„Enn meiri bónus þegar við komumst að því að við fengum sama símtalið“ Sindri Sverrisson skrifar 25. maí 2023 09:01 Andri Þór Helgason og Leó Snær Pétursson voru hressir þegar Gaupi hitti þá í gær. Stöð 2 Hornamennirnir Leó Snær Pétursson og Andri Þór Helgason segjast mættir í Mosfellsbæ til að hjálpa Aftureldingu að vinna fleiri titla. Þeir glöddust mjög yfir að geta sameinað handboltakrafta sína á nýjan leik.
Leó kemur til Aftureldingar eftir sex ára dvöl hjá Stjörnunni og Andri var fyrirliði Gróttu. Þeir félagar voru saman í HK á sínum tíma og urðu Íslandsmeistarar með liðinu árið 2012, og vilja endurtaka þann leik að Varmá, þó að ljóst sé að samkeppnin í Olís-deildinni verði mikil á næstu leiktíð. „Við fengum virkilega spennandi símtal frá Gunna Magg [Gunnari Magnússyni, þjálfara Aftureldingar] og þetta gekk hratt fyrir sig. Það var enn meiri bónus þegar við komumst að því að við fengum sama símtalið. Þetta var erfið ákvörðun en engu að síður mjög spennandi fyrir okkur báða,“ sagði Leó Snær í viðtali við Guðjón Guðmundsson sem sjá má hér að neðan. „Gunni náði að selja okkur þetta helvíti vel. Það er spennandi að fara í klúbb sem ætlar sér að berjast um alla titla. Þetta var frekar auðveld ákvörðun – að gera þetta saman,“ sagði Andri en viðtalið við þá má sjá hér að neðan. Klippa: Leó og Andri sameinaðir á ný og vilja titla í Mosó Afturelding varð bikarmeistari í vetur og fagnaði þar með titli í fyrsta sinn í yfir tvo áratugi. Þá var liðið hársbreidd frá því að komast í úrslitaeinvígið um Íslandsmeistaratitilinn. Nú hefur félagið svo sótt góðan liðsstyrk því auk Andra og Leós kom Birgir Steinn Jónsson líkt og Andri frá Gróttu. Það virðast því spennandi tímar í Mosfellsbæ. „Já, já, algjörlega. Þetta er virkilega spennandi verkefni sem er í gangi. Þeir eru með allan bæinn með sér, það er þvílíkur meðbyr, þannig að við komum mjög spenntir til leiks,“ sagði Leó Snær. Guðjón benti á að tveir góðir leikmenn væru nú í hverri stöðu hjá Aftureldingu og að Andri stæði frammi fyrir mikilli samkeppni við Úkraínumanninn Ihor Kopyshynskyi. „Það verður bara gaman að kljást við hann og við eigum eftir að verða góðir liðsfélagar. Það er gaman þegar það er samkeppni í þessu,“ sagði Andri.
Olís-deild karla Afturelding Mest lesið Garnacho búinn að biðjast afsökunar Enski boltinn „Ef þetta er rautt, af hverju komast aðrir upp með að brjóta miklu oftar?“ Íslenski boltinn „Allt í lagi fram að rauða spjaldinu en breyttist mikið þá“ Íslenski boltinn Frá Englandsmeisturunum til meistaraliðs Bandaríkjanna Enski boltinn „Ég elska Keflavík og ég elska Ísland“ Körfubolti „Særð dýr eru hættulegustu dýrin“ Körfubolti „Við treystum á Remy og guð í kvöld“ Körfubolti Uppgjör, viðtöl og myndir: Stjarnan - Valur 1-0 | Stjörnumenn komnir á blað Íslenski boltinn Uppgjörið: Grindavík - Tindastóll 91-89 | Íslandsmeisturunum sópað úr leik í Smáranum Körfubolti ÍA kynnir Rúnar Má til leiks Íslenski boltinn Fleiri fréttir Fjórtán íslensk mörk og Magdeburg á toppinn Úlfurinn gæti farið til Magdeburg Svona var blaðamannafundur Snorra Steins Perla frá Perlu eitt af flottustu mörkum undankeppninnar Hvað viltu meira? „Góð aðventa með handbolta og skíðum“ Hergeir til Hauka Arnar Freyr öflugur í góðum sigri Melsungen Sveinn Andri samdi við Stjörnuna Ísland í erfiðum riðli á EM Jóhanna Margrét skiptir um lið innan Svíþjóðar Fimmtán dagar á milli leikja í sama einvígi í Olís deild karla Sebastian tekur við kvennaliði Víkings Tap hjá Íslendingaliðinu í fyrsta leik 8-liða úrslita Norska stórliðið örugglega í undanúrslit HSÍ keyri sig ekki aftur í þrot vegna HM Uppgjör og viðtöl: Afturelding - Stjarnan 35-24 | Mosfellingar keyrðu og bökkuðu yfir Garðbæinga „Mættum klárir og ætluðum að svara fyrir laugardaginn“ Alfreð og Dagur saman í riðli á Ólympíuleikunum Spenntur fyrir að halda HM með Íslendingum HM í handbolta 2031 fer fram á Íslandi Magnaður Bjarki Már þegar Veszprém svo gott sem tryggði sér titilinn ÍBV sendi ÍR í sumarfrí Stefán Arnars: Fram er með fjóra og við einn Uppgjör, viðtöl og myndir: Stjarnan - Haukar 21-25 | Stjörnukonur sendar í sumarfrí Stefán Rafn leggur skóna á hilluna Uppgjörið, viðtöl og myndir: Haukar – ÍBV 31-37 | Eyjamenn sendu Hauka í sumarfrí KA komið í sumarfrí en FH heldur áfram Magdeburg bikarmeistari eftir stórsigur gegn Melsungen Flensburg hirti brons í bikarkeppni „Hef ekki trú á að FH geti unnið Val í seríu“ Sjá meira
Uppgjörið: Grindavík - Tindastóll 91-89 | Íslandsmeisturunum sópað úr leik í Smáranum Körfubolti
Uppgjör og viðtöl: Afturelding - Stjarnan 35-24 | Mosfellingar keyrðu og bökkuðu yfir Garðbæinga
Uppgjörið: Grindavík - Tindastóll 91-89 | Íslandsmeisturunum sópað úr leik í Smáranum Körfubolti