„Skítaveður“ í tveimur skömmtum væntanlegt Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 11. janúar 2022 14:58 Hvassviðri og slydda eða snjókoma fylgir veðrinu. Vísir/Vilhelm Gular viðvaranir eru í gildi fyrir vestanvert landið í kvöld, nótt, morgundaginn og fram á fimmtudag. Reiknað er með hvassviðri og éljagangi í tveimur skömmtum. „
Þetta eru alls ekki ólík veður en það er smá bil á milli þeirra,“ segir Birgir Örn Höskuldsson, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands í samtali við fréttastofu. Fyrsta viðvörunin tekur gildi klukkan 22 í kvöld á höfuðborgarsvæðinu, Faxaflóa og Suðurlandi þar sem reiknað er með suðvestan 15-23 metrum á sekúndu með lélegu skyggni og versnandi akstursskilyrðum. Gengur hratt yfir Klukkan 23 bætist gul viðvörun við Breiðafjörð og á miðnætti nær viðvörunin einnig yfir Vestfirði, Strandir og Norðurland vestra. Detta þær svo ein af öðrum út til klukkan fimm í nótt þegar landið verður viðvörunarlaust. Staðan á miðnætti.Veðurstofan „Seint í kvöld hvessir duglega á vestanverðu landinu. Það fylgir þessu slydda eða snjókoma í svolítinn tíma. Þetta gengur hratt yfir. Það verður skítaveður í kannski einhverja tvo, þrjá, fjóra tíma á hverjum stað, ekki mikið meira,“ segir Birgir Örn. Umferð gæti spillst Klukkan níu á morgun hefst önnur umferð af gulum viðvörunum. Þá er varað við suðvestan stomi og éljum á Breiðafirði með lélegu skyggni og versnandi akstursskilyrðum. Klukkan tólf á morgun bætast gular viðvaranir við á höfuðborgarsvæðinu, Faxaflóa, Vestfjörðum, Ströndum og Norðurlandi vestra, með sömu eða svipuðum veðurskilyrðum og varað er við á Breiðafirði um morguninn. Þessar viðvaranir gilda fram á fimmtudag. „Það hvessir aftur og um hádegi á morgun er kominn hvassviðri eða stormur og éljagangur á vestanverðu landinu,“ segir Birgir Örn. Búast má við einhverjum samgöngutruflunum vegna veðursins en Vegagerðin hefur varað við því að færð geti spillst á Holtavörðuheiði og Öxnadalsheiði.
Veður Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Mig langaði bara að drepa þennan mann“ Innlent Samfélagið í áfalli vegna málsins Innlent Ragnar Freyr segist hreinsaður af sök Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Læknir segir að brottvísun muni ógna lífi sjúklings Innlent Fjölbýlishús hrundi í Belgorod Erlent Mótmælin gegn „rússnesku“ lögunum stækka enn Erlent Rannsaka alvarlegt ofbeldisbrot í Árnessýslu Innlent Minnstu smáatriði úthugsuð og til þess gerð að skapa hughrif Innlent „Er réttur þinn eða mannréttindi að einhver annar deyði þig?“ Innlent Fleiri fréttir „Algjörlega forkastanlegt“ ef stjórnvöld svari ekki beiðninni Minnstu smáatriði úthugsuð og til þess gerð að skapa hughrif Samfélagið í áfalli vegna málsins Vilja bæta íslenskukennslu fyrir innflytjendur Ragnar Freyr segist hreinsaður af sök Læknir segir að brottvísun muni ógna lífi sjúklings „Er réttur þinn eða mannréttindi að einhver annar deyði þig?“ Kviknaði í bragga á Egilsstöðum Bíó og plokkfiskur á Patreksfirði um hvítasunnuhelgina Meint fjárkúgun, frelsissvipting og líkamsárás Rannsaka alvarlegt ofbeldisbrot í Árnessýslu Pólitíkin, dánaraðstoð, NATO og kosningar á Sprengisandi „Mig langaði bara að drepa þennan mann“ Grunaðir um rán í miðbænum Aðrir frambjóðendur en efstu tveir eigi töluvert langt í land Sauð upp úr milli bónda og dýraverndunarsinna Kappræðurnar höfðu talsverð áhrif á kjósendur Forréttindi að fá að fylgja fólki í gegnum erfiðasta tíma lífsins Vilja breyta fyrirkomulagi við úthlutun plássa „Maður getur varla ímyndað sér hvað þarf að koma til“ Handtaka hælisleitenda og brottrekstur Hollands úr Eurovision Hitaveitulögn sprakk í Breiðholti Leita enn að þeim sem réðu barnabarninu bana Rigning í kortunum í kvöld „Hann hættir bara ekki” Hótaði lögregluþjónum og fjölskyldum þeirra Vilja að plássum í sumarfrístund sé útdeilt með sanngjarnari hætti Mótmælendur gegn brottvísun hindruðu för lögreglubíls Gætu verið einhverjar vikur í næsta gos Forsetakosningar á Eyrarbakka – munu sakna buffsins frá Guðna Sjá meira