Æfur vegna eigin Twitterfærslu Sindri Sverrisson skrifar 15. apríl 2021 10:00 Kyle Walker og Phil Foden fagna eftir að Foden skoraði sigurmarkið gegn Dortmund í Meistaradeild Evrópu í gærkvöld. EPA/FREDERIC SCHEIDEMANN Phil Foden hefur átt frábært tímabil í vetur, eða frá því að hann heimsótti Ísland í september og varð uppvís að því að brjóta sóttvarnareglur með því að fá íslenskar konur í heimsókn á hótel enska landsliðsins. Nú er hann hins vegar æfur út í fyrirtækið sem sér um samfélagsmiðla hans.
Foden átti risastóran þátt í að tryggja Manchester City sigur á Dortmund í 8 liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Hann skoraði sigurmark á síðustu stundu í 2-1 sigri í síðustu viku og endurtók svo leikinn í Þýskalandi í gærkvöld. Eftir leik birtist færsla á Twitter-síðu Fodens sem Daily Mail segir að hafi verið birt án samþykkis þessa tvítuga Englendings. Í færslunni stóð einfaldlega: „Kylian Mbappé, ertu tilbúinn?“ City mætir Mbappé og félögum í PSG í undanúrslitum Meistaradeildarinnar. Samkvæmt Daily Mail var Foden hundóánægður með færsluna og fannst hún hljóma eins og áskorun á franska ungstirnið sem var merkt í færsluna. Færslan sem sett var inn á Twitter-reikning Phils Foden, að því er virðist í hans óþökk. Færslunni var síðar eytt. Foden lét fjarlægja færsluna hið snarasta en þá þegar höfðu þúsundir fólks endurómað færsluna og sett inn athugasemdir varðandi hana. Samkvæmt Daily Mail íhugar Foden nú að hætta samstarfi sínu við fyrirtækið sem setti inn færsluna. Algengt er að knattspyrnustjörnur fái sérhæfð fyrirtæki til að sjá um að setja efni á samfélagsmiðla. Færslurnar eiga það því til að vera ansi einsleitar og lítill munur á því sem kemur frá mismunandi leikmönnum. Gary Neville, fyrrverandi fyrirliði Manchester United, er meðal þeirra sem hafa gagnrýnt þetta og kallað eftir sjálfstæðri hugsun leikmanna. I mentioned on here a few weeks ago about players having their accounts run by social media companies. Lads run your own accounts! Your independent thought and authenticity is at stake . It s your voice , not anyone else s. Morning by the way . Go and attack the hell out of it pic.twitter.com/M997r8kbWa— Gary Neville (@GNev2) April 15, 2021
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Segja Ísland hafa skorað fimmtíu án þess að svitna Handbolti Grafalvarleg staða: „Við verðum að breyta þessu strax“ Handbolti Í beinni: Eistland - Ísland | HM-sætið endanlega tryggt í Eistlandi Handbolti Hávær kynlífshljóð trufluðu Doncic Körfubolti Í beinni: ÍA - Vestri | Slagur nýliðanna á Skaganum Íslenski boltinn „Annað hvort gera þeir eins og Man. City eða eins og Liverpool“ Handbolti Gvardiol skaut City á toppinn Enski boltinn Andri Lucas fékk kanilstykki í verðlaun Fótbolti Sjáðu frábært spil skila tveimur mörkum í Garðabæ Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Stór dagur fyrir Val Sport Fleiri fréttir Jóhann fékk ekki að spila þegar Burnley féll Gvardiol skaut City á toppinn Ten Hag segir að eigendur United séu skynsamir og muni ekki reka hann Kveðjuleikur Klopp í hættu? | „Meðvitaður um stöðuna“ Cole Palmer valinn bestur í apríl Fjórtán ára strákur með Man City klásúlu í samningi sínum við annað félag Rodri kemur ekki til greina en Spánn á bestu stjórana Rekinn þrátt fyrir að vera tilnefndur sem þjálfari ársins Telja að Man United hafi saknað leiðtogahæfileika Martínez Forest í bullandi fallhættu vegna bulls í fjármálum Segir að Casemiro hafi verið aðhlátursefni gegn Palace „Síðasti naglinn í kistu Ten Hag“ Ten Hag: Leikmennirnir hefðu átt að halda áfram að berjast líkt og stuðningsfólkið Crystal Palace lék sér að Man United Van Dijk vill hjálpa til við að skrifa næsta kafla Liverpool Eyddi öllum Liverpool-myndum Dómarinn verður með myndavél á höfðinu Lopetegui tekur við West Ham Lýsti Haaland sem „ofdekruðum krakka“ Miðvarðamartröð Man United heldur áfram Markasúpa þegar Liverpool komst á sigurbraut Markaveisla hjá Chelsea á móti nágrönnum sínum Lehmann keypti „Invincibles“ nafnið eftir að Arsenal sofnaði á verðinum Fengu myndsímtal frá Ed Sheeran í búningsklefanum Féllu á meðan þjálfarinn sem þeir ráku hélt Blackburn uppi Sú markahæsta með tár á hvarmi er hún tilkynnti brotthvarf sitt frá Chelsea Enginn náð í fleiri stig en McKenna síðan hann tók við Ipswich „Við þurfum níu stig til að vinna titilinn“ Skoraði fernu og Englandsmeistararnir halda í við Skytturnar Newcastle fór illa með Jóa Berg og félaga á Turf Moor Sjá meira