Handknattleiksdeild Þórs hefur bætt við leikmanni í hópinn en liðið leikur í efstu deild karla, Olísdeildinni.
Þór hefur samið við Viorel Bosca sem er 22 ára örvhent skytta samkvæmt fréttatilkynningu frá félaginu.
Þar segir ennfremur:
„Bosca kemur frá Rúmeníu, hann er 192 cm á hæð og 92 kíló. Hann lék allan sinn feril til þessa með rúmenska félaginu HC Baia Mare þar til hann gekk til liðs við Hubo Initia Hasselt í Belgíu. Þess utan hefur Bosca spilað með yngri landsliðum Rúmeníu. Viorel Bosca verður löglegur með Þór í fjórðu umferð þegar Þór tekur á móti ÍBV.“