Hvetja ökumenn til að fara varlega

mbl.is/Kristinn Magnússon

Lögreglan á Austurlandi mun í desembermánuði fylgjast með ástandi ökumanna í umferð sem og með dekkja- og ljósabúnaði ökutækja. Þá þykir lögreglu rétt í ljósi árstíðar að líta sérstaklega eftir útsýni úr ökutækjum og sýnileika þeirra, að ökumenn hreinsi vel rúður og ljós og gæti að því að öll ljós logi, jafnt að framan sem aftan.

Lögreglan hvetur ökumenn til að fara varlega í umferðinni og setji sér markmið um slysalausan desember, að því er segir í tilkynningu.

Þá mun lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fylgjast vel með akstri undir áhrifum áfengis og vímuefna á aðventunni.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert