Þorvaldur Þorláksson hefur verið ráðinn forstöðumaður fasteigna- og þróunar hjá Högum og hefur hafið störf. Helstu verkefni hans verða þríþætt, þ.e. ábyrgð á rekstri fasteigna og lóða í eigu Haga, umsjón með leigumálum samstæðu og fasteignaþróun á breiðum grunni.

Þorvaldur hefur mikla reynslu af rekstri, stýringu og uppbyggingu fasteignaverkefna, meðal annars við uppbyggingu og rekstur Smáralindar, Turnsins í Kópavogi, Smáratorgs, Glerártorgs og fleiri verkefna.

Þá hefur Þorvaldur töluverða reynslu af smásölurekstri í gegnum árin. Nú síðast starfaði Þorvaldur sem framkvæmdastjóri Stjörnunnar ehf sem rekur Subway á Íslandi. Þar áður starfaði hann hjá Origo og Nýherja, m.a. sem framkvæmdastjóri heildsölu og dreifingar. Þorvaldur er rekstrarfræðingur að mennt.

„Þorvaldur hefur dýrmæta reynslu af rekstri og uppbyggingu fasteignaverkefna. Fasteignaumsvif Haga eru umtalsverð og sífelld áskorun að tryggja að fjárfestingar séu í takt við þarfir félagsins og viðskiptavina hverju sinni. Reynsla Þorvaldar mun nýtast Högum vel í verkefnum sem framundan eru og við bjóðum hann sérstaklega velkomin í hópinn“ er haft eftir Finni Oddssyni, forstjóra Haga, í fréttatilkynningu.