Spánverjar varir um sig gagnvart nýju bóluefni Kjartan Kjartansson skrifar 4. desember 2020 13:23 Sjúkraþjálfari hugar að sjúklingi með Covid-19 á Mallorca á Spáni. Fleiri en 46.000 manns hafa látið lífið af völdum sjúkdóms þar. Vísir/EPA Meira en helmingur Spánverja er ekki tilbúinn að láta bólusetja sig með nýju bóluefni gegn Covid-19 um leið og það verður aðgengilegt ef marka má niðurstöður nýrrar könnunar. Spænsk stjórnvöld ætla sér að bólusetja 15-20 milljónir manna fyrir mitt næsta ár.
Lyfjayfirvöld í Evrópu og Bandaríkjunum fjalla nú um umsóknir fyrir notkun á að minnsta kosti þremur bóluefnum við Covid-19 og er talið að bólusetningar gætu hafist strax á næstu vikum. Útlit er þó fyrir að erfitt verði að ná nægilegri þátttöku í bólusetningunni til þess að hún skili tilskyldum árangri sums staðar. Í Bandaríkjunum hafa þrír fyrrverandi forsetar boðist til þess að láta bólusetja sig í beinni sjónvarpsútsendingu til að auka tiltrú almennings á bólusetningu. Í könnuninni félagsrannsóknastofnun Spánar gerði kom fram að aðeins þriðjungur svarenda var tilbúinn að láta bólusetja sig strax en 55,2% vildu heldur bíða og sjá hvaða áhrif bóluefnið hefði á þá sem fá það í upphafi, að sögn Reuters-fréttastofunnar. Af þeim sem vildu bíða og sjá til sögðust þó 60% myndu skipta um skoðun ef læknir ráðlegði þeim að láta bólusetja sig vegna þess að heilsa þeirra eða ættingja væri í hættu. Um 8,4% sögðust ekki vilja bóluefni af neinu tagi. Til stendur að byrja að bólusetja íbúa á hjúkrunarheimilum á Spáni í janúar. Fyrir maí eða júní stefnir ríkisstjórnin á að bólusetja 15-20 milljónir af um 47 milljónum íbúum landsins. Spánn er eitt þeirra ríkja sem hefur farið einna verst út úr faraldrinum til þessa. Bandarískur karlmaður sem tók þátt í bóluefnisrannsókn lyfjafyrirtækisins Moderna kvaðst hafa fengið vægar aukaverkanir eftir seinni skammt í sjónvarpsviðtali vestanhafs. Hann sagði reynsluna ekki beint „dans á rósum“ en kveðst hiklaust myndu láta sprauturnar aftur yfir sig ganga. Þekkt er að bólusetningum geti fylgt vægar aukaverkanir af þessu tagi.
Spánn Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Lyf Bólusetningar Tengdar fréttir Fyrstu skammtarnir komnir til Bretlands Fyrstu skammtar af bóluefni lyfjafyrirtækjanna Pfizer og BioNTech komu til Bretlands í kvöld. Birgðirnar voru fluttar í „sérstaka miðstöð á ótilgreindum stað“ og verður nú dreift um landið til bólusetningar. 3. desember 2020 23:45 Lýsir áhrifunum sem Moderna-sprautan hafði á hann Bandarískur karlmaður sem tók þátt í bóluefnisrannsókn lyfjafyrirtækisins Moderna kveðst hafa fengið vægar aukaverkanir eftir seinni skammt. Hann segir reynsluna ekki beint „dans á rósum“ en kveðst hiklaust myndu láta sprauturnar aftur yfir sig ganga. 3. desember 2020 23:01 Obama treystir Fauci og segist myndu láta sjónvarpa bólusetningu sinni Barack Obama, fyrrum Bandaríkjaforseti, segist hiklaust munu láta bólusetja sig ef Anthony Fauci, æðsti sóttvarnasérfræðingurinn vestanhafs, segir það óhætt. 2. desember 2020 23:33 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla Innlent Langt í að þeir nái sér að fullu Innlent Vopnuð rán tíðari en fólk gerir sér grein fyrir Innlent Óttast að saga slökkviliða á Íslandi glatist Innlent Tveir látnir eftir að bíll hafnaði í sjónum við Stokkhólm Erlent Á ofsahraða undir áhrifum fíkniefna Innlent Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Innlent Arnar Þór vantaði sex meðmæli upp á Innlent Karlremba sé komin í tísku Innlent Fengu aðstoð sérsveitar og Gæslunnar við handtöku við Grímsvötn Innlent Fleiri fréttir Tveir látnir eftir að bíll hafnaði í sjónum við Stokkhólm Fjölmenn mótmæli vegna ofbeldisbylgju í Ástralíu Vasaúr ríkasta manns Titanic seldist á 210 milljónir Þúsundir hvöttu Sánchez til að segja ekki af sér Skoða að færa Mónu Lísu í eigið herbergi Harvey Weinstein lagður inn á spítala Þingmaður hleypti af skoti fyrir utan skemmtistað Rýma dómshús vegna sprengjuhótunar Dómstóll fyrirskipar handtöku landbúnaðarráðherra Selenskís Ákvörðun áfrýjunardómstólsins áfall og stórt skref aftur á bak Trump líklegur til að græða á úrskurði Hæstaréttar Dómi Harvey Weinstein snúið við Tekur fyrir að hafa verið „hermaður Hitlers“ Maður á sextugsaldri sagður hafa stungið grunnskóladreng Sánchez íhugar að segja af sér vegna meintrar spillingar Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Fyrstu hergögnin eiga að berast til Úkraínu á næstu klukkustundum Segir ekki af sér þrátt fyrir njósnir aðstoðarmannsins Aðstoðarvarnarmálaráðherra ákærður fyrir mútuþægni Upptök eldsins í gömlu kauphöllinni enn ókunn Settur út af sakramentinu fyrir að stýra minningarstund um Navalní Handtóku barnunga öfgamenn eftir stunguárás í Sydney Ekki ólöglegt fyrir konur að brjóta gegn körlum Grunuð um að hafa banað tveimur börnum Vitni greinir frá ráðabruggi og lögmaður Trump fær viðvörun Öldungadeildin samþykkti 95 milljarða dala aðstoð við Úkraínu, Ísrael og Taívan Reyna að sigla um geiminn á geislum sólarinnar Lýsa yfir áhyggjum af fregnum af fjöldagröfum á Gasa Fá aftur gögn frá tæplega hálfrar aldar gömlu geimfari Sjá meira
Fyrstu skammtarnir komnir til Bretlands Fyrstu skammtar af bóluefni lyfjafyrirtækjanna Pfizer og BioNTech komu til Bretlands í kvöld. Birgðirnar voru fluttar í „sérstaka miðstöð á ótilgreindum stað“ og verður nú dreift um landið til bólusetningar. 3. desember 2020 23:45
Lýsir áhrifunum sem Moderna-sprautan hafði á hann Bandarískur karlmaður sem tók þátt í bóluefnisrannsókn lyfjafyrirtækisins Moderna kveðst hafa fengið vægar aukaverkanir eftir seinni skammt. Hann segir reynsluna ekki beint „dans á rósum“ en kveðst hiklaust myndu láta sprauturnar aftur yfir sig ganga. 3. desember 2020 23:01
Obama treystir Fauci og segist myndu láta sjónvarpa bólusetningu sinni Barack Obama, fyrrum Bandaríkjaforseti, segist hiklaust munu láta bólusetja sig ef Anthony Fauci, æðsti sóttvarnasérfræðingurinn vestanhafs, segir það óhætt. 2. desember 2020 23:33