Harpa hökkuð í hakk Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 21. nóvember 2020 14:27 Kúabændur eru hvattir til að láta gott af sér leiða fyrir jólin og gefa Fjölskylduhjálp Íslands kjöt. Það hafa bændurnir á Reykjum í Skeiða og Gnúpverjahreppi gert þegar þau létu slátra kvígunni Hörpu og hökkuðu hana í hakk og gáfu fjölskylduhjálpinni. Magnús Hlynur Hreiðarsson
Kúabændurnir á bænum Reykjum á Skeiðum hvetja kúabændur um allt land að láta gott af sér leið fyrir jólin og slátra gripum, hakka kjötið og gefa Fjölskylduhjálp Íslands. Sjálfir slátruðu bændurnir nýlega kvígu og gáfu átta tíu kíló af hakki af henni til fjölskylduhjálparinnar í neytendapakkningum. Nú þegar nálgast aðventu og jólahátíðina þá verða fjárútlát fjölskyldna óneitanlega meiri þegar um matarinnkaup er að ræða og jólagjafir. Víða er þröngt í búi vegna Covid ástandsins og því vilja kúabændur láta gott af sér leiða. Gott dæmi um það eru hjónin Birna Þorsteinsdóttir og Rúnar Bjarnason á bænum Reykjum í Skeiða og Gnúpverjahreppi en þau fóru nýlega með kvíguna Hörpu í sláturhús og fengu í kjölfarið um 80 kíló af hakki af henni, sem þau gáfu Fjölskylduhjálpar Íslands. Birna hvetur kúabændur til að láta eitthvað af hendi rakna til fjölskylduhjálparinnar „Ég fór bara að velta vöngum yfir því hvað við bændur værum vel settir í Covid ástandinu miðað við margar aðrar stéttir. Það breytist nánast ekkert hjá okkur. Við vinnum okkar vinnu bara eins og vant er, við getum farið út og hreyft okkur frjáls og þurfum ekki að fara í einhvern hlífðarbúnað í vinnunni okkar og tekjurnar koma alveg óbreytt,“ segir Birna og bætir við; „Mjög margir bændur gætu séð af einhverju til Fjölskylduhjálparinnar til dæmis eins og það að setja grip í sláturhús og láta hakka hann og vinna og gefa til Fjölskylduhjálparinnar.“ Birna og Rúnar hvetja kúabændur til að láta gott af sér leiða fyrir jólin og gefa fjölskylduhjálpinni kjöt af skepnum sínum, sem er verið að slátra.Magnús Hlynur Hreiðarsson Birna segir að þau Rúnar hafi fengið mjög jákvæð viðbrögð hjá bændum eftir að þau vöktu athygli á málinu á Facbook síðu kúabænda og þau viti til þess að margir munu láta gott af sér leiða fyrir jólin. „Og það sem mér finnst svo ánægjulegt að ég hef komist að því að það eru til bændur, sem hafa gert þetta af og til án þess að hafa nokkuð hátt um það.“ Birna hvetur líka sláturhús og kjötvinnslur til að taka þátt í verkefninu því það kosti mikið að láta slátra grip og vinna kjötið með því að slá af vinnslukostnaði og koma kjötinu til Fjölskylduhjálparinnar í Reykjavík. Birna og Rúnar létu gott af sér leiða á dögunum þegar kvígunni Hörpu frá þeim var slátrað og um 80 kíló af hakki af kjötinu fór til Fjölskylduhjálparinnar. „Já, það er rétt og við skorum á aðra kúabændur, sem telja sig aflögufæra með eitthvað að leggja hönd á plóg því okkar staða er tiltölulega sterk miðað við marga aðra,“ segir Birna. Rúnar og Birna, kúabændur á Reykjum í Skeiða og Gnúpverjahreppi, sem hafa látið gott af sér leiða á tímum Covid-19 með því að gefa Fjölskylduhjál 80 kíló af hakki.Einkasafn
Skeiða- og Gnúpverjahreppur Landbúnaður Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Innlent Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Erlent Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Innlent Dregur saman með efstu frambjóðendum Innlent Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Innlent „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Innlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Innlent Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Innlent Fleiri fréttir Gular viðvaranir á Suðurlandi og Suðausturlandi Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Diskóstemming í Bíóhöllinni á Akranesi Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Framkvæmdir hafnar við brú yfir Fjarðarhornsá Segist kallaður „stríðsæsingarmaður“ vegna fyrirhyggju Sjúklingum Landspítala fjölgaði um 4.500 milli ára Skólastjóradrama í Kóraskóla fær óvæntan endi Bein útsending: Ársfundur Landspítala Mótfallinn sjálfsafgreiðslu á Bessastöðum Boða til blaðamannafundar vegna Grindavíkur Fordæma brottvísun mansalsþolenda og vilja nýja stefnu Slökktu eld á Seltjarnarnesi Mögulegt umboðsleysi stjórnar Aðventista gæti skipt Ölfyssinga máli Fara fram á farbann Sjá meira