„Þórsarar horfa upp töfluna en KR-ingar eru að róa lífróður“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. febrúar 2023 15:02 Antonio „Booman“ Williams í leik með KR en hann hefur spilað tvo leiki með liðinu. Annar vannst en hinn tapaðist í framlengingu. Vísir/Diego Tvö lið sem urðu Íslandsmeistarar fyrir aðeins nokkrum árum spila líf upp á líf eða dauða í Subway deild karla í körfubolta í kvöld.
Botnlið KR tekur á móti Þórsurum úr Þorlákshöfn sem sitja í tíunda sætinu, fjórum stigum fyrir ofan Vesturbæinga. Leikurinn hefst klukkan 18.15 og er sýndur beint á Stöð 2 Sport. Guðjón Guðmundsson ræddi við Kjartan Atla Kjartansson, umsjónarmann Subway Körfuboltakvöld, í hádegisfréttum Bylgjunnar. „Þetta skiptir miklu máli. Bæði liðin eru búin að ströggla á þessari leiktíð, svo ekki sé fastar að orði kveðið. Þau eru búin að vera í svona þriggja liða pakka alveg við fallið,“ sagði Kjartan Atli Kjartansson. KR-ingar þurfa nauðsynlega á sigri að halda „Þórsarar unnu síðasta leik á móti Hetti og eru að horfa upp töfluna en KR-ingar eru að róa lífróður. Þeir eru núna fjórum stigum frá öruggu sæti og það eru Þórsarar sem eru í næsta örugga sæti fyrir ofan KR. KR-ingar þurfa því nauðsynlega á sigri að halda í kvöld,“ sagði Kjartan Atli. Væri það dauðadómur fyrir KR-liðið tapi það leiknum í kvöld? „Nei, ekki alveg. KR-ingar eru búnir að bretta upp ermarnar þó þeir séu í körfuboltabúningum. Þeir líta út fyrir að geta unnið núna mjög mörg lið í þessari deild. Þetta er enginn dauðadómur en mjög mikilvægur leikur,“ sagði Kjartan. Átta leikmenn úr fyrri leiknum ekki með í kvöld „KR-ingar unnu fyrri leikinn með þremur stigum og til marks um hvað þetta er búið að vera erfitt tímabil fyrir bæði lið þá eru átta leikmenn, sem léku stórt hlutverk í þeim leik, ekki með í kvöld. Það er búin að vera mikil leikmannavelta hjá báðum þessum liðum,“ sagði Kjartan sem sér þó framfarir hjá liðunum tveimur. „Þau eru búin að hitta á góða blöndu og þetta verður svakalegur leikur í kvöld,“ sagði Kjartan. „Það sá það enginn fyrir í upphafi mótsins að KR yrði í þessari stöðu,“ sagði Guðjón Guðmundsson. Skakkaföll sem enginn sá fyrir „Nei það sá það enginn fyrir en ég held að allir hafi séð fyrir að þetta gæti orðið erfitt tímabil. Ekki svona erfitt. Það var ekki hægt að reikna út öll þessi skakkaföll sem KR-ingar urðu fyrir eins og með bandaríska stjörnuleikmanninn þeirra Michael Mallory sem hóf tímabilið með þeim. Hann meiddist á undirbúningstímabilinu og þú getur ekki spáð fyrir um það,“ sagði Kjartan Atli. „Þetta er búið að vera erfitt en Helgi Már þjálfari er búinn að finna fína blöndu núna. Þeir sýndu það á móti Haukum að þeir geta unnið öll liðin í deildinni,“ sagði Kjartan.
Subway-deild karla KR Þór Þorlákshöfn Mest lesið Kelce framlengir og verður launahæsti innherji sögunnar Sport „Þeir voru bara miklu betri í kvöld og áttu sigurinn skilið“ Körfubolti „Við eigum að geta varist föstum leikatriðum“ Íslenski boltinn Rúnar Páll: Við eigum þetta ekki skilið en svona er þetta Fótbolti Lopetegui tekur við AC Milan Fótbolti „Skákin er bara byrjuð“ Körfubolti Uppgjör: Valur - Njarðvík 84 - 105 | Deildarmeistararnir fengu kjaftshögg Körfubolti Albert skoraði þegar Genoa gulltryggði sætið í efstu deild Fótbolti Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Fram 1-1 | Ungir Framarar halda áfram að stela senunni Íslenski boltinn „Það er mikill efniviður í Fram“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Þeir voru bara miklu betri í kvöld og áttu sigurinn skilið“ „Skákin er bara byrjuð“ Uppgjör: Valur - Njarðvík 84 - 105 | Deildarmeistararnir fengu kjaftshögg „Gæinn væri Alpha hundur í öllum liðum“ Tók sinn tíma að jafna sig Landsliðsmaður blandar sér í umræðuna um umdeilda sigurkörfu Njarðvíkinga Liðsfélagarnir í sumarfríi en hann að vinna tólf tíma á dag á Íslandi Fyrstir áfram en þjálfarinn meiddist alvarlega þegar leikmaður hans lenti á honum „Hver karfa skiptir máli þannig að ég varð smá reiður“ Uppgjör: Grindavík - Njarðvík 79-83 | Grænar stálu heimavellinum í Smáranum Brunson skaut Philadelphia í kaf LeBron og Davis köstuðu líflínu til Lakers Bucks líklega án beggja ofurstjarna sinna í leik fjögur Góður leikur Tryggva skilaði engu „Kviknaði á okkur og við náðum að slökkva í þeim“ Uppgjör og viðtöl: Keflavík - Stjarnan 93-65 | Ótrúlegur seinni hálfleikur og Keflavík leiðir „Höfum verið að bíða eftir þessu“ Úlfarnir einum sigri frá því að senda Sólirnar í sumarfrí Aþena sendi sterk skilaboð í fyrsta leik Þrjú Suðurnesjalið í undanúrslitum í fyrsta sinn í tuttugu ár Davíð Tómasi bárust ljót skilaboð eftir leik: „Fokking mongolitið þitt“ „Krakkarnir í stúkunni eru byrjaðir að taka upp á þessu líka“ Lakers einu tapi frá því að vera sópað út úr úrslitakeppninni Sjáðu ótrúlegan flautuþrist Þorvaldar Orra „Tel mjög vafasamt að klukkan hafi verið sett af stað á réttum tíma“ „Vakna í hádeginu á morgun og fer að hugsa um Valsarana“ Uppgjörið: Njarðvík - Þór Þ. 98-97 | Þorvaldur Orri tryggði Njarðvík sigur með flautukörfu í framlengingu Friðrik Ingi sæmdur gullmerki Njarðvíkur Þórsarar hafa spilað þrjá oddaleiki síðan Njarðvík var síðast í oddaleik Sjokkeruðu Celtics menn með þriggja stiga skotsýningu Sjá meira
Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Fram 1-1 | Ungir Framarar halda áfram að stela senunni Íslenski boltinn
Uppgjörið: Njarðvík - Þór Þ. 98-97 | Þorvaldur Orri tryggði Njarðvík sigur með flautukörfu í framlengingu
Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Fram 1-1 | Ungir Framarar halda áfram að stela senunni Íslenski boltinn