Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sitjandi formaður Viðreisnar, er eini frambjóðandinn í formannskjöri flokksins sem fram fer 25. september næstkomandi. Alls bárust 20 tilkynningar félagsmanna Viðreisnar um framboð, þar af tíu framboð í stjórn.
Helst vekur athygli að Benedikt Jóhannesson býður sig fram í stjórn. Ekki fylgir sögunni hvort um sé að ræða stofnanda og fyrrverandi formann Viðreisnar þó það verði að teljast líklegt. Hann hefur áður tilkynnt að hann sækist eftir því að leiða lista Viðreisnar á suðvesturhorni landsins í komandi þingkosningum.
Framboðsfrestur í öll embætti er liðinn að varaformannsembættinu undanskildu. Sá framboðsfrestur rennur út klukkutíma eftir að kjöri formanns hefur verið lýst en Daði Már Kristófersson, fráfarandi forseti Félagsvísindasviðs Háskóla Íslands og prófessor í hagfræði, hefur sýnt embættinu áhuga.
Eftirfarandi framboð hafa borist til embætta Viðreisnar:
Til stjórnar:
Andrés Pétursson
Axel Sigurðsson
Benedikt Jóhannesson
Elín Anna Gísladóttir
Jasmina Vajzovic Crnac
Karl Pétur Jónsson
Konrad H Olavsson
Sigrún Jónsdóttir
Sonja Jónsdóttir
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir
Til formennsku í atvinnumálanefnd:
Jarþrúður Ásmundsdóttir
Thomas Möller
Til formennsku í efnahagsnefnd:
Gunnar Karl Guðmundsson
Til formennsku í heilbrigðis- og velferðarnefnd:
Ólafur Guðbjörn Skúlason
Til formennsku í innanríkisnefnd:
Geir Finnsson
Til formennsku í jafnréttisnefnd:
Oddný Arnarsdóttir
Til formennsku í mennta- og menningarnefnd:
Hildur Betty Kristjánsdóttir
Til formennsku í umhverfis- og auðlindanefnd:
Jón Þorvaldsson
Til formennsku í utanríkisnefnd:
Benedikt Kristjánsson