Ajax skoraði þrettán mörk

Ajax valtaði yfir VVV-Venlo.
Ajax valtaði yfir VVV-Venlo. AFP

Hollenska stórveldið Ajax sló nýtt met í efstu deild Hollands í fótbolta í dag er liðið vann 13:0-útisigur á VVV-Venlo.

Hinn 19 ára gamli Lassina Traore gerði sér lítið fyrir og skoraði fimm mörk fyrir Ajax. Jurgen Ekkelenkamp og Klaas-Jan Huntelaar skoruðu tvö hvor og Lisandro Martínez, Anthony Santos, Daley Blind og Dusan Tadic eitt mark. 

Christian Kum fékk beint rautt spjald á 52. mínútu í stöðunni 4:0 og Ajax gekk vægast sagt á lagið í kjölfarið. 

Ajax er í toppsæti deildarinnar með 15 stig eftir sex leiki og VVV-Venlo í tíunda sæti með fimm stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert