Ekki hægt að útiloka fleiri skjálfta yfir þremur og jafnvel stærri Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 21. október 2020 10:39 Jarðhitasvæðið Seltún í Krýsuvík er skammt frá upptökum stóra skjálftans í gær. Vísir/Vilhelm
Sigríður Magnea Óskarsdóttir, náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir ekki hægt að útiloka að stóra skjálftanum í gær fylgi fleiri skjálftar yfir þremur að stærð og jafnvel stærri. Klukkan 10:14 í morgun varð skjálfti að stærð 3,1 sem íbúar höfuðborgarsvæðisins fundu fyrir. Samkvæmt vef Veðurstofunnar voru upptök hans 4,5 kílómetra austur af Keili. Skjálftinn er einn af hátt í 2000 eftirskjálftum stórs jarðskjálfta sem reið yfir Reykjanesskagann klukkan 13:43 í gær. Hann var 5,6 að stærð og voru upptök hans voru í Núpshlíðarhálsi. Skjálftinn fannst vel víða um land, meðal annars á höfuðborgarsvæðinu, á Vestfjörðum og í Vestmannaeyjum. Um 1700 eftirskjálftar hafa mælst í skjálftahrinunni sem hófst í gær á Reykjanesskaga. Hrinunni er ekki lokið og nú í...Posted by Veðurstofa Íslands on Wednesday, October 21, 2020 Frá miðnætti hafa orðið á milli 700 og 800 eftirskjálftar. Tveir snarpir skjálftar urðu með kortersmillibili á sjöunda tímanum í morgun og fundust þeir meðal annars alla leið upp í Borgarfjörð. Sá fyrri sem varð klukkan 06:05 mældist 3,7 og sá síðari sem varð klukkan 06:23 mældist 3,8. Stærsti eftirskjálftinn hingað til var laust fyrir klukkan hálffjögur í gær og var hann fjórir að stærð. Svona hrinur taka nokkra daga, jafnvel vikur „Það hefur verið nokkur virkni og hún kemur í hviðum. Það virðist aðeins vera að hægja á en maður veit samt aldrei,“ segir Sigríður Magnea í viðtali við Vísi. Hún segir meirihlutann af eftirskjálftunum vera við Fagradalsfjall sem er aðeins vestar en Núpshlíðarháls. „Það er erfitt að spá með þessa skjálfta en ég held að það sé alveg óhætt að segja að það er ekki hægt að útiloka að það verði aðrir skjálftar yfir þremur að stærð og jafnvel stærri. Svona hrinur þær taka venjulega nokkra daga, jafnvel vikur, eftir svona stóra skjálfta þannig að það gildir bara áfram að fólk hugi vel að innanstokksmunum og kynni sér viðbúnað vegna jarðskjálfta og viðbrögð líka sem finna má inni á heimasíðu almannavarna,“ segir Sigríður. Ekki eru nein merki um gosóróa á skjálftasvæðinu að sögn Sigríðar. Spurð út í fréttir af því að fólk hafi fundið gaslykt aukna gaslykt í nágrenni Grænavatns á Núpshlíðarhálsi bendir Sigríður á að þarna rétt hjá sé jarðhitasvæðið Seltún í Krýsuvík. „Þar er mikill jarðhiti, bara yfirborðsvirkni. Það er ekkert óeðlilegt þegar jörðin hristist svona mikið þá losni svolítið um í jarðlögunum og þá geti jarðhitavirknin aukist að einhverju leyti og þar af leiðandi geti fólk fundið frekar gaslykt. Þetta tengist bara hreyfingunum í jarðskorpunni,“ segir Sigríður.
Eldgos og jarðhræringar Jarðhræringar á Reykjanesi Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Forsetaframbjóðandi er á villigötum“ Innlent „Sjálfum leiðast mér þessar nasistalíkingar“ Innlent OpenAI hættir notkun raddar eftir inngrip lögmanna Johansson Erlent Einn látinn eftir mikla ókyrrð í lofti Erlent Breytingar í borholum á Reykjanesi Innlent Stefnir í spennandi og sögulegar forsetakosningar Innlent Mikill viðbúnaður vegna bráðra veikinda Innlent Réttað yfir Hinrik XIII og öðrum leiðtogum valdaránstilraunar Erlent Mynd fer á flug í kjölfar tilrauna til að láta fjarlægja hana Erlent Lilja fundar með RÚV um „nýlenskuna“ Innlent Fleiri fréttir Herþristar á níræðisaldri til sýnis á Reykjavíkurflugvelli Íbúar undirbúa hópmálsókn vegna uppkaupa í Grindavík Líst best á Baldur og Höllu en verst á Ástþór Samningar loks í höfn eftir fjögurra ára samningsleysi „Forsetaframbjóðandi er á villigötum“ Um sautján milljónir rúmmetra af kviku bæst við kvikuhólfið Hafa enga trú á að hvalveiðar fari fram í sumar Breytingar í borholum og fylgi frambjóðenda enn á hreyfingu Stefnir í spennandi og sögulegar forsetakosningar Erfiðast að fá Baldur til að tala um sjálfan sig Nýjar reglur um sjálfbæra landnýtingu Skúli metinn hæfastur í Hæstarétt Breytingar í borholum á Reykjanesi „Sjálfum leiðast mér þessar nasistalíkingar“ Lögreglan lýsti eftir fimmtán ára gamalli stúlku Hafa náð lendingu um staðarval nýs kirkjugarðs Lilja fundar með RÚV um „nýlenskuna“ Katrín leiðir í nýrri könnun Prósents „Viðurkenning á því að þetta er blaðamennska sem hann var að stunda“ Þolinmæði saminganefnda á þrotum Gæsluvarðhald yfir Davíð Viðarssyni framlengt 80 til 120 herskip lágu í Hvalfirði Fyrsti stríðsþristurinn lentur Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna sé vanhæft til að takast á við aðstæðurnar Handtökuskipun á hendur forsætisráðherra og kjaradeila Séra Eva Björk ráðin biskupsritari Fimm stríðsþristar á leiðinni til landsins Samningur BÍ í höfn í Karphúsinu Ráðherrar hafi verið ítrekað varaðir við gjöf Haraldar „Ég stóð bara með sóttvarnalækni“ Sjá meira