Þurftu að æfa inni og munu bera sorgarbönd á morgun Valur Páll Eiríksson skrifar 27. júlí 2021 22:00 Leikmenn Leverkusen munu bera sorgarbönd í leik morgundagsins vegna slyssins. EPA-EFE/LARS BARON / POOL Leikmenn þýska úrvalsdeildarfélagsins Bayer Leverkusen þurftu að æfa innandyra eftir sprengingu sem varð í efnaverksmiðju í Leverkusen í dag. Einn lést í sprengingunni og munu leikmenn liðsins bera sorgarband í æfingaleik sínum við Utrecht frá Hollandi á morgun.
Sprenging varð í efnaverksmiðju í Leverkusen í dag með þeim afleiðingum að einn lést og fjögurra er enn saknað samkvæmt breska ríkisútvarpinu, BBC. Sprengingin hafði mikla mengun í för með sér, þar sem svartur mökkur stóð upp frá slysstaðnum. Æfingar þýska félagsins voru því færðar inn fyrir hússins dyr. Íslenska landsliðskonan Sandra María Jessen er leikmaður kvennaliðs Leverkusen en hún er sem stendur í barneignarleyfi og verður út þetta ár. Karlalið Bayer Leverkusen hefur átt í vandræðum á undirbúningstímabili sínu þar sem aðeins einn af þremur fyrirhuguðum æfingaleikjum liðsins til þessa hafa farið fram. Leikjum við bæði Wehen Wiesbaden og Dynamo Moskvu var aflýst um miðjan júlí en liðið gerði markalaust jafntefli við Freiburg í sínum eina æfingaleik til þessa síðasta föstudag. Due to an explosion in the city of Leverkusen and the resulting unsafe air quality, today s training has been relocated indoors.— Bayer 04 Leverkusen (@bayer04_en) July 27, 2021 Leverkusen leikur annan undirbúningsleik sinn fyrir komandi tímabil á morgun við hollenska félagið Utrecht, en slys dagsins hefur ekki áhrif á þann leik. Samkvæmt tilkynningu frá félaginu munu leikmenn bera svört sorgarbönd og hafa einnar mínútu þögn fyrir leik til minningar um þann sem lést í slysi dagsins. Hins vegar barst þýska liðinu önnur slæm tíðindi í dag þar sem að fimmti og síðasti æfingaleikur liðsins sem fyrirhugaður var við Celta Vigo frá Spáni á laugardaginn kemur er í uppnámi. Celta Vigo er hætt við að spila þann leik vegna COVID-smita innan þeirra raða. Leverkusen leitar nú nýs mótherja fyrir leikinn á laugardag.
Þýski boltinn Mest lesið Úr húsvarðarstarfi í atvinnumennsku Handbolti Rooney segir United losa sig við nær allan leikmannahópinn Enski boltinn Slys á æfingu fyrir fjórum árum er enn að eyðileggja fyrir Söru Sport Einbeitir sér að því að komast í NBA frekar en að spila með pabba sínum Körfubolti „Núna ætla ég að klára þetta þar sem þetta er síðasta tímabilið mitt hérna“ Sport Albert gáttaður á Lárusi Orra: „Hvað meinarðu? Hvað er í gangi hérna?“ Íslenski boltinn Tiger trúir enn á sjálfan sig: „Líður enn eins og ég geti unnið golfmót“ Golf Gerir sér grein fyrir erfiðu tímabili: „Þið eruð bestu stuðningsmenn í heimi“ Enski boltinn „Þetta var eitt það erfiðasta sem ég hef farið í gegnum“ Sport Birna með slitið krossband og missir af úrslitaeinvíginu Körfubolti Fleiri fréttir Rooney segir United losa sig við nær allan leikmannahópinn Gerir sér grein fyrir erfiðu tímabili: „Þið eruð bestu stuðningsmenn í heimi“ „Þetta var ótrúlega erfitt“ Vlahovic tryggði Juventus bikarmeistaratitilinn United lyfti sér upp að hlið Newcastle Evrópudraumurinn lifir góðu lífi eftir fjórða sigurinn í röð KA sneri taflinu við í seinni hálfleik Gísli lagði upp í Íslendingaslag og Elfsborg vann risasigur Uppgjörið og viðtöl: Fylkir - Breiðablik 0-2 | Blikar enn með fullt hús Ásdís Karen kom Lilleström á bragðið Kjósa um hvort notkun VAR verði hætt Uppgjörið: Þróttur - Víkingur 0-1 | Þróttarar enn án sigurs Everton boðið neyðarlán til að klára nýja heimavöllinn Gæti haldið áfram eftir allt saman FIFA íhugar að leyfa deildarleiki í öðrum löndum Félagaskiptaglugganum lokað fyrr en vanalega í sumar Fækka landsleikjagluggum og koma á fót HM félagsliða Segja að Mbappé og forseti PSG hafi öskrað á hvor annan Stjóri Spurs ósáttur við viðhorfið: „Þetta er utan félagsins, innan þess, alls staðar“ Jói Kalli hættir hjá landsliðinu og fer til Danmerkur Illa orðað samningsákvæði varð KA að falli Albert gáttaður á Lárusi Orra: „Hvað meinarðu? Hvað er í gangi hérna?“ Segir að Ortega hafi unnið titilinn fyrir City Ten Hag vísar gagnrýni Rooneys til föðurhúsanna United íhugar að ráða stjóra Ipswich sem eftirmann Ten Hags Telja að Bruno verði áfram á Old Trafford Sagði sína menn hafa þurft að þjást og hrósaði varamarkverðinum Spánarmeistarar Real skoruðu fimm „Þegar við skorum að þá er gaman“ „Þetta var eins og handboltaleikur“ Sjá meira