Hyggst leita að tækni frá siðmenningu úr geimnum í Kyrrahafi Hólmfríður Gísladóttir skrifar 24. mars 2023 11:35 Loeb, sem er virtur vísindamaður, hefur haldið því fram að mögulega sé móðurskip í sólkerfinu okkar að senda minni för til að rannsaka plánetur á borð við jörðina. Getty/Bryan Bedder Eðlisfræðingurinn Avi Loeb, prófessor við Harvard-háskóla, hyggur á leiðangur á Kyrrahafi til að finna mögulegar leifar hlutar frá siðmenningu úr geimnum. Hluturinn hrapaði til jarðar undan ströndum Manus-eyja árið 2014.
Loeb greindi frá fyrirbærinu árið 2019 og sagði um að ræða fyrsta loftsteininn sem menn hefðu uppgötvað sem ætti uppruna sinn að rekja utan sólkerfisins. Þetta ku hafa verið staðfest af NASA í fyrra. Rannsóknarteymið sem Loeb tilheyrir komst einnig að þeirri niðurstöðu að loftsteinninn, eða hluturinn, væri harðari en allir aðrir lofsteinar á skrá NASA yfir fyrirbæri í nálægð við jörðu. Þau eru 272 talsins. Niðurstaðan leiddi til skipulagningar leiðangursins, sem er sagður munu taka tvær vikur. Til stendur að leita að brotum úr hlutnum, sem eru talin liggja á um 1,7 kílómetra dýpi, og rannsaka þau til að komast að því hvort hluturinn var náttúrulegur eða „framleiddur“. „Við erum með bát. Við erum með draumateymi, þar á meðal reyndustu og hæfustu atvinnumennina í úhafsleiðöngrum. Við erum með fullbúnar hönnunar- og framleiðsluáætlanir fyrir sleðana sem við þurfum, seglana, söfnunarnet og massagreina,“ segir Loeb. Eðlisfræðingurinn segir að vegna þess hversu harður hluturinn er, sé mögulegt að um sé að ræða tilbúinn hlut; eitthvað sem fjarlæg og háþróuð siðmenning sendi af stað fyrir milljörðum ára. Til stendur að toga segulmagnaða sleða eftir sjávarbotninum til að finna brotin. Leitarteymin verða sjö, sleðarnir búnir ljósum, myndavélum og öðrum búnaði og leitarsvæðið tíu sinnum tíu kílómetrar. Efnasamsetning hlutarins mun ráða því hversu stór brot finnast en Loeb gerir ráð fyrir að um gæti verið að ræða þúsund brot sem eru stærri en millimetri eða tugi brota sem eru stærri en sentímetri. Loeb segir mögulegt að leiðangurinn finni ekki neitt en ótrúlegar staðhæfingar krefjist ótrúlegra sönnunargagna. Ef almennilega stór hlutur frá siðmenningu úr geimnum finnst hefur hann lofað yfirmanni Museum of Modern Art í New York að lána það til safnsins. Guardian greindi frá.
Bandaríkin Vísindi Geimurinn Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Kveðst ekki svindla á neinum með happdrætti sínu Innlent Fannst látinn í klefa sínum á Litla Hrauni Innlent Vinnubrögðin gátu leitt til dauða Innlent Skjálfti fannst vel á höfuðborgarsvæðinu Innlent Faðir mannsins sem lést á Litla-Hrauni krefst umbóta Innlent „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Innlent Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Innlent „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Halla fremst með 29,7 prósent í nýrri könnun Prósents Innlent Fleiri fréttir Tillagan „langt frá“ grundvallarkröfum Ísraela Ferðamannastaðir Færeyja lokaðir vegna viðhalds Bein útsending: Starliner ber geimfara til geimstöðvarinnar Hamas samþykkir vopnahléstillögu Áttatíu og tveggja ára Bernie vill sex ár í viðbót Ávítti Trump aftur og ítrekaði fangelsishótun Reiðir yfir ummælum Macrons og halda æfingar með kjarnorkuvopn Sökktu rússneskum hraðbát með sjálfsprengidróna Verður næsti formaður Skoska þjóðarflokksins Sakaði Biden um að reka lögregluríki í anda nasista Aukastörf meðfram þingmennsku skapi hættu á hagsmunaárekstrum Lík þriggja brimbrettakappa fundust í brunni í Mexíkó Xi og Macron ræða kínverska rafbíla og franskt koníak Um 100.000 sagt að rýma svæði á Rafah vegna „afmarkaðra aðgerða“ Búnaður Al Jazeera gerður upptækur og miðillinn í bann Ísrael samþykkir ekki vopnahlé Ísraelsmenn vísa fréttamönnum á dyr Íhaldsflokkurinn laut í lægra haldi í sveitarstjórnarkosningum Tuga enn saknað og 55 látnir Verður borgarstjóri Lundúna þriðja kjörtímabilið í röð Auka viðbúnað í aðdraganda Eurovision Forseti Argentínu skýtur föstum skotum á spænsku ríkisstjórnina Berlínarborg vill losna við glæsivillu Göbbels Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Kreml fordæmir ummæli Macrons og Camerons Reyna að sækja fyrsta sýnið frá fjærhlið tunglsins Hlustuðu á Trump og Cohen tala um þagnargreiðslu Danir rýmka reglur um þungunarrof Þrjátíu látnir og tuga saknað eftir flóð í Brasilíu Sjá meira