Keyrðu út af í Víkurskarði: „Helvíti hvasst, hálka á veginum og slabb“ Máni Snær Þorláksson skrifar 3. febrúar 2023 16:31 Myndin sem Ragnar tók út um gluggann. Hann segir að enginn hafi slasast er bíllinn fór út af veginum. RAX Skilyrði til aksturs voru slæm á Norðurlandi í dag en bíll fór út af veginum og festist í Víkurskarði í Þingeyjarsveit.
Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur hjá Vegagerðinni, segir í samtali við fréttastofu að hápunkti lægðarinnar sé náð á sunnanverðu landinu. „Skilin sem eru á undan lægðinni, þau eru á leið til norðurs og á undan þeim er hvassviðri og það hlýnar. Sumir vegir á Norðurlandi eru að detta í flughálku um leið og hlýnar en vonandi þá bráðnar nú fljótt af þeim en það er ekkert grín að vera á ferðinni í hvössum vind og þegar það er hálka,“ segir Einar. Þá varaði hann fólk við að ferðast um landið í veðri sem þessu: „Það er snjóþekja og þetta eru erfið akstursskilyrði. Ég myndi sjálfur ekki vilja vera að ferðast á milli landshluta í svona veðri en staðan hjá fólki er ólík og mismunandi. Það þarf að fara varlega og fylgjast vel með og umfram allt að vera vel búinn.“ Tók mynd út um gluggann Ljósmyndarinn Ragnar Axelsson, eða RAX, var á ferðinni í Víkurskarði í dag og náði mynd út um gluggann á færð af bílnum sem sat fastur. Hann segir að engin slys hafi orðið á fólki og að þetta hafi ekki verið alvarlegt. Myndin sýni þó hvað akstursskilyrðin voru slæm í dag. „Það er búið að vera rosa hvasst. Það fór alveg upp í svona 30 metra á sekúndu þarna hjá fjöllunum. Þegar við komum þarna var helvíti hvasst, hálka á veginum og slabb – menn voru að keyra út af,“ segir Ragnar í samtali við Vísi. Rútuslysið einnig á Norðurlandi eystra Gular viðvaranir eru enn í gildi víða um landið en þó ekki á Norðurlandi eystra, þar sem bíllinn fór út af. Einnig varð rútuslys á svæðinu, nánar tiltekið á Ólafsfjarðarvegi, um klukkan 14:30 í dag. Rútan sem um ræðir keyrði út af veginum og valt. Tuttugu og fimm farþegar voru í rútunni auk ökumanns og fararstjóra en engin alvarleg slys urðu á fólki.
Veður Þingeyjarsveit RAX Tengdar fréttir Rútuslys varð á Ólafsfjarðarvegi Rútuslys varð á Ólafsfjarðarvegi laust fyrir klukkan 14:30 í dag þegar rútan keyrði út af veginum og valt. Tuttugu og fimm farþegar voru í rútunni auk ökumanns og fararstjóra en engin alvarleg slys urðu á fólki. 3. febrúar 2023 16:00 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Facebook bannar Ástþóri að auglýsa Innlent María Sigrún birtir tölvupósta Dags Innlent Fylgjast grannt með gangi mála Innlent Býður þjóðarhöll Færeyja undir landsleiki Íslands Innlent Efstar með ómarktækan mun á milli sín Innlent Reykjavík lækkar gjaldskrár vegna þjónustu við barnafjölskyldur Innlent „Á endanum snýst þetta allt um peninga“ Innlent Hjól undan strætó braut svalir á annarri hæð Innlent Eldur í iðnaðarhúsnæði á Höfða Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fleiri fréttir Facebook bannar Ástþóri að auglýsa Býður þjóðarhöll Færeyja undir landsleiki Íslands Reykjavík lækkar gjaldskrár vegna þjónustu við barnafjölskyldur Fylgjast grannt með gangi mála Margt bendi til þess að gosinu sé lokið María Sigrún birtir tölvupósta Dags „Á endanum snýst þetta allt um peninga“ Sækja veikan sjómann Eldur í iðnaðarhúsnæði á Höfða Efstar með ómarktækan mun á milli sín Fjögurra bíla árekstur efst í Ártúnsbrekku Björn Leví segir Harald hafa fundið skálkaskjól í orðum Bjarna Flæði innan við einn rúmmetri á sekúndu „Ég hafna því að við séum ekki að sinna velferð dýra á þessum bæ” Ákvörðun Seðlabankans sé óskiljanleg „Ríkisfjármálin eru í ruglinu“ Atvinnubílstjórar sýni minnstu tillitssemina Orkuveitan skilar Elliðaárdalnum Stuðningsmenn Katrínar áhugasamari en aðrir Lengri lokun þar sem kerfið hefur „hangið á bláþræði“ Skúli Tómas sinnir sjúklingum af og til „Allir að bíða eftir þessum atburði sem ekki skeður“ Nýborin lömb finnist dauð og deyjandi úr vosbúð „Hef haft áhyggjur af fangelsismálum frá því ég kom í embætti“ „Kastljós á ekki að vera Staksteinar“ Kannabis en ekki kjólar í kassanum Halla Hrund áfram efst Fjöldaúrsagnir kvenna úr mannkyninu Leki kom að bát út af Barða Óbreyttir stýrivextir, fangamál og dræmt Eurovision áhorf Sjá meira
Rútuslys varð á Ólafsfjarðarvegi Rútuslys varð á Ólafsfjarðarvegi laust fyrir klukkan 14:30 í dag þegar rútan keyrði út af veginum og valt. Tuttugu og fimm farþegar voru í rútunni auk ökumanns og fararstjóra en engin alvarleg slys urðu á fólki. 3. febrúar 2023 16:00