara auka neitt á þetta eftirlitsamfélag, sem við sjáum vera að teiknast upp víða í löndum í kringum okkur, þar sem eru myndavélar á hverju horni og fylgst með öllum hreyfingum. Sum lönd eru meira að segja farin að hugsa um að hafa andlitsskanna, svona greiningu á fólki, þannig það sé hægt að fylgjast með hvaða einstakling er þarna um að ræða. Þannig hvert og eitt skref í þessa átt finnst mér hættulegt." Varðandi það hvort aukið eftirlitsmyndavélakerfi í miðborginni sé ekki mikilvægur þáttur í öryggisgæslu, nú þegar fréttir berast af auknum vopnaburði og aukinni hörku í undirheimum, segir Trausti að samtalið um þessi mál sé mikilvægt. „En við verðum samt að passa okkur að láta ekki óttann taka alla stjórn á okkur, við verðum líka að hugsa út í frelsið. Við viljum vera frjálst þjóðfélag þar sem fólk getur gengið um götur án þess að það sé verið að fylgjast með hverri hreyfingu.“
Leiðtogafundur Evrópuráðsins í Reykjavík 2023 Lögreglan Reykjavík Sósíalistaflokkurinn Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Erlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Innlent Ástand Fico enn alvarlegt Erlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Býst við aukinni sókn Rússa Erlent Fleiri fréttir Þurftu að réttlæta allt sem þær gerðu í Konukoti Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Sjá meira