Gaf aðdáanda óvart giftingarhringinn sinn eftir leik Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. september 2020 09:30 Darius Leonard fagnar hér um helgina eftir að hafa náð leikstjórnendafellu á Kirk Cousins há Minnesota Vikings. APMichael Conroy
Darius Leonard brá örugglega mikið þegar hann var kominn inn í klefa eftir leik Indianapolis Colts í NFL-deildinni um helgina. Hann fann ekki giftingarhringinn sinn. Eins og venjan hjá mörgum leikmönnum NFL-deildarinnar þá gefa þeir oft ungum aðdáendum ýmislegt í lok leikja sinna. Láta leikmennirnir krakkana fá ýmsa smáhluti eins og lítil handklæði, hanska eða eitthvað sem þeir voru að nota í viðkomandi leik. Sumir gefa jafnvel skó eða treyjur. Darius Leonard, varnarmaður Indianapolis Colts, gaf aðdáanda hins vegar aðeins meira en hann ætlaði sér eftir leik Indianapolis Colts og Minnesota Vikings á sunnudaginn. Yeah, he's gonna want that back.Posted by Sports Illustrated on Þriðjudagur, 22. september 2020 Indianapolis Colts liðið vann þarna sannfærandi 28-11 sigur á Víkingunum og það var full ástæða fyrir Darius Leonard og félaga hans í varnarlínunni að vera í góðu skapi eftir leik enda komust leikmenn Minnesota Vikings lítið áleiðis. Leonard var hins vegar aðeins gjafmildari en hann ætlaði sér. Þegar Darius Leonard var að ganga til búningsklefa þá sá hann nokkra krakka í stúkunni og hann ákvað að gefa þeim hanskana sína. Þau voru náttúrlega mjög kát og Leonard fór í framhaldinu inn í klefa. Þegar krakkarnir fóru að skoða betur hanskana þá komust þau að því að þau fengu stóran bónus með. Inn í öðrum hanskanum var nefnilega giftingarhringurinn hans. https://t.co/W2QkcBmK6O— Darius Leonard (@dsleon45) September 21, 2020 Darius Leonard giftist Kaylu Leonard í nóvember 2007 en þau höfðu þekkst síðan í leikskóla og eiga nú eina stelpu saman. Það komst í fréttirnar þegar hann bað hennar því það gerði hann á miðjum vellinum eftir síðasta heimaleikinn sinn með South Carolina State háskólaliðinu. Tyler Brooke heitir aðdáandinn sem var svo heiðarlegur að láta Darius Leonard vita af því í gegnum samfélagsmiðla að hann væri með hringinn hans. Frændi hans hafði nefnilega fengið hanskana og uppgötvað hringinn. Leonard svaraði og ekki er vitað annað en að hann hafi fengið hringinn sinn aftur.
NFL Mest lesið „Tel mjög vafasamt að klukkan hafi verið sett af stað á réttum tíma“ Körfubolti Virk sprengja úr seinni heimsstyrjöldinni undir leikvangi Mainz Fótbolti Sjáðu ótrúlegan flautuþrist Þorvaldar Orra Körfubolti Magnaðasta mark sumarsins á fyrsta degi þess? Fótbolti LA Rams velja nýliðana í 16 milljón dollara glæsivillu Sport „Frábær úrslit fyrir okkur og félagið“ Fótbolti „Vakna í hádeginu á morgun og fer að hugsa um Valsarana“ Körfubolti „Fyrst og fremst var þetta vinnuframlag frá öllum“ Fótbolti Ivan Toney á innkaupalista Manchester United Fótbolti Dagskráin í dag: Fótbolti, golf og margt fleira Sport Fleiri fréttir Slot staðfestir að hann vilji taka við Liverpool Virk sprengja úr seinni heimsstyrjöldinni undir leikvangi Mainz Dagskráin í dag: Fótbolti, golf og margt fleira LA Rams velja nýliðana í 16 milljón dollara glæsivillu Sjáðu ótrúlegan flautuþrist Þorvaldar Orra „Tel mjög vafasamt að klukkan hafi verið sett af stað á réttum tíma“ „Vakna í hádeginu á morgun og fer að hugsa um Valsarana“ „Frábær úrslit fyrir okkur og félagið“ „Fyrst og fremst var þetta vinnuframlag frá öllum“ Ivan Toney á innkaupalista Manchester United Uppgjörið: Njarðvík - Þór Þ. 98-97 | Þorvaldur Orri tryggði Njarðvík sigur með flautukörfu í framlengingu Júlíus Magnússon með sitt fyrsta mark fyrir Fredrikstad Magnaðasta mark sumarsins á fyrsta degi þess? FH-ingar skrefi nær úrslitaeinvíginu Bjarki Már atkvæðamikill í dramatískum sigri Einstefna í Brighton Uppgjörið: Keflavík - Breiðablik 2-1| Sami Kamel afgreiddi Blika KR fékk ungan Svía fyrir gluggalok Bikarmeistararnir örugglega áfram eftir smá hikst 350 þúsund krónur i sektir og tveir fá þriggja mánaða bann Tíu Grindvíkingar unnu í Eyjum Friðrik Ingi sæmdur gullmerki Njarðvíkur Þórsarar hafa spilað þrjá oddaleiki síðan Njarðvík var síðast í oddaleik Sjokkeruðu Celtics menn með þriggja stiga skotsýningu Andrea og Þorsteinn Íslandsmeistarar í götuhlaupi Æfði með FH en fékk ekki samning og skipti síðan í Hauka Bjarni í Selvindi semur við Val Bikarmeistararnir bjóða frítt á völlinn „Hún á eftir að fá að skína aðeins meira“ Norðmenn töpuðu milljónum á því að halda HM í handbolta Sjá meira
Uppgjörið: Njarðvík - Þór Þ. 98-97 | Þorvaldur Orri tryggði Njarðvík sigur með flautukörfu í framlengingu