NBA stjarnan sem neitar að mæta í vinnuna stefnir í gjaldþrot Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. nóvember 2021 11:31 Ben Simmons í leik með Philadelphia 76ers í NBA-deildinni á síðustu leiktíð. Getty/Kevin C. Cox NBA körfuboltamaðurinn Ben Simmons neitar enn að mæta í vinnuna hjá Philadelphia 76ers sem ætlaði að borga honum fjóra milljarða íslenskra króna fyrir þetta tímabil. Fyrir vikið fær hann ekki útborgað og það er að koma karlinum í vandræði.
Simmons fór í fýlu eftir að hann var gerður að blóraböggli eftir klúður Sixers liðsins í úrslitakeppninni á síðasta tímabili. Hann átti gagnrýnina eflaust skilið enda skaut hann ekki á körfuna og hitti skelfilega á vítalínunni en hann vantaði vissulega meiri stuðning frá liðsfélögunum og félaginu sjálfu. Ben Simmons may be forced to make a return sooner than later. pic.twitter.com/1Uo6v7zpbL— theScore (@theScore) November 25, 2021 Það hefur ekki enn tekist að laga sambandið þar á milli og því spilar Philadelphia 76ers enn án eins síns besta leikmanns. Fýlan rann nefnilega ekki af Simmons yfir sumarið og hann neitaði að mæta á æfingar í haust. Þegar hann mætti loksins eftir að Sixers hætti skiljanlega að borga honum laun þá entist það ekki lengi. Doc Rivers, þjálfari Philadelphia 76ers, endaði á að reka hann af æfingu og hann hefur ekki mætt síðan þá. Nýjustu fréttirnar af Simmons er að hann stefnir í gjaldþrot vegna óhóflegrar neyslu nú þegar launin berast honum ekki lengur. Hinn 25 ára gamli Simmons kaupir víst nýjan bíl í hverjum mánuði og hefur keypt tvö hús í Philadelphia sem eru 17,5 milljónum dollara virði. Simmons skrifaði undir fimm ára samning á 2019-20 tímabilinu sem átti að skila honum 177 milljónum Bandaríkjadala. 76ers hefur þegar borgað honum 90 milljónir dollara af þessum samning. Fjarvera hans á þessu tímabili hefur kostað hann mikinn pening. Hann gæti endað á því að tapa tuttugu milljónum dala á þessu tímabili eða 2,6 milljörðum íslenskra króna. Miðað við fréttir af peningavandræðum Simmons þá er kannski von um að menn fái að sjá hann mæta aftur í vinnuna og kannski fara að spila á ný með Sixers liðinu. Ben Simmons er frábær leikmaður, öflugur leikstjórnandi og frábær varnarmaður. Hann er aftur á móti mjög lélegur skotmaður og þoldi greinilega ekki pressuna að spila á stóra sviðinu í úrslitakeppninni.
NBA Mest lesið Sara hrundi niður listann eftir leiðréttingar Sport Virk sprengja úr seinni heimsstyrjöldinni undir leikvangi Mainz Fótbolti „Tel mjög vafasamt að klukkan hafi verið sett af stað á réttum tíma“ Körfubolti Sjáðu ótrúlegan flautuþrist Þorvaldar Orra Körfubolti Magnaðasta mark sumarsins á fyrsta degi þess? Fótbolti Littler stríddi stuðningsmönnum Liverpool Sport LA Rams velja nýliðana í 16 milljón dollara glæsivillu Sport Slot staðfestir að hann vilji taka við Liverpool Enski boltinn „Frábær úrslit fyrir okkur og félagið“ Fótbolti „Vakna í hádeginu á morgun og fer að hugsa um Valsarana“ Körfubolti Fleiri fréttir Sjáðu ótrúlegan flautuþrist Þorvaldar Orra „Tel mjög vafasamt að klukkan hafi verið sett af stað á réttum tíma“ „Vakna í hádeginu á morgun og fer að hugsa um Valsarana“ Uppgjörið: Njarðvík - Þór Þ. 98-97 | Þorvaldur Orri tryggði Njarðvík sigur með flautukörfu í framlengingu Friðrik Ingi sæmdur gullmerki Njarðvíkur Þórsarar hafa spilað þrjá oddaleiki síðan Njarðvík var síðast í oddaleik Sjokkeruðu Celtics menn með þriggja stiga skotsýningu „Heldur betur búinn að vinna hjörtu Keflvíkinga“ Tekið á móti Tryggva eins og Hollywood stjörnu Hristir hausinn yfir „glórulausum“ og „smásálarlegum“ ummælum Uppgjörið og viðtöl: Haukar 73-75 Stjarnan | Stjarnan áfram eftir naglbít Martin frábær í öruggum sigri „Við erum ekki með stráka sem þurfa að vera hetjur“ Sjáðu mömmu Remy Martin syngja og dansa á hliðarlínunni Luka og félagar jöfnuðu: „Þetta var 90s körfubolti eins og hann gerist bestur“ Sérfræðingarnir ekki sammála og mikil spenna fyrir oddaleikinn „Ég er bara mjög spenntur, þeir eru klárlega ‘the team to beat’“ „Maður hugsar ekki þannig sem þjálfari“ Uppgjör og viðtöl: Álftanes - Keflavík 85-114 | Sjóðheit Keflavíkursókn blés nýliðana burt Murray kramdi Lakers-hjörtun Viðar Örn: Stoltur af liðinu fyrir að skilja allt eftir á gólfinu Einar Árni hættur hjá Hetti „Erfitt að vinna þá þrisvar sinnum í röð“ Aþena er komið í úrslitaeinvígi um sæti í Subway-deild kvenna „Fannst að við hefðum átt að ná þessum mómentum fyrr“ Uppgjör: Þór Þ. - Njarðvík 84-91 | Gestirnir tryggðu sér oddaleik Uppgjör og viðtöl: Höttur - Valur 97-102 | Valsmenn í undanúrslit eftir framlengdan leik á Egilsstöðum Losnar stjarna Aþenu úr frystiklefa Brynjars Karls? Skoraði 35 stig í fyrri hálfleik „Mér finnst þetta fullmikið“ Sjá meira
Uppgjörið: Njarðvík - Þór Þ. 98-97 | Þorvaldur Orri tryggði Njarðvík sigur með flautukörfu í framlengingu
Uppgjör og viðtöl: Höttur - Valur 97-102 | Valsmenn í undanúrslit eftir framlengdan leik á Egilsstöðum