Ásdís fer í sænsku úrvalsdeildina

Ásdís Guðmundsdóttir í leik með KA/Þór á tímabilinu.
Ásdís Guðmundsdóttir í leik með KA/Þór á tímabilinu. Ljósmynd/Þórir Tryggvason

 Ásdís Guðmundsdóttir er annar leikmaður KA/Þór í handbolta sem skrifar undir hjá sænska úrvalsdeildarliðið Skara HF í sumar.

Vikublaðið á Akureyri greindi frá því en hún er annar leikmaður KA/Þór til að ganga til liðs við Skara í sumar. Aldís Ásta Heimisdóttir gekk til liðs við Skara fyrr í sumar en hún skrifaði undir tveggja ára samning.

Skara hafnaði í sjötta sæti sænsku úrvalsdeildarinnar í vor og féll úr keppni í fyrstu umferð úrslitakeppninnar um sænska meistaratitilinn.

Aldís og Ásdís eru tvær af fjórum leikmönnum liðsins sem fara úr liðinu og út fyrir landsteinana en hún Sunna Guðrún Pétursdóttir samdi við GC Amicitia Zürich og Rakel Sara Elvarsdóttir við Volda í Noregi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert