Kynferðisleg áreitni innan lögreglu til skoðunar

Lögreglustöðin við Hlemm. Mynd úr safni.
Lögreglustöðin við Hlemm. Mynd úr safni. mbl.is/Golli

Ásak­an­ir um kyn­ferðis­lega áreitni á hend­ur yf­ir­lög­regluþjóni hjá lög­regl­unni á höfuðborg­ar­svæðinu eru til rann­sókn­ar hjá embætt­inu. Rík­is­út­varpið seg­ir frá.

Maður­inn hef­ur lengi starfað sem lög­reglumaður, meðal ann­ars í kyn­ferðis­brota­deild. Heim­ild­ir rík­is­út­varps­ins herma að kvart­an­ir hafi borist eft­ir viðburð hjá starfs­fólki lög­regl­unn­ar.

Litl­ar upp­lýs­ing­ar hafa feng­ist um málið hjá lög­regl­unni á höfuðborg­ar­svæðinu en Mar­grét Krist­ín Páls­dótt­ir, staðgeng­ill lög­reglu­stjóra, seg­ir að eng­inn yf­ir­lög­regluþjónn hafi verið send­ur í leyfi vegna máls­ins.

mbl.is
Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert