„Eldmóður er í hópnum og ofboðslega góður andi“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 10. janúar 2022 20:01 Guðmundur Guðmundsson ræðir við Ými Örn Gíslason. vísir/vilhelm Guðmundur Guðmundsson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í handbolta, segir enga óskastöðu að hafa ekki fengið æfingaleiki fyrir Evrópumótið sem hefst á fimmtudaginn.
Ísland átti að mæta Litáen í tveimur leikjum á Ásvöllum. Ekkert varð af þeim eftir að Litáar hættu við að koma til landsins. Og það var kannski eins gott því einn leikmaður liðsins er smitaður af kórónuveirunni. Ísland hefur ekki leikið landsleik síðan 2. maí í fyrra. Íslenska liðið vann þá Ísrael, 39-29, í síðasta leik sínum í undankeppni EM. Átta mánuðir eru því frá síðasta landsleik. „Þetta er engin óskastaða. Liðin leggja mikla áherslu á að fá leiki. En við getum ekki breytt því. Vonandi verður þetta nægilega góður undirbúningur,“ sagði Guðmundur á blaðamannafundi í dag. Að hans sögn eru allir leikmennirnir í íslenska hópnum heilir heilsu og klárir í slaginn. Held og vona að það hafi verið rétt ákvörðun Íslenska liðið hefur æft stíft undanfarna daga og spilað tvo innbyrðis æfingaleiki. Liðið hefur verið í búbblu á Grand hótel til að forðast kórónuveirusmit. „Það var tekin sú ákvörðun að fara með hópinn í svokallaða vinnustaðasóttkví. Ég held og vona að það hafi verið rétt ákvörðun,“ sagði Guðmundur. „Það hefur ekki enn greinst smit síðan við komum saman hér heima og það eru jákvæð tíðindi. Vonandi verður það þannig áfram. Leikmennirnir eru mjög einbeittir og hafa gert þetta einstaklega faglega. Auðvitað hefur reynt á menn að vera í hálfgerðri einangrun en ég verð að hrósa þeim fyrir hversu faglega þeir hafa nálgast þetta. Ég finn fyrir því að það er eldmóður er í hópnum og ofboðslega góður andi. Ég held að leikmenn hafi líka kynnst betur í þessum aðstæðum. Menn eru fullir tilhlökkunar. Eins og leikmenn hlakka ég til að glíma við þetta.“ Stærra hlutverk Ágústs Ágúst Jóhannsson, þjálfari kvennaliðs Val og aðstoðarþjálfari kvennalandsliðsins, er nýr í þjálfarateymi karlalandsliðsins. Hlutverk hans stækkaði eftir að aðstoðarþjálfarinn Gunnar Magnússon smitaðist af veirunni. „Hann var fenginn til að fókusa á markverði. Gunnar hefur verið í einangrun og ekki verið með. En við tökum upp allar æfingar og höfum svo greint þær eftir á. Gunnar hefur séð þær allar,“ sagði Guðmundur. „Fyrir vikið hefur Ágúst verið virkari inn í sal. Hans aðaláhersla hefur verið á markverðina og hann heldur utan greiningu á skotum og annað slíkt.“ Íslenska liðið heldur til Búdapest á morgun. Fyrsti leikur þess á EM er svo gegn Portúgal á föstudaginn.
EM karla í handbolta 2022 Mest lesið Líf Chaz á Íslandi gæti endað á Netflix Körfubolti Andri og Eiður mættir til Belgíu að semja Fótbolti Léku með eftirnöfn mæðra sinna á treyjunum Fótbolti Fékk flösku í hausinn í gær og mætti með hjálm í dag Sport Trúir að Burnley snúi aftur upp: „Er ekki að væla og vorkenna okkur“ Fótbolti Dagskráin í dag: Stútfullur sófasunnudagur Sport Hálf áttræður Warnock gæti snúið aftur tveimur mánuðum eftir að hann hætti Fótbolti „Núna skora ég á Njarðvíkinga að jafna baráttuna í stúkunni“ Körfubolti Patrick til bjargar eftir klúður Gylfa og klaufamörk á Akranesi Íslenski boltinn „Þetta eru leikirnir sem að maður vill spila“ Körfubolti Fleiri fréttir Heimsmeistararnir stöðvaðir á síðustu stundu Uppgjörið: Eistland - Ísland 24-37 | Gengu örugglega frá Eistum og tryggðu farseðil á HM Frost í sókn en sveinar Dags mörðu sigur Segja Ísland hafa skorað fimmtíu án þess að svitna „Annað hvort gera þeir eins og Man. City eða eins og Liverpool“ Grafalvarleg staða: „Við verðum að breyta þessu strax“ Einar Bragi skrifaði undir tveggja ára samning í Svíþjóð Slóvakía skellti Póllandi óvænt í umspili HM „Við vorum skugginn af sjálfum okkur“ Uppgjörið og viðtöl: Valur - Haukar 28-27 | Íslandsmeistarnir sluppu með skrekkinn Gagnrýnir lítinn stuðning við afreksíþróttafólk: „Upphæðin ein og sér er grín“ Myndaveisla frá risasigrinum á Eistum Færeyingar hársbreidd frá fyrsta heimsmeistaramótinu Uppgjörið: Ísland - Eistland 50-25 | Stigu bensínið í botn frá fyrstu mínútu „Ánægður að við sýndum þá hlið að við getum verið góðir í sextíu mínútur“ Þakklátur eftir fyrsta landsleikinn: „Tek bara einn dag fyrir í einu“ „Ekkert sjálfgefið að valta yfir lið“ Skyldusigur í kvöld: „Þurfum að koma okkur inn á HM“ Einar Bragi verður einn af strákunum okkar í kvöld „Það er stórmót í húfi“ Stjörnumarkvörðurinn í vandræðum með augað á sér Ísland eignast nýtt EHF dómarapar Bleyjur og klósettpappír áhorfenda kostuðu ÍBV Enn hægt að fá miða á HM-leikinn í kvöld Farangurinn flæktist fyrir Gísla: „Kom beint af flugvellinum“ Undanúrslit í Meistaradeildinni klár „Bara að fara heim og hitta mömmu“ Fjórir frá vegna meiðsla: „Dagurinn ekkert frábær á skrifstofunni“ „Höfum spilað vel án Arons áður“ „Veit ekki hvað Elmar þarf að gera til að komast í landsliðið“ Sjá meira