Elías Rafn orðlaus eftir að halda hreinu á Parken og hjálpa Midtjylland á topp deildarinnar Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 20. september 2021 18:01 Elías Rafn (t.v.) fagnar ótrúlegum sigri Midtjylland um helgina. @fcmidtjylland Markvörðurinn Elías Rafn Ólafsson var orðlaus er hann ræddi við fjölmiðla eftir magnaðan 1-0 útisigur á FC Kaupmannahöfn er liðin mættust á Parken um helgina.
Þökk sé sigri helgarinnar eru Elías Rafn og félagar í Midtjylland komnir á topp deildarinnar. Elías Rafn hefur fengið traustið í upphafi tímabils og virðist ætla að ríghalda í stöðuna. Hann hefur spilað fjóra leiki fyrir félagið en leikur helgarinnar var eflaust hans besti til þessa. Að halda markinu hreinu gegn stórliði FCK eftir að fá rautt spjald um miðbik fyrri hálfleiks, og það á troðfullum Parken. Var Elías Rafn valinn maður leiksins að leik loknum. Følelserne ved slutfløjt #FCKFCM pic.twitter.com/f9GcmQwTjm— FC Midtjylland (@fcmidtjylland) September 20, 2021 „Þetta var frábær frammistaða, við stóðum allir saman eftir að hafa lent manni undir á Parken. Þetta var án efa magnaðasta upplifun mín á ferlinum til þessa. Ég á engin orð til að lýsa þessu, ég er orðlaus. Stuðningsfólk okkar var frábært og ég gæti ekki verið hamingjusamari,“ sagði Elías Rafn í viðtali að leik loknum. „Við verðum að sjá til. Ég og Jonas Lössl vinnum náið saman og ef hann spilar styð ég við bakið á honum en meðan ég spila reikna ég með að hann styðji við bakið á mér,“ sagði markvörðurinn ungi aðspurður hvort hann væri nýr aðalmarkvörður Midtjylland. Eftir að hafa verið á láni hjá FC Fredericia í dönsku B-deildinni á síðustu leiktíðinni er Elías Rafn mættur í úrvalsdeildina og virðist ætla að láta til sín taka í vetur.
Fótbolti Danski boltinn Mest lesið Lygileg toppbarátta í Danmörku Fótbolti „Auðvitað voru einhverjir viltir draumar um að fara í úrslitin“ Körfubolti Hrósaði karakter leikmanna eftir að liðið henti frá sér unnum leik Enski boltinn „Við vorum ekki að fara að fá neitt gefins hérna“ Körfubolti Fury eldri blóðugur í aðdraganda sögulegs bardaga Sport Barcelona upp í annað sætið Fótbolti Hefur hjálpað Haas með glæfralegum akstri Formúla 1 Uppgjör: Keflavík - Stjarnan 81-76 | Háspennuleikur og Keflavík komið í úrslit Körfubolti Liverpool henti frá sér sigrinum í síðasta útileik Klopp Enski boltinn Segja Real renna hýru auga til miðjumanns Leverkusen Fótbolti Fleiri fréttir Lygileg toppbarátta í Danmörku Hrósaði karakter leikmanna eftir að liðið henti frá sér unnum leik Barcelona upp í annað sætið Liverpool henti frá sér sigrinum í síðasta útileik Klopp Segja Real renna hýru auga til miðjumanns Leverkusen Guðrún og stöllur enn með fullt hús stiga Kröfðu Bayern um 100 milljónir fyrir þjálfarann Sú markahæsta í sögu ensku deildarinnar yfirgefur Arsenal og fer væntanlega til City Foss á Old Trafford leikvanginum í gær Stuðningsmenn PSG bauluðu á Mbappé í síðasta heimaleiknum Saka Casemiro um leti: „Hreyfðu fæturna á þér“ Líkir Havertz við Liverpool-hetju Segir að staðan hjá United sé miklu verri en hún var hjá Moyes Sungu nafn Arnórs hástöfum Sjáðu rauðu spjöld KR-inga, mark beint úr horni og öll hin mörkin í gær Havertz: „Verð mesti stuðningsmaður Tottenham í sögunni“ Rooney sakar meidda leikmenn United um að vilja ekki spila „Höfum ekki haft neitt svigrúm til að gera mistök“ „Þetta er saga tímabilsins og það gengur ekki lengur“ „Það er eitt að vera góður og annað að fá eitthvað fyrir það“ „Förum glaðir úr Lautinni“ Uppgjörið og viðtöl: Víkingur R. - FH 2-0 | FH fatast flugið en Víkingur aftur á beinu brautinni Atalanta skrefi nær Meistaradeildarsæti Gregg: Algjörlega óásættanlegt Uppgjör: Fylkir - Breiðablik 0-3 | Öruggur sigur Blika á lánlausum Fylkismönnum Sveindís Jane á skotskónum í sigurleik Sverrir Ingi hafði betur í Íslendingaslagnum Jafntefli eftir óvænt brotthvarf Óskars Orri mikilvægur gegn erkióvinum og FCK á toppinn Uppgjör: KR-HK 1-2 | Frækinn sigur HK á Meistaravöllum Sjá meira