Lífið

98,7 prósenta á­horf á Euro­vision

Kristinn Haukur Guðnason skrifar
Flestir Evrópumenn vildu sjá Finna sigra keppnina en dómnefndirnar voru ósammála.
Flestir Evrópumenn vildu sjá Finna sigra keppnina en dómnefndirnar voru ósammála. Getty

Nærri allir sem horfðu á sjónvarp laugardagskvöldið 13. maí, milli klukkan 19 og 23, á Íslandi horfðu á Eurovision. Þetta er langhæsta hlutfall í Evrópu.

Athygli vekur að mun fleiri Íslendingar horfðu á lokakvöld Eurovsion í ár en á síðasta ári, um 160 þúsund manns samanborið við um 130 þúsund í fyrra. Árið 2022 komst íslenska atriðið „Með hækkandi sól“ í úrslitin en „Power“ með Diljá komst ekki upp úr undanriðli í ár.

Eins og í fyrra var áhorfið þó mun meira á undankeppnina. 260 þúsund manns fylgdust með henni, samanborið við 240 þúsund í fyrra.

Vinsælt í Bretlandi en ekki Úkraínu

Óhætt er að segja að Íslendingar séu Eurovision óðasta þjóð Evrópu. Ekkert annað land kemst nálægt sjónvarpshlutdeildinni. Í öðru sæti eru Norðmenn með 87,8 prósent, þá Finnar með 85,6 og Svíar með 82,3.

Af stórþjóðum Evrópu hafa Bretar lang mestan áhuga. Þar horfðu 63 prósent á lokakvöld Eurovision, tæplega tíu milljón manns og aukning um ellefu prósent frá fyrra ári. átta milljón Þjóðverja horfðu á lokakvöldið, fimm milljónir Ítala og Spánverja og rúmlega þrjár milljónir Frakka.

Fleiri Íslendingar fylgdust með keppninni í ár þrátt fyrir að Diljá hafi ekki komist upp úr undanriðli eins og Systur í fyrra gerðu.Getty

Áhorfið í Úkraínu var innan við 20 prósent, alls tæplega 600 þúsund manns. Áhorfið var einnig lítið í Ástralíu, tæplega 400 þúsund horfðu á lokakvöldið þar í landi.

Vinsælt hjá ungu fólki

Samanlagt horfðu 34 milljónir á undankeppnina í sjónvarpi og rúmlega 53 milljónir á lokakvöldið, aukning um eina milljón frá árinu áður.

Heildaráhorfið í Evrópu var tæplega 41 prósent. Keppnin var sérstaklega vinsæl hjá yngra fólki, frá 15 til 24 ára, þar sem áhorfið var 53,5 prósent.

Þá horfðu rúmlega tíu milljón manns á keppnina á opinberri Youtube rás EBU, sambandið evrópskra sjónvarpsstöðva. 45 milljón manns frá 232 löndum og svæðum horfðu á eitthvað efni af rásinni á meðan keppnin var í gangi.

Alls náði keppnin til 162 milljón manns.


Tengdar fréttir

Diljá var einu sæti frá því að komast á­fram

Veðbankar höfðu rétt fyrir sér að þessu sinni og Diljá Pétursdóttir komst ekki áfram í aðalkeppni söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva fyrir Íslands hönd. Hún var hins vegar eins nálægt því og hugsast getur, aðeins einu sæti frá því að komast áfram.

Selenskí fær ekki að á­varpa Euro­vision annað árið í röð

Volodomír Selenskí for­seti Úkraínu fær ekki að halda á­varp í úr­slitum Euro­vision söngva­keppninnar sem fer fram um helgina. Þetta er annað árið í röð sem for­setinn leitast eftir því að á­varpa söngva­keppnina án árangurs.

Diljá komst ekki áfram

Diljá Pétursdóttir, fulltrúi Íslands í Eurovision, komst ekki áfram á seinna undanúrslitakvöldi keppninar sem haldið var í Liverpool í kvöld.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×