Gefa út fyrsta lagið úr Rómeó og Júlíu

Salka Valsdóttir, tónlistarstjóri sýningarinnar og Ebba Katrín Finnsdóttir leikkona eru …
Salka Valsdóttir, tónlistarstjóri sýningarinnar og Ebba Katrín Finnsdóttir leikkona eru höfundar lagsins Heiti King.

Fyrsta lagið úr leikritinu Rómeó og Júlía, sem frumsýnt verður í Þjóðleikhúsinu í september, er komið út. Lagið ber titilinn Heiti King en höfundar lagsins eru tónlistarstjóri sýningarinnar Salka Valsdóttir og leikkonan Ebba Katrín Finnsdóttir.

Lagið Heiti King er bleikur svefnherbergis- píkupoppslagari um innilokunarkennd, barnslega hrifningu og, kannski allra helst, Rómeó. Lagið lýsir innra lífi Júlíu og er lýsandi fyrir hennar ríkjandi rafmögnuðu orku, á blaði sem og á sviði.

Annar höfundur lagsins, Salka Valsdóttir, hefur skapað sér nafn sem framsækin tónlistarkona, meðal annars sem meðlimur Reykjavíkurdætra og Cyber og sem hljóðmyndahönnuður við Volksbühne í Berlín, en hún er tónlistarstjóri sýningarinnar. Ásamt henni kom Ebba Katrín Finnsdóttir að skrifum og flutningi lagsins, en hún fer með hlutverk Júlíu í sýningunni.

Rómeó og Júlía er saga af sannri ást en um leið ástsýki og ungæðishætti. Í forgrunni verður mögnuð barátta ungrar konu gegn yfirþyrmandi feðraveldi. Fegurstu sögurnar geta sprottið upp úr hræðilegustu aðstæðunum. Leikritið Rómeó og Júlía er frægasta ástarsaga allra tíma, og birtist hér í nýrri þýðingu og útfærslu sem hrífur áhorfandann með inn í heillandi og hættulegan heim.

Þorleifur Örn Arnarsson er einn fremsti leikstjóri Evrópu og einn listrænna stjórnenda hins virta leikhúss Volksbühne. Hann á að baki geysivinsælar sýningar á Íslandi á borð við Engla alheimsins og Njálu. Nú hefur hann gengið til liðs við nýtt listrænt teymi Þjóðleikhússins þar sem hann mun starfa á næstu árum. Þorleifur hefur leikinn með sýningu sem hvetur fólk til að skoða sjálft sig og aðstæður sínar í nýju samhengi.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Varastu að gera nokkuð það sem getur valdið misskilningi um fyrirætlanir þínar. Aðeins vel upplýstur maður getur innt þau störf af hendi, sem þér eru falin.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Varastu að gera nokkuð það sem getur valdið misskilningi um fyrirætlanir þínar. Aðeins vel upplýstur maður getur innt þau störf af hendi, sem þér eru falin.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg