„Leiðinlegt að horfa á leik með tæpum 30 stiga mun“ Atli Arason skrifar 3. febrúar 2023 23:01 Hjalti Þór Vilhjálmsson, þjálfari Keflavíkur. Vísir/Hulda Margrét Hjalti Þór Vilhjálmsson, þjálfari Keflavíkur, gat leyft sér að grínast örlítið og brosa út að eyrum eftir öflugan 20 stiga sigur hans manna á heimavelli gegn Breiðablik í kvöld, 109-89. „
Flottur leikur þar sem allir voru að leggja í púkkið, eintóm gleði og gaman. Varnarlega fannst mér við vera frábærir og sérstaklega fyrstu 15 mínúturnar. Þetta var fínasta frammistaða en það vantaði einbeitinguna á köflum,“ sagði Hjalti í viðtali við Vísi eftir leik. Með einbeitingarleysi átti Hjalti þá sérstaklega við kafla undir lok fyrri hálfleiks þar sem Keflavík var komið í 23 stiga forskot um miðbik 2. leikhluta en missti það niður í sjö stig á rúmum fjórum mínútum. „Það voru margir mættir á völlinn og það er leiðinlegt að horfa á leik með tæpum 30 stiga mun,“ grínaðist Hjalti og hló áður en hann bætti við. „Nei nei alls ekki, við þurfum auðvitað að halda einbeitingu og klára leikinn þegar við erum komnir 20 og eitthvað stigum yfir en við gerðum vel að svara áhlaupinu þeirra, við gerðum síðustu fimm stig fyrri hálfleiks og menn gerðu vel að svara fyrir sig.“ „Það var einbeitingarleysi og þá sérstaklega í innköstum hjá okkur við endalínuna þar sem þeir fengu a.m.k. tvo galopna þrista og það á bara ekki að gerast.“ Pétur Ingvarsson, þjálfari Breiðabliks, sagði í viðtali fyrir leikinn að Blikarnir ætluðu að spila hraðan og skemmtilegan bolta, ásamt litlum sem engum varnarleik. Aðspurður út í varnarleysi Breiðabliks sagði Hjalti það spilast vel upp í hendurnar á sínum leikmönnum en það væri þó eitthvað sem menn þurfa að passa sig á. „Það sást fyrstu 15 mínúturnar þar sem við skoruðum nánast úr hverri sókn. Svo fórum við svolítið að fara út úr okkar plani og vorum kærulausir að taka léleg skot og framkvæma sóknirnar okkar illa. Þá hlaupa þeir í bakið á þér og þeir eru mjög fljótir að setja punkta á töfluna.“ Jaka Brodnik hefur ekkert spilað með Keflvíkingum síðan fyrir jól vegna axlarmeiðsla en hann tók örlítinn þátt í upphitun Keflavík fyrir leikinn í kvöld án þess að beita sér að einhverri hörku. Hjalti býst við að Brodnik verður mættur aftur á leikvöllinn í næsta mánuði. „Við erum að stefna á mars en það er svo sem ekki alveg vitað. Hann er byrjaður að æfa aðeins, farinn að skjóta og hreyfa sig eitthvað. Hann er að verða góður í öxlinni en honum þarf að líða vel með það og vera tilbúinn að leggja sig fram og beita sér að krafti,“ sagði Hjalti Þór Vilhjálmsson, þjálfari Keflavíkur, að endingu.
Subway-deild karla Keflavík ÍF Mest lesið Sara hrundi niður listann eftir leiðréttingar Sport Davíð Tómasi bárust ljót skilaboð eftir leik: „Fokking mongolitið þitt“ Körfubolti Rashford: Nú er nóg komið Enski boltinn „Krakkarnir í stúkunni eru byrjaðir að taka upp á þessu líka“ Körfubolti Virk sprengja úr seinni heimsstyrjöldinni undir leikvangi Mainz Fótbolti Sjáðu og heyrðu sjónvarpslýsanda sturlast yfir Brynjólfi Fótbolti Leikmaður Newcastle tók meirapróf Enski boltinn Littler stríddi stuðningsmönnum Liverpool Sport Uppgjörið: Haukar 28-25 Fram | Aftur unnu Haukakonur eftir framlengingu Handbolti Sjáðu ótrúlegan flautuþrist Þorvaldar Orra Körfubolti Fleiri fréttir Aþena sendi sterk skilaboð í fyrsta leik Þrjú Suðurnesjalið í undanúrslitum í fyrsta sinn í tuttugu ár Davíð Tómasi bárust ljót skilaboð eftir leik: „Fokking mongolitið þitt“ „Krakkarnir í stúkunni eru byrjaðir að taka upp á þessu líka“ Lakers einu tapi frá því að vera sópað út úr úrslitakeppninni Sjáðu ótrúlegan flautuþrist Þorvaldar Orra „Tel mjög vafasamt að klukkan hafi verið sett af stað á réttum tíma“ „Vakna í hádeginu á morgun og fer að hugsa um Valsarana“ Uppgjörið: Njarðvík - Þór Þ. 98-97 | Þorvaldur Orri tryggði Njarðvík sigur með flautukörfu í framlengingu Friðrik Ingi sæmdur gullmerki Njarðvíkur Þórsarar hafa spilað þrjá oddaleiki síðan Njarðvík var síðast í oddaleik Sjokkeruðu Celtics menn með þriggja stiga skotsýningu „Heldur betur búinn að vinna hjörtu Keflvíkinga“ Tekið á móti Tryggva eins og Hollywood stjörnu Hristir hausinn yfir „glórulausum“ og „smásálarlegum“ ummælum Uppgjörið og viðtöl: Haukar 73-75 Stjarnan | Stjarnan áfram eftir naglbít Martin frábær í öruggum sigri „Við erum ekki með stráka sem þurfa að vera hetjur“ Sjáðu mömmu Remy Martin syngja og dansa á hliðarlínunni Luka og félagar jöfnuðu: „Þetta var 90s körfubolti eins og hann gerist bestur“ Sérfræðingarnir ekki sammála og mikil spenna fyrir oddaleikinn „Ég er bara mjög spenntur, þeir eru klárlega ‘the team to beat’“ „Maður hugsar ekki þannig sem þjálfari“ Uppgjör og viðtöl: Álftanes - Keflavík 85-114 | Sjóðheit Keflavíkursókn blés nýliðana burt Murray kramdi Lakers-hjörtun Viðar Örn: Stoltur af liðinu fyrir að skilja allt eftir á gólfinu Einar Árni hættur hjá Hetti „Erfitt að vinna þá þrisvar sinnum í röð“ Aþena er komið í úrslitaeinvígi um sæti í Subway-deild kvenna „Fannst að við hefðum átt að ná þessum mómentum fyrr“ Sjá meira
Uppgjörið: Njarðvík - Þór Þ. 98-97 | Þorvaldur Orri tryggði Njarðvík sigur með flautukörfu í framlengingu