Forseti Túnis búinn að reka forsætisráðherrann og rjúfa þing Eiður Þór Árnason skrifar 26. júlí 2021 00:02 Hörð mótmæli brutust út á sunnudag í nokkrum borgum í Túnis þegar fólk mótmælti ört versnandi stöðu heilbrigðis-, efnhags- og félagsmála í landinu. Ap/Hassene Dridi Kais Saied, forseti Túnis, rak í dag forsætisráðherrann og rauf þing en hann hyggst taka yfir stjórn landsins með aðstoð nýs forsætisráðherra. Stjórnarflokkurinn og þingforseti lýsa aðgerðunum sem valdaráni.
Aðgerðir forsetans eru sagðar nýjasti vendipunkturinn í ört versnandi stjórnmálakreppu og ljóst að nú mun reyna verulega á stjórnarskrá landsins sem tók gildi eftir lýðræðisbyltinguna árið 2014. Kveður hún meðal annars á um lýðræðislega stjórnarhætti og valddreifingu milli forseta, forsætisráðherra og þings. Í kjölfar fregnanna fylltust götur höfuðborgarinnar af fólki sem sýndu stuðning sinn í verki með fagnaðarlátum og bílflautum. Í frétt Reuters er stemningin sögð minna á þá sem ríkti í byltingunni árið 2011 en sú kveikti neista mótmælabylgju í Mið-Austurlöndum sem kennd er við Arabíska vorið. Vaxandi óánægja með stjórnvöld Ekki liggur fyrir hvort róttækar aðgerðir forsetans njóti víðtæks stuðnings í landinu en hann varaði í kvöld við því gripið yrði til vopna. Sagði Saied að herafli landsins myndi svara hverju byssuskoti í sömu mynt. Áralöng stöðnun, pólitísk spilling og vaxandi atvinnuleysi er sagt hafa leitt til vaxandi óánægju meðal Túnisbúa, löngu áður en kórónuveirufaraldurinn skók efnahaginn og gerði illt verra. Mótmæli, sem skipulögð voru af aðgerðarsinnum með hjálp samfélagsmiðla, voru áberandi fyrr í dag en þau nutu ekki stuðnings neins af stóru stjórmálaflokkunum. Fram kemur í frétt Reuters að reiði mótmælenda hafi að mestu beinst að íslamska miðjuflokknum Ennahda sem er sá stærsti á þinginu. Kváðust margir mótmælendur vera fegin því að losna undir oki stjórnvalda.
Túnis Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Steinunn Ólína skýtur föstum skotum á Katrínu Innlent Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Erlent Segir borgarstjóra óttalegan vettling Innlent Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Innlent Ætlaði að koma upp um barnaníðing en lenti í klóm hans Innlent „Dapurlegt“ að andstæðingar bólusetninga hafi svo mikil áhrif Innlent Eigendur sjókvíaeldis þurfa ekki að greiða auðlindagjald Innlent Vilja taka upp auðlindagjald að hætti Norðmanna Innlent Kínversk ferðaskrifstofa mátti sín lítils gegn TM Innlent Segir lág laun leikskólakennara mýtu Innlent Fleiri fréttir Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Fyrstu hergögnin eiga að berast til Úkraínu á næstu klukkustundum Segir ekki af sér þrátt fyrir njósnir aðstoðarmannsins Aðstoðarvarnarmálaráðherra ákærður fyrir mútuþægni Upptök eldsins í gömlu kauphöllinni enn ókunn Settur út af sakramentinu fyrir að stýra minningarstund um Navalní Handtóku barnunga öfgamenn eftir stunguárás í Sydney Ekki ólöglegt fyrir konur að brjóta gegn körlum Grunuð um að hafa banað tveimur börnum Vitni greinir frá ráðabruggi og lögmaður Trump fær viðvörun Öldungadeildin samþykkti 95 milljarða dala aðstoð við Úkraínu, Ísrael og Taívan Reyna að sigla um geiminn á geislum sólarinnar Lýsa yfir áhyggjum af fregnum af fjöldagröfum á Gasa Fá aftur gögn frá tæplega hálfrar aldar gömlu geimfari Umdeildur flutningur á hælisleitendum til Rúanda samþykktur Starfsmaður hægrijaðarflokks handtekinn fyrir njósnir fyrir Kína Gera alvarlegar athugasemdir við verðlaunakerfi Tik Tok Tugir handteknir á mótmælum háskólanema gegn aðgerðum Ísraels Undirbúa stærðarinnar sendingar til Úkraínu Engin sönnunargögn bendla UNRWA við árásina Hættu við umfangsmiklar árásir á Íran Sakaði Trump um að reyna að spilla kosningunum 2016 Dæmdu samskiptastjóra Meta fyrir að „verja hryðjuverk“ Modi sakaður um múslimaandúð í miðjum kosningum Dregur úr vinnu og verkefnum Evrópa hlýnar hraðast heimsálfanna Duda segir Pólverja reiðubúna til að geyma kjarnorkuvopn Segir af sér vegna mistaka í kringum árás Hamas Rallýbíll ók á áhorfendur á Sri Lanka Ísraelar æfir yfir fyrirhuguðum þvingunum á Netzah Yehuda herdeildina Sjá meira