Reiknar með að fallið verði frá sölunni Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 3. febrúar 2023 18:35 Jón Gunnarsson, dómsmálaráðherra. Vísir/Sara Líklegt er að ákvörðun um sölu á TF-SIF verði dregin til baka að sögn dómsmálaráðherra, sem fagnar viðbrögðum við fjárskorti Landhelgisgæslunnar.
Stendur það til, að draga þessa ákvörðun til baka? „Já ég reikna með því að við munum gera það. Mér sýnist stemningin vera þannig og ég fagna því mjög. Það er ekki léttvægt að taka slíka ákvörðun sem við þurftum að taka. Þessar tillögur komu frá Landhelgisgæslunni og voru teknar í samráði við hana. Nú hafa þær aðstæður skapast að vilji er til að mæta því sem upp á vantar til að geta haldið óbreyttum rekstri á næsta ári og ég fagna því mjög ef að það gæti orðið niðurstaðan,“ segir Jón Gunnarsson, dómsmálaráðherra. Koma muni í ljós á næstu dögum hvernig málið fari. Auknar fjárheimildir þurfi Hann segir að gæslan verði að fá auknar fjárheimildir. „Salan á þessari vél hefði auðvitað alltaf verið háð endanlegu samþykki Alþingis af því að við höfum enga heimild til að selja hana án samþykkis Alþingis og stemningin er þannig sem betur fer að menn vilja þá frekar leita annarra lausna og við fögnum því.“ Var þetta bragð frá upphafi til að fá auknar fjárheimildir til Landhelgisgæslunnar? Að tilkynna sölu á vélinni vitandi að viðbrögð yrðu mikil? „Nei það var ekkert trikk í því. Staðreyndir máls liggja fyrir og það verður að segja þær og mæta þeim eins og þær eru. Viðbrögð við því verða einhver og þetta gæti orðið niðurstaðan. Á sama tíma teljum við að leita þurfi hagræðingar í rekstri.“ En hvers vegna þarf svona sölutilkynningu til að ríkisstjórnin bregðist við og átti sig á stöðunni? Er ekkert samtal hjá ríkisstjórninni um þessi mál. Hvers vegna koma þessi viðbrögð fram núna? „Jú jú, það hefur átt sér stað samtal og það má segja að þegar upplýsingarnar lágu fyrir við fjárlagagerðina að við fengum 600 milljón króna framlag til viðbótar frá ríkisstjórninni og þinginu inn í reksturinn á þessu ári. Á þeim tíma taldi ég að það myndi duga til að halda óbreyttum rekstri þó að ég vissi að yrði um þröngt skorið. Þetta er um 800 milljónum minna en við höfðum farið fram á. Svo þegar við fórum að liggja yfir þeim tölum þá var ljóst að við urðum að grípa til frekari ráðstafana. „Ákvörðunin var að fara þessa leið, hún var talin skaða minnst þó ekki skaðlaus. Við vorum sammála um það forystumenn Landhelgisgæslunnar og starfsfólk ráðuneytis að þetta væri leiðin sem væri skynsamlegt að fara. Hún er tilkynnt með minnisblaði og viðbrögðin ekki látið á sér standa. Nú erum við stödd hér að vilji virðist vera til að bregðast við þessu með öðrum hætti og ég fagna því.“
Landhelgisgæslan Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Öryggis- og varnarmál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Erlent Vilja svör um möguleg „óþægileg hagsmunatengsl“ borgar og RÚV Innlent Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent „Fann það þegar ég vaknaði í morgun að þetta var lúmskt áfall“ Innlent Horfði á þegar vinur hans réðst á manninn sem braut á dóttur hans Innlent Kolbeinn Sigþórsson ákærður fyrir brot gegn barnungri stúlku Innlent „Helvíti fínt“ að komast aftur á Papa's Pizza Innlent Sautján greinst með kíghósta og inflúensan enn að dreifa sér Innlent Hárgreiðslustóll ekki hættulegt tæki og konan fær engar bætur Innlent Ætlar ekki að þröngva sér upp á fólk Innlent Fleiri fréttir Sautján greinst með kíghósta og inflúensan enn að dreifa sér Vilja svör um möguleg „óþægileg hagsmunatengsl“ borgar og RÚV „Fann það þegar ég vaknaði í morgun að þetta var lúmskt áfall“ Horfði á þegar vinur hans réðst á manninn sem braut á dóttur hans „Helvíti fínt“ að komast aftur á Papa's Pizza Ætlar ekki að þröngva sér upp á fólk Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Papa's Pizza, verkföll flugvallarstarfsmanna og óvæntur forsetaframbjóðandi Kolbeinn Sigþórsson ákærður fyrir brot gegn barnungri stúlku Framboð Viktors Traustasonar er gilt Hárgreiðslustóll ekki hættulegt tæki og konan fær engar bætur Afkoma borgarinnar versnar um níu milljarða króna milli ára Samþykktu verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli Útimarkaðurinn í Mosó hættir Atli Þór ráðinn til Pírata: „Við ætlum að koma flokknum í ríkisstjórn“ Biðlistinn á Stígamótum styttist í fyrsta sinn í þrjú ár Ný skoðanakönnun á morgun og Pallborð klukkan 14 Áfram landris og óvissa um framhaldið Tryggja þurfi tímabundin afnot náttúruauðlinda í stjórnarskrá Búinn að skila inn undirskriftum eftir „óvenjulegan“ frest „Það er norskur sigur í dag“ Grindvíkingar opna bakarí og veitingastað á ný Bakarí og veitingastaður opna í Grindavík á ný Friðrik skipaður sendiherra í Póllandi Halla vill skikka ungmenni í samfélagsþjónustu Íslendingur í gæsluvarðhaldi vegna Hamraborgarmálsins Betra að fá óþægilegu málin fram fyrr en seinna Eldur í ruslageymslu í Hafnarfirði Seinni umferð biskupskjörs hefst á hádegi í dag Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Sjá meira