Segjast hafa fundið lekann á geimstöðinni Samúel Karl Ólason skrifar 15. október 2020 12:35 Alþjóðlega geimstöðin. Vísir/Roscosmos
Geimfarar um borð í Alþjóðlegu geimstöðinni virðast nú hafa fundið leka á geimstöðinni sem erfiðlega hefur gengið að finna. Leitin hefur staðið yfir í nokkrar vikur en geimfararnir sem flugu til geimstöðvarinnar í gær voru með sérstakan búnað sem á að hjálpa þeim að finna lekann. Lekinn hefur ekki verið talinn ógna íbúum geimstöðvarinnar vegna þess hve lítill hann er. Í lok september voru geimfararnir vaktir um miðja nótt og sendir af stað til að finna lekann. Þá virtist hann hafa aukist á milli daga en seinna meir kom þó í ljós að svo var ekki. Við þá leit komust geimfararnir þó að því að lekinn er á rússneskum hluta geimstöðvarinnar sem kallast Zvezda. Þar má finna mikilvægan búnað varðandi súrefni og annað sem gerir geimförum kleift að búa í geimstöðinni. Þessi búnaður bilaði í gær en hann var gamall og úr sér genginn, samkvæmt frétt Moscow Times. Sambærilegur búnaður í bandaríska hluta geimstöðvarinnar virkar enn og eru geimfararnir ekki í neinni hættu vegna bilunarinnar. Í þessum hluta geimstöðvarinnar eru einnig híbýli fyrir tvo geimfara. The space station crew expanded to six people today when the Soyuz crew ship hatch opened at 7:07am ET just a few hours after the Exp 64 crew launched from Kazakhstan. More... https://t.co/9L5DaJFRSa pic.twitter.com/skxgdiKKJH— Intl. Space Station (@Space_Station) October 14, 2020 Nú eru sex geimfarar um borð í geimstöðinni. Sergey Ryzhikov og Sergey Kud-Sverchkov frá Roscosmos, geimvísindastofnun Rússlands, auk Kate Rubins frá NASA, komu sér þar fyrir í gær. Fyrir voru þeir Chris Cassidy, Anatoly Ivanishin og Ivan Vagner um borð en þeir eiga að snúa til baka til jarðarinnar í næstu viku. Um borð í geimflauginni í gær var sérstakur búnaður til að auðvelda leitina að lekanum. Ivanishin sendi þau skilaboð til jarðar í dag að mögulega væri búið að finna lekann um borð í Zvezda. Var þeim sagt að reyna að nota sérstakt límband til að stöðva lekann seinna í dag. Þeir voru einnig beðnir um að senda myndir og myndbönd til jarðar. Based on the information received from the ISS-63 crew about the possible air leak location, MCC-M will soon advise the crew on further actions and methods to search the leak location.Thus, based on the works conducted, the crew will be able to localize the possible leak area. pic.twitter.com/ti0kM9Brfz— (@roscosmos) October 15, 2020
Geimurinn Tækni Rússland Bandaríkin Alþjóðlega geimstöðin Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Litaðir seðlar til skoðunar og málið á mjög viðkvæmu stigi Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Yrði gagnkynhneigður maður spurður sömu spurningar? Innlent Sagðist ætla að nota tíu milljón króna kókaín allt sjálfur Innlent Sér eftir Landsdómsmálinu: „Ég myndi aldrei gera þetta svona aftur“ Innlent Þrjú hundruð handtekin í Columbia-háskóla Erlent „Hinsegin fólk þekkir vel að vera smættað niður í einkalíf sitt“ Innlent Sniglar hægja á umferð Innlent Íslensk stjórnvöld haldin „sjúkri undirgefni“ Innlent Íslensk fjara á lista yfir bestu strendur heims Innlent Fleiri fréttir Þrjú hundruð handtekin í Columbia-háskóla Stuðningur við dönsku ríkisstjórnina aldrei verið minni Mótmælendur og gagnmótmælendur tókust á Trump sektaður um meira en milljón króna Rússar sagðir nota skotflaugar frá Norður-Kóreu Þrettán ára drengur stunginn til bana með sverði Særði minnst fimm með sverði í Lundúnum Íslendingur sem lúbarði lögreglumenn í Varsjá þarf að borga brúsann Fjórir lögreglumenn skotnir til bana í Charlotte Rostungur sem fannst í fyrra drapst af völdum fuglaflensu Hvetur Hamas til að ganga að rausnarlegum tillögum Ísrael Flugvöllur Færeyinga fær að taka við stærri þotum Yousaf segir af sér sem ráðherra og formaður Skoska þjóðarflokksins Sánchez hættir við að segja af sér Grafið undan fjölmiðlafrelsinu víða í Evrópu Vopnahlé í sjónmáli? Tveir látnir eftir að bíll hafnaði í sjónum við Stokkhólm Fjölmenn mótmæli vegna ofbeldisbylgju í Ástralíu Vasaúr ríkasta manns Titanic seldist á 210 milljónir Þúsundir hvöttu Sánchez til að segja ekki af sér Skoða að færa Mónu Lísu í eigið herbergi Harvey Weinstein lagður inn á spítala Þingmaður hleypti af skoti fyrir utan skemmtistað Rýma dómshús vegna sprengjuhótunar Dómstóll fyrirskipar handtöku landbúnaðarráðherra Selenskís Ákvörðun áfrýjunardómstólsins áfall og stórt skref aftur á bak Trump líklegur til að græða á úrskurði Hæstaréttar Dómi Harvey Weinstein snúið við Tekur fyrir að hafa verið „hermaður Hitlers“ Maður á sextugsaldri sagður hafa stungið grunnskóladreng Sjá meira