Oklahoma að valda Lakers og Dallas vandræðum Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 15. mars 2023 16:01 Shai Gilgeous-Alexander og félagar í Oklahoma City Thunder ætla sér í úrslitakeppnina. Alex Goodlett/Getty Images Átta leikir fóru fram í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Milwaukee Bucks lagði Kevin Durant-laust lið Phoenix Suns nokkuð þægilega. Los Angeles Lakers sneri aftur á sigurbraut og þá vann Oklahoma City Thunder góðan endurkomusigur á Brooklyn Nets. Sá sigur lagði stein í götu Dallas Mavericks sem og Lakers.
Nets var mun sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og var tíu stigum yfir, staðan 62-52. Í þriðja leikhluta fór allt á flug hjá Thunder sem vann á endanum leikinn 121-107. Þeirra sjötti sigur í síðustu sjö leikjum. Eins og svo oft áður var Shai Gilgeous-Alexander þeirra stigahæsti maður en hann skoraði 35 stig í nótt. Josh Giddey bauð hins vegar upp á þrefalda tvennu. Hann skoraði 15 stig, tók 13 fráköst og gaf 10 stoðsendingar. Another night, another SGA 30 piece 35 PTS7 REB4 ASTW pic.twitter.com/56COcyYgMb— NBA (@NBA) March 15, 2023 Sigur, og sigrar OKC, að undanförnu eru ekki góðar fréttir fyrir Dallas og Lakers. Baráttan um sæti í úrslitakeppni Vesturdeildar er hörð og sem stendur hafa öll þrjú liðin unnið 34 leiki og tapað 35. OKC er hins vegar í 8. sæti á meðan hin tvö reka lestina vegna innbyrðisviðureigna. Dallas og Lakers höfðu gert sér vonir um að sleppa við að fara í umspilið og komast beint í úrslitakeppnina en til að það gangi eftir þarf Lakers að halda áfram að vinna leiki – liðið hefur unnið 7 af síðustu 10 – og Dallas þarf að snúa gengi sínu við hratt – liðið hefur unnið 3 af síðustu 10. Eftir að tapa fyrir New York Knicks í síðustu umferð þá vann Los Angeles Lakers 15 stiga sigur á New Orleans Pelicans í nótt, lokatölur 123-108. Lakers lagði grunninn að frábærum sigri með ótrúlegum fyrri hálfleik en munurinn var 35 stig þegar liðin gengu til búningsherbergja. Sjálfkrafa slakaði liðið ef til vill full mikið á klónni í síðari hálfleik. Anthony Davis var stigahæstur í liði Lakers með 35 stig ásamt því að taka 17 fráköst. Malik Beasley skoraði 24 stig. Í liði Pelicans voru þrír leikmenn með 20 stig eða meira: Trey Murphy III og Herb Jones skoruðu 20 á meðan Brandon Ingram var stigahæstur með 22 stig. Anthony Davis. Dominant. 35 points17 reboundsWFor more, download the NBA app: https://t.co/EfGWQh0QrC pic.twitter.com/mSIi6Jlwg7— NBA (@NBA) March 15, 2023 Giannis Antetokounmpo skoraði 36 stig og tók 11 fráköst þegar Bucks vann tólf stiga sigur á Suns í nótt, lokatölur 116-104. Brook Lopez skoraði 21 stig og tók 10 fráköst í liði Bucks á meðan Devin Booker var stigahæstur hjá Suns með 30 stig. Bucks eru áfram á toppnum í Austrinu og gætu nú tapað öllum þeim leikjum sem eftir eru í deildarkeppninni en samt komist í úrslitakeppnina. Suns virðast hins vegar á hraðri leið niður töfluna í Vestrinu með þessu áframhaldi. Giannis tonight 36 points11 rebounds8 assistsBucks get their 50th win and secure a spot in the #NBAPlayoffs. pic.twitter.com/npK3oKsxZi— NBA (@NBA) March 15, 2023 Fred VanVleet skoraði 36 stig þegar Toronto Raptors skelltu Nikola Jokić og félögum í Denver Nuggets, 125-110. Jokić skoraði 28 stig, tók 8 fráköst og gaf 7 stoðsendingar. Önnur úrslit Washington Wizards 117-97 Detroit PistonsPortland Trail Blazers 107-123 New York KnicksSan Antonio Spurs 132-114 Orlando MagicCharlotte Hornets 104-120 Cleveland Cavaliers 50 wins and an #NBAPlayoffs spot for the Bucks.Tuesday night's updated standings are here. https://t.co/02ml5YIBRq pic.twitter.com/Hb1gTJ29yv— NBA (@NBA) March 15, 2023
Körfubolti NBA Mest lesið Bakgarðshlaupið í beinni útsendingu Sport Kostar 600 þúsund að keppa með U18: „Þetta eru þakkirnar fyrir að spila fyrir landsliðið“ Handbolti Miðvarðamartröð Man United heldur áfram Enski boltinn „Veit ekki hvað Elmar þarf að gera til að komast í landsliðið“ Handbolti „Ég vona innilega að ég sé ekki að væla of mikið“ Íslenski boltinn „Höfum spilað vel án Arons áður“ Handbolti Loksins landaði Lando sigri í Formúlu 1 Formúla 1 Mitchell skaut Cleveland í undanúrslit Austursins Körfubolti Uppgjör og viðtöl: FH - ÍBV 34-27 | Aronslausir FH-ingar tryggðu sér sæti í úrslitum Handbolti „Ólíkir okkur að mörgu leyti“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Mitchell skaut Cleveland í undanúrslit Austursins „Ef maður fær opin skot þá verður maður að taka þau“ Uppgjör og viðtöl: Keflavík - Stjarnan 87-78 | Heimakonur einum sigri frá úrslitum Búið að fjarlægja auglýsingarnar af gólfinu í Smáranum Helena fær sæti í Heiðurshöll TCU skólans Bara þrjú af tíu líklegustu NBA-liðunum komust í aðra umferð Hetja Keflvíkinga hafði aldrei áður skorað svona flautukörfu á ferlinum NBA meistararnir réðu ekki við hinn magnaða Anthony Edwards „Við höldum bara áfram þangað til að leikurinn er búinn“ „Við gleymum okkur á veiku hliðinni“ Darius Morris látinn aðeins þrjátíu og þriggja ára að aldri Uppgjör: Keflavík - Grindavík 84-83 | Ótrúlegur endir og allt jafnt í einvíginu Tryggvi Snær kom inn af bekknum í tapi gegn botnliðinu „Varhugavert er að ætla starfsmanni Stöðvar 2 að hafa brugðið talsvert“ Kyrie kann að loka einvígum og Dallas sló loksins út Clippers DeAndre Kane sleppur við bann og spilar í kvöld „Þetta er ekki boðlegt finnst mér“ Lið Aþenu og Brynjar Karl einum leik frá Subway-deildinni eftir spennutrylli „Þurfum að fá fleiri hjól undir bílinn“ „Það er búið að vera okkar merki í allan vetur að spila vörn“ Uppgjörið: Njarðvík - Valur 69-78 | Deildarmeistararnir læstu vörninni Báðir þjálfarar Skallagrímsliðsins hætta Kastaði bolta í áhorfanda eftir tap Geta unnið fjóra í röð í fyrsta sinn í heilan áratug Jaka áfram í Keflavík næstu þrjú árin „Of mörg tilfelli sem hafa komið upp“ Knicks og Pacers hefja nýtt einvígi á mánudag Eigendur 76ers gefa miða svo Knicks aðdáendur taki ekki aftur yfir „Vörnin í dag, það er það sem vann þetta“ „Virkilega léleg frammistaða heilt á litið“ Sjá meira