Fær 4,3 milljarða í laun fyrir tímabilið en neitar að mæta í vinnuna Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. september 2021 15:31 Joel Embiid og Ben Simmons eru stærstu stjörnur Philadelphia 76ers liðsins. EPA-EFE/ERIK S. LESSER Bandarískir fjölmiðlar hafa heimildir fyrir því að stórstjarnan Ben Simmons sé búinn að ákveða það að spila ekki fleiri leiki með liði Philadelphia 76ers í NBA-deildinni.
Simmons var mjög ósáttur með hvernig hlutirnir spiluðust á síðasta tímabili en mikið hefur verið sagt og skrifað um skelfilega skotnýtingu kappans sem er annars góður sendingamaður, öflugur frákastari og frábær varnarmaður. Hann er 211 sentimetra leikstjórnandi sem var með 14,3 stig, 7,2 fráköst og 6,9 stoðsendingar að meðaltali á sínu fjórða tímabili en allar þessar tölur lækkuðu frá tímabilinu á undan þegar kappinn var með 16,4 stig, 7,8 fráköst og 8,0 stoðsendingar að meðaltali í leik. ESPN story on the looming showdown between Ben Simmons and the 76ers: https://t.co/aM7puT82tS— Adrian Wojnarowski (@wojespn) September 21, 2021 Simmons hefur nú, samkvæmt heimildum ESPN, lýst því yfir við forráðamenn Philadelphia 76ers að hann muni ekki klæðast NBA treyju aftur fyrr en hann sé kominn í annað lið. Simmons á hins vegar eftir fjögur ár af samningi sínum við félagið sem ætlar að borga honum 147 milljónir Bandaríkjadala fyrir þessi fjögur tímabil eða yfir nítján milljarða króna. Bara fyrir komandi 2021-22 tímabil á Ben Simmons að fá 33 milljónir dala eða 4,3 milljarða í íslenskum krónum. Félagið vill halda þessum öfluga leikmanni, sem er enn bara 25 ára gamall, og það væri líka erfitt að skipta honum nema að gefa afslátt á virði hans sem er ekki eftirsóknarvert fyrir 76ers. Simmons gaf félaginu aftur á móti þessa afarkosti í ágúst og hefur ekki verið í neinu sambandi við félagið síðan. This is utterly ridiculous on the part of Ben Simmons. Come on, Bro! pic.twitter.com/HXZOBaTarJ— Stephen A Smith (@stephenasmith) September 21, 2021 Sixers getur auðvitað sektað Simmons fyrir að mæta ekki í vinnuna eða hætt að borga honum. Hver leikur sem hann missir af mun síðan kosta hann meira en 227 þúsund dollara eða 29 og hálfa milljón í íslenskum krónum. Það er einkum slök frammistaða Simmons í undanúrslitum Austurdeildarinnar sem fór fyrir brjóstið á mönnum en þar var hann aðeins með 9,9 stig í leik, 33 prósent vítanýtingu og skaut ekki einu þriggja stiga skoti sem bakvörður. Simmons var mjög ósáttur með að hafa verið gerður að blóraböggli eftir að liðið datt óvænt út á móti Atlanta Hawks en samband hans og yfirmanna félagsins hefur annars ekki verið á góðri leið í nokkur ár.
NBA Mest lesið Garnacho búinn að biðjast afsökunar Enski boltinn „Ef þetta er rautt, af hverju komast aðrir upp með að brjóta miklu oftar?“ Íslenski boltinn „Allt í lagi fram að rauða spjaldinu en breyttist mikið þá“ Íslenski boltinn „Ég elska Keflavík og ég elska Ísland“ Körfubolti Frá Englandsmeisturunum til meistaraliðs Bandaríkjanna Enski boltinn Dagskráin í dag: Sú Besta, stórleikur á Englandi, úrslitakeppni NBA og margt fleira Sport Håland tæpur fyrir stórleikinn gegn Chelsea Enski boltinn „Særð dýr eru hættulegustu dýrin“ Körfubolti „Við treystum á Remy og guð í kvöld“ Körfubolti Fylgist með þessum í Bestu deildinni í sumar Íslenski boltinn Fleiri fréttir Miami og New Orleans síðustu liðin inn: Svona lítur úrslitakeppni NBA út „Við treystum á Remy og guð í kvöld“ „Ég elska Keflavík og ég elska Ísland“ „Særð dýr eru hættulegustu dýrin“ Uppgjörið og viðtöl: Keflavík - Álftanes 88-84 | Keflvíkingar tóku forystuna í hörkuleik „Fínt að enda þetta þannig að fólk fái eitthvað fyrir peninginn“ Uppgjörið: Grindavík - Tindastóll 91-89 | Íslandsmeisturunum sópað úr leik í Smáranum Uppgjör og viðtöl: Valur - Njarðvík 67-82 | Íslandsmeistararnir í sumarfrí Verður fyrsta konan til að dæma í úrslitakeppni NBA í tólf ár Segir að hann verði bráðum bestur í NBA „Með því glórulausasta sem ég hef séð“ Bað Caitlin Clark afsökunar á karlrembunni í sér „Hlakka rosalega til að sjá troðfullt hús á mánudaginn“ Booker um sparkið í stellið: „Partur af körfuboltanum en þetta var allt of mikið“ Uppgjör og viðtöl: Njarðvík - Þór Þ. 107-110 | Þórsarar sigri frá undanúrslitum Uppgjörið: Valur - Höttur 94-74 | Valsmenn taka forystuna í einvíginu Ramos rekinn úr húsi fyrir að sparka í klof Bookers Curry reyndi að fá Clark til Under Armour en Nike hafði betur Lét leikmenn Tindastóls heyra það: Fólk hérna á þetta ekki skilið Baulað á Sixers en liðið kom til baka og komst áfram „Við bara fóðruðum dýrið og dýrið borðaði“ „Þær skoruðu full auðveldlega á okkur í dag“ „Sem betur fer var leikurinn bara 40 mínútur í dag“ Uppgjörið: Keflavík - Fjölnir 88-72 | Deildarmeistararnir flugu í undanúrslit Uppgjör, viðtöl og myndir: Haukar - Stjarnan 80-78 | Haukasigur eftir dramatík LeBron fer fyrir ógnarsterku liði Bandaríkjanna á ÓL Golden State komst ekki í úrslitakeppnina en Lakers verður með „Erum að spila á móti ríkjandi Íslandsmeisturum og þurfum að vera klárar“ „Náðum að keyra upp hraðann á réttum mómentum“ „Ég held að þetta komi bara með reynslunni“ Sjá meira