Eltu smyglara á fund Íslendings og fundu verulegt magn af fíkniefnum Snorri Másson skrifar 30. nóvember 2021 19:22 Lögreglan á Suðurnesjum handtók þrjá í tengslum við fíkniefnasmygl snemma í október. Vísir/Vilhelm Lögreglan á Suðurnesjum handtók þrennt í tengslum við umfangsmikið fíkniefnasmygl í síðasta mánuði, eftir að tvær konur reyndu að smygla í gegnum Keflavíkurflugvöll töluverðu magni af metamfetamíni og meira en 6.000 töflum af hörðum ópíóðum.
Samkvæmt heimildum fréttastofu var tveimur pólskum konum á sextugsaldri fylgt eftir frá flugstöðinni í Keflavík við komuna til landsins í byrjun október vegna gruns um að þær hefðu fíkniefni meðferðis. Grunurinn var staðfestur þegar lögregla handsamaði konurnar þar sem þær voru komnar á fund móttakanda efnanna á hóteli skömmu síðar. Sá reyndist vera íslenskur karlmaður á þrítugsaldri og fóru öll þrjú í gæsluvarðhald. Málið er rakið í myndbandinu hér að neðan: Konurnar tvær eru enn í gæsluvarðhaldi en héraðssaksóknari fær senn mál þremenninganna á sitt borð. Ekki liggur fyrir á þessari stundu hver þáttur kvennanna var í skipulagningunni en á undanförnum árum hafa dómar mildast allnokkuð á hendur þeim sem teljast vera burðardýr. Sambærilegt mál endaði í sex mánaða fangelsi fyrr á þessu ári. Öðru gegnir um eiginlega skipuleggjendur glæpanna sem geta átt yfir höfði sér frá kannski þremur og allt að sex ára fangelsi, allt eftir alvarleika brotanna. Refsiramminn nær allt upp í tólf ár. Fleiri að reykja metamfetamín Lögreglan á Suðurnesjum staðfestir í svari við fyrirspurn fréttastofu að í fórum fólksins hafi fundist tæpt hálft kíló af metamfetamíni, því sem kallað er á ensku crystal meth. Einnig hafi fundist rúmlega 6.000 stykki af fikniefnum í töfluformi. Lögreglan vinnur að rannsókn málsins í samstarfi við tollgæsluna á keflavíkurflugvelli Notkun metamfetamíns, sem jafnan er innbyrt með því að reykja kristalana, hefur aukist nokkuð á undanförnum árum á Íslandi. Þótt stór innflutningsmál geti sannarlega skekkt tölfræðina verulega, má sjá að árið 2014 voru ekki haldlögð nema 105 grömm og árið eftir 343 grömm.Vísir Vitað er til þess að fleiri haldlagningar hafa orðið af metamfetamíni í ár, sem þýðir að magnið er þegar orðið meira en árið 2020, þegar það var 653. Samkvæmt heimildum fréttastofu voru töflurnar sem fundust hjá konunum af gerðinni oxycodone og fentanyl, sem hvort tveggja eru einhver sterkustu verkjalyf sem til eru. Þetta eru ópíóðar, upphaflega runnir undan rifjum bandarískra lyfjafyrirtæka sem sum hafa sætt sektum vegna samfélagslega skaðans sem lyfin hafa valdið. Sprenging hefur orðið í notkun lyfjanna víða um heim en þeirra fór fyrst að verða vart á Íslandi fyrir nokkrum árum. Andlát hafa orðið hér á landi í tengslum við notkunina. Árið 2020 voru tæpir 200 í meðferð á Vogi vegna ópíóðafíknar.
Fíkniefnabrot Smygl Lögreglumál Tengdar fréttir Fjögur kíló af kókaíni í leynihólfi bíls í Norrænu Karl og kona á þrítugs- og fertugsaldri hafa setið í gæsluvarðhaldi í þrjár vikur grunuð um stórtækt fíkniefnasmygl hingað til landsins með Norrænu. Fjögur kíló af kókaíni fundust í sérútbúnu hólfi í bíl. 20. október 2021 13:45 Dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir stórfellt fíkniefnasmygl Mohamed Hicham Rahmi var á miðvikudag dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot. Hann var dæmdur fyrir að hafa í desember á síðasta ári staðið að skipulagningu og fjármögnun á innflutningi 4.832,5 gramma af hassi, 5.087 stykkjum af MDMA, 100 stykkjum af LSD og 255,84 grömmum af metamfetamíni til landsins. 2. júlí 2021 20:58 Sjö ára fangelsi staðfest í einu stærsta fíkniefnamáli Íslandssögunnar Landsréttur staðfesti í dag sjö ára fangelsisdóm yfir Þjóðverjanum Heinz Bernhard Sommer fyrir smygl á tæpum fjörutíu kílóum á amfetamíni og fimm kílóum af kókaíni. 11. september 2020 15:29 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Erlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Ástand Fico enn alvarlegt Erlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Býst við aukinni sókn Rússa Erlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Fleiri fréttir Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Sjá meira
Fjögur kíló af kókaíni í leynihólfi bíls í Norrænu Karl og kona á þrítugs- og fertugsaldri hafa setið í gæsluvarðhaldi í þrjár vikur grunuð um stórtækt fíkniefnasmygl hingað til landsins með Norrænu. Fjögur kíló af kókaíni fundust í sérútbúnu hólfi í bíl. 20. október 2021 13:45
Dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir stórfellt fíkniefnasmygl Mohamed Hicham Rahmi var á miðvikudag dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot. Hann var dæmdur fyrir að hafa í desember á síðasta ári staðið að skipulagningu og fjármögnun á innflutningi 4.832,5 gramma af hassi, 5.087 stykkjum af MDMA, 100 stykkjum af LSD og 255,84 grömmum af metamfetamíni til landsins. 2. júlí 2021 20:58
Sjö ára fangelsi staðfest í einu stærsta fíkniefnamáli Íslandssögunnar Landsréttur staðfesti í dag sjö ára fangelsisdóm yfir Þjóðverjanum Heinz Bernhard Sommer fyrir smygl á tæpum fjörutíu kílóum á amfetamíni og fimm kílóum af kókaíni. 11. september 2020 15:29