Seðlabankinn telur kreppu ferðaþjónustunnar standa langt fram á næsta ár Heimir Már Pétursson skrifar 18. nóvember 2020 20:36 Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri. Vísir/Vilhelm
Ekki er gert ráð fyrir að ferðaþjónusta taki við sér fyrr en á seinni hluta næsta árs samkvæmt nýrri spá peningastefnunefndar Seðlabankans. Atvinnuleysi verður meira og verðbólga hærri til lengri tíma. Seðlabankinn lækkaði meginvexti sína um 0,25 prósentustig í morgun og eru þeir orðnir lægri en lægstu sögulegu vextir hingað til eða 0,75 prósent. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri vonar að lækkunin verði til að örva fjárfestingu. Hver er megin tilgangurinn með lækkun vaxta núna? „Við viljum örva hagkerfið. Við erum komin með gríðarlega mikinn samdrátt í efnahagslífið og mikið atvinnuleysi og við viljum bregðast við því," segir Ásgeir. Þannig hafði útflutningur á öðrum ársfjórðungi dregist saman um 40 prósent og er Ísland þar á toppnum með Portúgal og Spáni á meðan meðtals samdráttur í OECD ríkjum var í kring um 20 prósent. Enn hefur sigið á ógæfuhliðina því eftir smá viðspyrnu í voru hefur staðan aftur versnað í yfirstandandi útbreiðslu kórónuveirunnar. Seðlabankastjóri segir peningastefnuna með lækkun vaxta að undanförnu og öðrum aðgerðum hafa skilað sér vel inn á fasteignamarkaðinn síðustu mánuðina. „Það sem þarf núna er í rauninni meiri fyrirtækjalán og nýjar fjárfestingar. Við erum að vona það að vitneskja um bóluefni, að það sé á leiðinni, muni verða til þess að það skapist aðeins meiri vissa um framtíðina og við sjáum fyrirtæki byrja að fjárfesta. Við séum þá að sjá ný störf," segir seðlabankastjóri. Yfirstandandi bylja kórónuveirunnar hefur seinkað efnahagsbatanum að mati peningastefnunefndar sem spáir 8,5 prósenta samdrætti í ár. Á punktalínunni á meðfylgjandi mynd sést hvernig bankinn spáði því í ágúst að landsframleiðsla færi að aukast hratt á næsta ári. En ný spá reiknar með að hagvexti seinki fram á lok næsta árs og verði ekki kominn á skrið fyrr en 2023. Þá fari verðbólga yfir fjögur prósent á næsta ári og verði ekki undir 2,5 prósenta verðbólgumarkmiði Seðlabankans fyrr en snemma árs 2022. Atvinnuleysi haldist mikið næstu misseri. „Við erum að gera ráð fyrir því núna að við séum ekki alveg að ná næsta sumri í ferðaþjónustu. Þetta gangi ekki nægjanlega hratt fyrir sig. Við erum ekki að sjá ferðaþjónustuna taka við sér fyrr en á seinni hluta næsta árs. Það hefur mikla þýðingu fyrir okkur," segir Ásgeir Jónsson.
Efnahagsmál Ferðamennska á Íslandi Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Seðlabankinn Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Lokuðu þorpi í leit að svörum um hvarf tveggja ára drengs Erlent Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Innlent Voru sérstaklega varaðir við árás frá ISKP Erlent Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn Innlent Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Innlent Átta ára stúlka sú eina sem lifði rútuslys af Erlent Vilja einfalda fólki að komast til sjúkraþjálfara Innlent „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Innlent „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Innlent Hætt við framboð og vonast eftir þjóðhollum og guðræknum forseta Innlent Fleiri fréttir Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Vilja einfalda fólki að komast til sjúkraþjálfara Vélsleðamaður lenti í snjóflóði Kvöldfréttir Stöðvar 2 Hætt við framboð og vonast eftir þjóðhollum og guðræknum forseta Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Aðstoða göngumann á Móskarðshnjúkum Íbúar Hlíða velta fyrir sér dularfullum hvelli Ísland sé í torfkofanum í meðferð alvarlegra atvika Ný og glæsileg skólaþyrping byggð á Hellu Hamfaragámur Bónus tryggir kældan mat í neyðarástandi Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Hádegisfréttir Bylgjunnar Svipar til gamalla óupplýstra rána Sýknaður af ákæru um að hafa tekið í háls barns Bjartur skírdagur fram undan í höfuðborginni Líkamsárás til rannsóknar eftir nóttina Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Vilja koma böndum á bókhald trúfélaga Ferðaóðir Íslendingar þyrpast í ferðalög innanlands sem utan Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Hátt í hundrað dauðsföll á þremur árum Týndi vinningshafinn gaf sig fram og græddi níu milljónir Felldu úr gildi friðlýsingu en mátu Mumma ekki vanhæfan Kvöldfréttir Stöðvar 2 Býr á Íslandi en dæmd í sex ára fangelsi í Rússlandi Eldur í Hafnarfirði Sjá meira