„Munar um hvern einasta hval“ Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 24. maí 2023 15:15 Vísir/Getty/Rán Flygenring Rán Flygenring, teiknari og aktívisti, segir hvalveiðar á Íslandi grótekst dæmi um hverju hægt er að ná fram með peningum og frekju. Hún birti í dag myndaþátt eigin teikninga á Vísi þar sem hún skýtur föstum skotum á hvalveiðar á Íslandi.
Myndaþáttinn má sjá hér. „Mitt fyrsta tilhlaup að aktívisma var þegar ég og Anna Sóley, vinkona mín, skrifuðum bréf í Moggann um Keikó.“ Vinkonurnar, þá átta og níu ára gamlar, höfðu frétt að háhyrningurinn væri illa haldinn í Ameríku og skrifuðu grein þar sem þær gagnrýndu gráðuga Ameríkana sem fengu allt sem þeir vildu. Ein af myndum Ránar sem birtust í myndaþættinum í dag.Rán Flygering „Ég sá fyrir mér að þetta yrði svaka hálfsíðugrein, og það væri kannski mynd af okkur og svo framvegis, en svo var þetta ekki nema einhverjar þrettán línur í Velvakanda,“ segir hún hlæjandi. Þó trúir hún að grein vinkvennanna hafi ef til vill verið fyrsta skrefið í átt að björgun háhyrningsins. Langreyðar notaðar í hundamat Rán segist alltaf hafa verið náttúruverndarsinni og látið umhverfismál sig varða. Hún hefur unnið sem teiknari lengi og nýtir gjarnan myndmál til að segja frá málefnum sem hún brennur fyrir. Hún segir frábært að geta tengt þau svið saman þar sem á milli séu allskonar teningar. Hvalur hf. er með leyfi út þetta ár til að stunda hvalveiðar.Rán Flygering „Það er nefnilega margt svo fullkomlega galið í þessum hvalabransa og hann eiginlega kjarnar hversu furðulegt samband við eigum orðið við náttúruna.“ Hún vekur athygli á að langreyðarnar, sem eru næststærsta dýr jarðar, séu notaðar í hundamat hinumegin á hnettinum. Kristján Loftsson er stærsti eigandinn í Hvali. Hann svarar sárasjaldan fyrirspurnum fjölmiðla.Rán Flygering Hún hafi einnig heyrt sögusagnir, þó óstaðfestar, um að hvalafita sé notuð í kynlífstæki á við gervipíkur. „Þetta er orðin svo mikil sturlun að þetta er orðið eins og einhver dystópía á Netflix!“ Segir afturköllun hvalveiðileyfis tímaspursmál Aðspurð hversu tímabær henni finnist vakning á málefnum hvalaveiða segir hún hana í raun koma allt of seint og að hún hefði mátt byrja fyrr. „Þetta er svo gróteskt dæmi um hverju er hægt að ná fram með peningum og frekju.“ Hún fer hörðum orðum um Kristján Loftsson, eiganda Hvals hf. og segir að tími hvalveiða væri löngu liðinn ef ekki væri fyrir yfirgang og frekju í einum karli sem fengi sínu framgengt með ríkidæmi sínu og frekju. Rán segist almennt ekki vera mjög bjartsýn þegar kemur að málum sem tengjast náttúrunni. „En það munar um hvern einasta hval alveg eins og munar um hverja einustu manneskju, þannig að allt sem við gerum skiptir máli.“ Hún segir það þó vonandi tímaspursmál hvenær hvalveiðileyfið, sem stríði gegn alþjóðalögum og skynsemi, verði afturkallað.
Hvalveiðar Hvalir Myndlist Tengdar fréttir Myndskýrsla um hinar fullkomlega óskiljanlegu hvalveiðar á Íslandi Rán Flygenring fjallar um hvalveiðar Íslendinga. 24. maí 2023 06:31 Skoðar hvort hægt sé að takmarka hvalveiðar Matvælaráðherra segir til skoðunar að takmarka hvalveiðar í sumar þrátt fyrir hún telji ekki lagastoð fyrir afturköllun á veiðileyfi. Hollywood-stjarna hvetur fólk til þess að mótmæla veiðunum. 23. maí 2023 12:01 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Fannst látinn í klefa sínum á Litla Hrauni Innlent Vinnubrögðin gátu leitt til dauða Innlent Halla fremst með 29,7 prósent í nýrri könnun Prósents Innlent Lík þriggja brimbrettakappa fundust í brunni í Mexíkó Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Glórulausar framkvæmdir raski velferð íbúa hjúkrunarheimilis Innlent Stærsti skjálftinn 3,5 að stærð Innlent Búnaður Al Jazeera gerður upptækur og miðillinn í bann Erlent Aukastörf meðfram þingmennsku skapi hættu á hagsmunaárekstrum Erlent Sakaði Biden um að reka lögregluríki í anda nasista Erlent Fleiri fréttir Hindraði mann sem ætlaði að komast úr bíl við Bónusbúð Segir viðmælendur sitja undir hótunum netaktívista Glórulausar framkvæmdir raski velferð íbúa hjúkrunarheimilis Fannst látinn í klefa sínum á Litla Hrauni Vinnubrögðin gátu leitt til dauða Halla fremst með 29,7 prósent í nýrri könnun Prósents Viðræður „á viðkvæmu stigi“ og fundi frestað til morguns Stærsti skjálftinn 3,5 að stærð Áslaug Arna mjólkar vel í fjósinu á Hvanneyri Líklega fundað fram eftir kvöldi Til vandræða á hóteli og réðst svo á mann við Hlemm Lífshættuleg meðhöndlun barna á vöggustofum og þrír eftir í bakgarðshlaupi Karlar líklegri að ljúga á kostnað annarra Hafi orðið fyrir þrýstingi úr ólíkum áttum „Ódýrt“ að gera samningana tortryggilega Leikskólar Árborgar verða lokaðir á milli jóla- og nýárs Völd óskast: Forseti allra kynslóða? Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Orku- og samgöngumál efst á lista nýs sveitarfélags Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Tíðindi í kjaradeilu flugvallarstarfsmanna og bein útsending úr Bakgarðshlaupinu Frestun verkfalla kemur til greina „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Sáttasemjari boðar til fundar: Fimm dagar til stefnu Orkuskipti, innflytjendalöggjöf og bensínstöðvalóðirnar „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Ný sýn fékk meirihluta Slagsmál enduðu með nefbroti Bíll logaði í Vesturbænum „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Sjá meira
Myndskýrsla um hinar fullkomlega óskiljanlegu hvalveiðar á Íslandi Rán Flygenring fjallar um hvalveiðar Íslendinga. 24. maí 2023 06:31
Skoðar hvort hægt sé að takmarka hvalveiðar Matvælaráðherra segir til skoðunar að takmarka hvalveiðar í sumar þrátt fyrir hún telji ekki lagastoð fyrir afturköllun á veiðileyfi. Hollywood-stjarna hvetur fólk til þess að mótmæla veiðunum. 23. maí 2023 12:01