Safna ellefu milljónum til að mæta heilsuáskorunum Jóhannesar Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 2. mars 2021 15:46 Jóhannes Stefánsson uppljóstrari Samherji Foto: Vilhelm Gunnarsson/Vilhelm Gunnarsson Komið hefur verið á fót GoFundMe síðu til styrktar Jóhannesi Stefánssyni fyrrverandi starfsmanni Samherja í Namibíu til að fjármagna læknismeðferð sem hann segist þurfa á að halda.
Jóhannes hefur sagt íslenska lækna telja að einkenni sem hann glími við komu heim og saman við einstakling sem eitrað hefur verið fyrir. Stefnt er á að safna 75 þúsund dollurum fyrir Jóhannes eða sem nemur um ellefu milljónum króna. Uppljóstrarasamtökin Whistleblowing International, ANA LOGO og Whistleblower Network News, National Whistleblower Center standa fyrir söfnuninni í gegnum GoFundMe. Jóhannes lak gögnum sem hann komst yfir í starfi sínu hjá Samherja sem hafa orðið tilefni dómsmáls í Namibíu og sakamálarannsóknar hér á landi. Ráðamenn í Namibíu og yfirmenn hjá Samherja eru sakaðir um að lögbrot varðandi viðskipti með fiskveiðirétt í Afríku. „Lækna í heimalandi hans Íslandi grunar að eitrað hafi verið fyrir honum. Ísland býr því miður ekki yfir bestu mögulegu tækjum og þjónustu á sviði læknisfræði til að greina um hvaða eitur ræðir og veita honum þá meðferð sem þarf. Hann þarf því alþjóðlega aðstoð,“ segir í frétt The Namibian sem vísar til tilkynningar vegna söfnunarinnar. Ekki kemur nánar fram í hverju tækjaskortur og þekking íslenska heilbrigðiskerfisins eigi að felast. Jóhannes hætti störfum hjá Samherja árið 2016 og segist Jóhannes í framhaldinu hafa flutt til Suður-Afríku þar sem öryggis hans hafi verið gætt allan sólarhringinn. Hann telur að eitrað hafi verið fyrir honum á hóteli í Suður-Afríku. Markmiðið hafi verið að ráða honum bana. Hann býr í dag á Íslandi og tjáði Namibian að hann tjái sig sjaldan um heilsu sína og vandamál henni tengd. „Ég hef ekki viljað segja margt um þetta en ég verð að gera eitthvað í þessu. Nú eru liðin fjögur ár og það er voðalega lítið sem ég get gert. Ég hef unnið í áætlun til að ná betri heilsu síðustu fjögur ár og gert allt sem mér hefur verið unnt,“ segir Jóhannes. Hann segir að fleira eigi eftir að koma fram er varðar Samherjaskjölin en hann hafi gert hvað hann geti gert. „Ég á eftir að komast í ýmislegt en afköstin takmarkast af heilsu minni út af einkennum mínum. En ég er alltaf jákvæður og bjartsýnn og þetta mun ganga upp á einn hátt eða annan.“ Einkenni sem hann glími við snúi meðal annars að skjálfta, sjóntruflunum, sársaukaverkjum um allan líkama, svima, höfuðverk og fleiru. „Ég verð að finna lausn á þessum heilsufarsvandamálum...og auvðitað koma lífi mínu aftur í gang, geta unnið og lifað. Og að berjast af enn meiri krafti gegn spillingu.“ 645 evrur hafa safnast þegar þessi frétt er skrifuð sem svarar til um hundrað þúsund króna.
Samherjaskjölin Namibía Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Innlent Trump líklegur til að græða á úrskurði Hæstaréttar Erlent Ögurstund og opnunarhóf hjá frambjóðendum Innlent Útlagar spreyjaðir gylltir Innlent „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Innlent Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Innlent Framboðslistar opinberaðir eftir helgi Innlent Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Innlent Segir lág laun leikskólakennara mýtu Innlent Ætlaði að koma upp um barnaníðing en lenti í klóm hans Innlent Fleiri fréttir Framboðslistar opinberaðir eftir helgi Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Glæsileg þjóðbúningamessa á Hvolsvelli Ögurstund og opnunarhóf hjá frambjóðendum Forsetaslagurinn, leit að eiganda fjármuna og rjómablíða Fjölbreytt verkefni hjá björgunarsveitum í dag Útlagar spreyjaðir gylltir Helga Þórisdóttir komin með lágmarksfjölda meðmæla Sinueldur í Reykjanesbæ Pétur Einarsson leikari látinn Kólnar á öllu landinu eftir óvenjugóðan fyrsta sumardag „Ákveðnar efasemdir um ákveðna þætti“ Fimm teravött af orku og 20 milljarðar í samgöngur Seltjarnarnesbær gengur frá sölu á Safnatröð Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Umdeilt frumvarp, íslenskan og sumarveðrið Eiríkur og Bjarni takast á um nefnd um íslenska tungu Ræða mest málefni íslenskunnar á fundum enskumælandi ráðs Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Segir borgarstjóra óttalegan vettling Vilja taka upp auðlindagjald að hætti Norðmanna „Dapurlegt“ að andstæðingar bólusetninga hafi svo mikil áhrif Stefnir í sólríkan og hlýjan sumardag fyrsta víða um land Eigendur sjókvíaeldis þurfa ekki að greiða auðlindagjald Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Veturinn sá kaldasti síðan 1999 Vill rjúfa framkvæmdastopp í orkumálum Kári Stefánsson, ákall um vaxtalækkun og hinsegin list Skemmtiferðaskip um tíu metrum frá strandi við Viðey Sjá meira